Morgunblaðið - 22.07.2015, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.07.2015, Qupperneq 21
okkar mömmu þegar ég var lítil, var amma að hjálpa mér við að planta blómum í ker. Moldarpok- inn var opinn og hafði staðið úti um nóttina. Þegar amma ætlar að taka mold úr pokanum öskrar hún þannig að allt hverfið heyrði í henni. Ástæðan var sú að stór froskur hafði komið sér fyrir í pokanum og auðvitað hoppaði hann upp á móti ömmu þegar hún truflaði hann. Amma hló oft að þessu atviki. Amma var alltaf tilbúin að að- stoða alla og hjálpa ef á þurfti að halda. Allir voru jafnir í hennar augum. Við barnabörnin gátum alltaf leitað til ömmu því amma var einstök kona sem gat allt. Manni leið alltaf betur þegar maður var búin að tala við ömmu. Hún var réttlát kona og gat skammað okkur ef á þurfti að halda. En hún sýndi samtímis að hún elskaði okkur. Elsku amma, ég og mamma munum sakna þín óendanlega mikið. Hvíl í friði. Sigurdís Hildur. Hún Guðrún systir okkar er farin frá okkur, undarleg tilhugs- un, þrátt fyrir að öll værum við þess meðvituð að krabbameinið sem hún barðist svo lengi og hetjulega við myndi ekki sleppa af henni tökum. Við munum alltaf minnast Guðrúnar sem hinnar alltaf vinn- andi og hjálpsömu manneskju. Heima í Víðigerði fór hún snemma að vinna við allt sem þurfti, jafnvel eftir skólatíma á veturna. Þegar hún var fimmtán ára fór hún suður, í vist sem svo var kallað, hjá frændfólki í Reykjavík. Þar með var hún farin úr foreldrahúsum og starfaði m.a. í Hreðavatnsskála um tíma, en eftir það í Reykjavík. Hún giftist ung Hannesi Kolbeins og stofn- uðu þau heimili í Reykjavík og eignuðust saman dæturnar þrjár. Guðrún lagði metnað sinn í að allt heimilishald væri í föstum skorð- um, allt væri hreint og fágað og nokkuð er víst að ekki var alltaf gengið snemma til náða þótt vinna utan heimilisins biði að morgni. Það var gestkvæmt á heimili þeirra hjóna, og oft voru fjölskyldur beggja kallaðar sam- an til veislu og þótti þá ekki til- tökumál þótt nota þyrfti kvöld og jafnvel nætur til undirbúnings, eftir að hafa verið í vinnu allan daginn. Við minnumst líka alltaf með hlýju hve Guðrún var nær- gætin og hjálpsöm við foreldra okkar eftir að þau fluttust til Reykjavíkur og þá ekki síst eftir að pabbi var orðinn einn. Guðrún vann í um aldarfjórðung í ýmsum lyfjabúðum á höfuðborgarsvæð- inu, en árið 2006 fluttu þau hjónin til Svíþjóðar, keyptu hús í Kall- inge í Blekinge-léni og bjuggu sér þar fallegt og hlýlegt heimili. Hér var gestkvæmt líka, ekki síður en verið hafði á Íslandi og var gest- risnin í hávegum höfð, meðan kraftar Guðrúnar leyfðu. Við sinn nýja bústað hafði Guðrún stóran garð og hér var veðurfarið ögn betra en í Breiðholtinu enda fór Guðrún á kostum við garðrækt- ina, hér gat hún látið allt blómstra og hér skyldi ævikvöld- inu eytt. Eftir aðeins eitt ár í Sví- þjóð greindist Guðrún með krabbamein, hún lést á heimili sínu þann 12. júlí sl. Með söknuði og góðum minn- ingum kveðjum við Guðrúnu systur okkar. Samúðarkveðjur til Hannesar og dætranna þriggja og allra af- komenda þeirra. Kirstín, Kristján og Gunnar.  Fleiri minningargreinar um Guðrúnu B. Kolbeins bíða birtingar og munu birtast á næstu dögum. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 ✝ Henry Skovga-ard Jacobsen fæddist 15. febrúar árið 1919 í Fredrik- sund á Sjálandi í Danmörku. Hann lést 11. júlí 2015 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi. Foreldrar hans voru hjónin Peder Kristian Skovgaard Jacobsen og Laura Margrete Skovgaard Jacobsen fædd Karl- sen. Þau eignuðust 5 börn sem nú eru öll látin. Eftirlifandi kona Henrys er Inger Jacobsen, fædd í Sölleröd á Sjálandi 9. sept. 1923. Eignuðust þau tvö börn. Birthe fædda 1941 og Aase fædda 1948. Barnabörnin eru fimm, barnabarnabörnin 1947 til að ljúka herþjónustu. Fór hann að henni lokinni að vinna hjá Kildedyb mejeri í Kolding. Þegar hann vann þar kynntist hann konu sinni Inger og áttu þau farsælt hjónaband í 65 ár. En Henry gleymdist ekki. Árið 1956 var hann fenginn aft- ur til MBF til þess að gangsetja ný þurrmjólkurtæki sem verið var að setja upp hjá MBF. Þeim hjónum líkaði svo vel á Íslandi að þau ákváðu að setjast hér al- farið að. Unnu þau bæði alla sína starfstíð hjá MBF. Þ.e.a.s. til ársloka 1989. Henry var mik- ill áhugamaður um stangveiði og var m.a. umsjónarmaður fé- lagsins í Hlíðarvatni til fjölda ára. Var hann gerður að heið- ursfélaga í Stangveiðifélagi Sel- foss. Henry var einnig mikill Lions-maður og var hann gerð- ur að Melvin Jones félaga. Henry gekk í Frímúrararegluna 1981 og var frá fyrsta degi mik- ill áhugamaður um starfið þar. Útför hans fer fram frá Sel- fosskirkju í dag, miðvikudaginn 22. júlí 2015, kl. 13.30. átta og eitt barna- barnabarnabarn. Ungur fór Henry til náms í mjólkur- fræði á Korskilde mejeri á Mið- jótlandi og útskrif- aðist sem mjólk- urfræðingur frá Odense mejeriskole eftir fjögurra ára nám. Hann ákvað stuttu síðar að koma til Íslands og hóf hann vinnu hjá Mjólkurbúi Flóa- manna. Átti það aðeins að vera í eitt ár. En stríðið varð þess valdandi að heimförinni seink- aði um nokkur ár. Vann hann þá áfram hjá MBF en einnig vann hann um eins árs skeið við bygg- ingu Skeiðfossvirkjunar. Henry fór aftur til Danmerkur árið Það var fallegur sumardagur þann 11. júlí, undirritaður rétt kominn í bæinn eftir nokkurra daga fjarveru, vissi að Henry hafði verið lagður inn á sjúkra- hús fyrir stuttu. Fæ þá eitthvert hugboð um að ég þurfi að fara í heimsókn og ákveð að drífa mig upp á sjúkrahús. Kom því miður of seint því þá hafði Henry kvatt þetta líf örfáum mínútum áður. Þar með kvaddi síðasti danski mjólkurfræðingurinn okkur eftir langt og farsælt líf. Í minningunni hef ég þekkt þennan öðling alla tíð. Henry var í hópi danskra mjólkurfræðinga sem komu til þess að vinna í Mjólkurbúi Flóamanna og fluttu þeir með sér nýja menningu í bæinn og settu skemmtilegan svip á mannlífið. Undirritaður vann með Henry í MBF í áratugi og segja má að hann hafi verið minn mentor, fylgdist vel með mér í námi mínu í Danmörku og þau hjón heimsóttu mig til Ro- senkilde mejeri i Faxe er ég var þar í starfsnámi, aldrei bar skugga á það samstarf. Henry kom fyrst einn til Ís- lands árið 1939 til vinnu í mjólk- urbúinu. Hann fór síðan aftur til Danmerkur 1947 og sinnti þar herþjónustu. Kom svo aftur til Selfoss 1956 var þá með Inger með og dæturnar tvær. Mér er minnisstætt að ég sá einhvern mann vera farinn að grafa skurð á túninu heima. Já, pabbi vissi að þetta væri Dani sem ætlaði að byggja þarna. Þarna var Henry byrjaður á húsgrunninum sem hann handgróf. Þannig hófust strax kynnin þó þau hafi ekki verið náin í fyrstu enda talsverð- ur aldursmunur á okkur, und- irritaður þá barn og unglingur en þau „fullorðið fólk“. Allt sem sneri að þeim hjónum var til fyr- irmyndar. Öllu haldið vel við alla tíð þar til þau þurftu að færa sig um set þegar aldurinn færðist yfir og orðið þeim ofviða að sinna stóru húsi og garði. Henry tók virkan þátt í fé- lagslífi bæjarins, stundaði stang- veiði í Ölfusá með löndum sínum sem innleiddu það „sport“ í bæ- inn og varð seinna meðlimur í Stangaveiðifélagi Selfoss og heiðursfélagi þess. Félagi í Lionshreyfingunni og hlaut hann þar æðstu viðurkenningu, en það var í frímúrahreyfingunni sem okkar leiðir lágu aðallega saman síðustu árin, en þar var Henry virkur félagi, og áttum við þar margar ánægjustundir. Henry fékk iðulega sendan ost frá Danmörku og var það oft- ast „Gamle Ole“ en af þeim osti getur verið nokkuð sterk lykt. Var þá oftar en ekki hringt frá pósthúsinu og honum tilkynnt að hann ætti sendingu á útitröppum pósthússins. Seinni árin var hann vanur að byrja daginn á einum „Gammel dansk“. Hafði hann tröllatrú á þeim miði. Hans lífseleksír. E.t.v. virkaði hann því Henry var á 97. aldursárinu þegar hann kvaddi þennan heim. Hann var afar samviskusamur og heiðarlegur maður, sannur „gentleman“. Vann öll sín störf af mikilli trúmennsku bæði á sín- um vinnustað og í þeim félögum sem hann starfaði í. Ég vil að lokum þakka Henry fyrir sam- fylgdina. Ég tel mig lánsaman að hafa fengið að kynnast honum bæði í leik og starfi. Við hjónin færum Inger og dætrunum innilegar samúðar- kveðjur. Guðmundur Eiríksson. Sæll Inga mín! Svona ávarp- aði Henry vinur okkar mig gjarnan í gegnum árin þegar hann heilsaði mér. Mér fannst þetta alltaf jafn vinalegt. Hann var danskur og ekki auðvelt að hafa íslenskuna fullkomna hvað beygingar og annað varðar. Nú hefur hann kvatt okkur þessi öðlingsmaður, 96 ára að aldri. Hann dvaldi á Íslandi einhver ár á milli 1940 og 1950 og kom svo aftur 1957 með konu sinni Inger og tveimur dætrum, þeim Birthe og Åse, og hefur búið hér síðan. Við Åse erum jafnaldra og skóla- félagar og höfum verið vinkonur frá 9 ára aldri. Henry og Inger byggðu sér hús við Víðivelli eins og foreldrar mínir svo samgang- urinn var mikill og stutt að fara á milli fyrir okkur vinkonurnar. Henry var mjólkurfræðingur og vann í Mjólkurbúi Flóamanna allan sinn starfstíma hér, og í mörg ár sem verkstjóri. Hann hafði mikinn og einlægan áhuga á starfi sínu, var samviskusamur og vann af miklum heilindum fyrir fyrirtækið. En þannig var Henry. Hann sýndi öllu sem hann tók sér fyrir hendur mikinn áhuga. Hann hafði mikinn áhuga á garðrækt og bar garður þeirra hjóna þess gott vitni, þar sem hekkið var þráðbeint klippt og blómaskrúðið mikið og fallegt. Gjarnan sáði hann blómafræjum sem hann kom með frá Dan- mörku og ekki voru fáanleg hér á þeim tíma. Henry var fé- lagslyndur maður og var félagi í Lionshreyfingunni og síðar Frí- múrarareglunni. Hann hafði áhuga á veiði og var lengi í stjórn Stangaveiðifélags Selfoss og var gerður að heiðursfélaga þar. Hann var einnig frímerkja- safnari um langt árabil, og alltaf gaf hann sig allan í það sem hann tók sér fyrir hendur, gerði það eins vel og hægt var og var fullur af áhuga. Hann var mikið snyrtimenni og voru þeir heppn- ir sem fengu bílana hans þegar kom að því að hann skipti, þar sem þeir voru svo vel með farnir og alltaf eins og nýir. Þau hjónin nutu þess að aka um Ísland á góðum bíl, en þau fóru líka mikið til útlanda og þá með viðkomu í Danmörku sem þau eðlilega elskuðu, enda dæturnar og allt þeirra fólk búsett þar. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar hugsað er til baka. Dvöl okkar Åse þegar við vorum 15 ára hjá fólki Henrys í Kaup- mannahöfn og fólkinu hennar Inger á Jótlandi, og ferð mín með þeim hjónum til Danmerkur þegar Åse og Frank giftu sig eru minningar sem gaman er að rifja upp. Henry og Inger hafa alltaf haft gaman af því að nöfn okkar hjónanna eru nánast þau sömu, Inger og Henry og svo okkar, Inga og Henrý. Við hjónin eigum myndir og myndband úr brúð- kaupinu okkar sem „nafni“ tók og gaf okkur, en eitt af áhuga- málum hans var að taka myndir og gerði hann það vel eins og allt annað. Nú er löngu og farsælu lífi Henrys Jacobsen lokið hér á jörðu, og við sendum Inger, dætrunum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Kæri vinur, við Henrý kveðj- um þig með söknuði eftir langa og ánægjulega samferð. Inga og Henrý. Í dag kveðjum við heiðurs- manninn Henry S. Jacobsen, en hann kom til landsins um páskana 1939 til að vinna í Mjólkurbúi Flóamanna og ætlaði hann að dvelja í ár. Ferðin austur á Selfoss var honum mjög eftirminnileg, það var komin nótt þegar hann fór yfir Hellisheiðina, vegurinn var holóttur og illfær, það var farið hægt yfir og landslagið var framandi. Daginn eftir var hann vakinn kl. 6 um morguninn og hófst þá fyrsti vinnudagurinn í MBF þar sem hann starfaði í rúm 40 ár. Árið 1947 flutti hann til Dan- merkur en kom aftur með konu sinni Inger og dætrum til lands- ins árið 1956 að tilstuðlan Grét- ars Símonarsonar mjólkurbús- stjóra. Þá var verið að setja upp mjólkurduftsverksmiðju hjá MBF en Jacobsen þekkti þessa nýju tækni mjög vel, þar sem hann hafði starfað við duftfram- leiðslu í Danmörku í nokkurn tíma. Á þessum árum var verið að ljúka við byggingu á nýju mjólk- urbúi á Selfossi og var það talið stærsta og tæknivæddasta mjólkurbúið á Norðurlöndum á þeim tíma. Það hafa verið spennandi tímar fyrstu árin í nýja mjólk- urbúinu, þó svo að vinnudagur- inn hafi oft verið langur og unnið var jöfnum höndum á laugardög- um og sunnudögum. Jacobsen starfaði sem verkstjóri í áratugi hjá MBF og var hann afskaplega vel liðinn og hafði einstakt lag á því að skapa samstöðu meðal starfsfólksins. Hann var næmur í mannlegum samskiptum og góð fyrirmynd í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Áhugamálin voru mörg, hann stundaði hnefaleika og kom að stofnun hnefaleikafélags á Sel- fossi á stríðsárunum, hafði mik- inn áhuga á ljósmyndun og tók fjöldann allan af myndum og stangveiðin átti síðan hug hans allan fram á síðasta dag. Þau hjónin ferðuðust mikið um landið og höfðu mikla ánægju af. Hann var virkur í mörgum félögum á Selfossi, meðal annars í Lionsklúbbi Sel- foss þar sem ég starfaði með honum til fjölda ára. Hann setti mark sitt á félagsstarfið með nærveru sinni og kom að mörg- um góðum málefnum og fékk æðstu viðurkenningu Lions- hreyfingarinnar, Melvin Jones. Ætíð var létt lundin og stutt í brosið og að blanda drykki í mannskapinn á góðri stundu kunni hann manna best. Varla var hægt að finna sam- rýmdari hjón en Jacobsen og Inger. Að rækta garðinn sinn með fallegum blómum og trjám var eitthvað sem þau nutu sam- an, en á seinni árum var garð- urinn svalirnar þeirra, sem voru prýddar blómum og mikið rækt- að á litlu svæði. Guð blessi og styrki þig Inger og ástvini alla. Guðmundur Geir Gunnarsson. Kveðja frá Lionsklúbbi Selfoss Sólin braust fram úr skýjun- um og baðaði Ingólfsfjall, Ölfus- ána og fallega bæinn okkar, Sel- foss, geislum sínum en blómin stóðu hnípin á svölunum á Græn- umörk 2 þegar kær Lionsfélagi og vinur, Henry S. Jacobsen, kvaddi þetta jarðlíf. Henry gekk til liðs við Lions- klúbb Selfoss 3. febrúar árið 1969. Hann varð strax félagi og tók þátt í að móta hinn unga Lionsklúbb á upphafsárunum. Henry gengdi öllum helstu emb- ættum innan klúbbsins, var m.a. formaður og ritari og tvisvar sinnum gjaldkeri. Henry var ekki maður margra orða lét frekar verkin tala en lét til sín taka á fundum þegar honum þótti ástæða til svo tekið var eft- ir. Henry var meðmælandi sjö nýrra félaga í Lkl. Selfoss, Hann var sæmdur æðstu viðurkenn- ingu Lionshreyfingarinnar, Lions Melvin Jones-viðurkenn- ingunni, árið 1990, fyrstur félaga í Lkl. Selfoss. Auk fyrrgreindra starfa fyrir Lkl. Selfoss sá Henry um árabil um að blanda drykki sem hafðir voru um hönd á tyllidögum klúbbsins, svo sem á lokafundum og í sumarferðum. Þegar hann lét af þessu starfi færði hann klúbbnum stílabók með öllum uppskriftum drykkjanna og við hvaða tilefni þeir voru notaðir, með athugasemdum um magn og hvernig drykkurinn hefði smakkast. Henry var góður sögumaður og var fróðlegt og gaman að heyra hann segja frá uppvext- inum í Danmörku og upphafs- árum sínum á Íslandi. Henry var einnig góður ljósmyndari. Lions- klúbburinn á margar ómetanleg- ar perlur eftir hann, bæði ljós- myndir og hreyfimyndir sem Henry var búinn að klippa til og koma í aðgengilegt form, eru þetta ómetanlegar heimildir um upphafsár klúbbsins. Félagar í Lkl. Selfoss hafa átt saman margar yndislegar stund- ir með mökum sínum, bæði heima og erlendis, þar létu þau hjón, Henry og Inger, sitt ekki eftir liggja. Við fráfall Henry söknum við félagar í Lkl. Selfoss góðs félaga. Við sendum eftirlifandi eigin- konu hans, Inger Jacobsen, dætrum þeirra og fjölskyldum samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Henry S. Jacobsen. Fyrir hönd Lionsklúbbs Sel- foss, Ólafur Sigurðsson. Henry Skovgaard Jacobsen fyrir að hafa fengið að hafa hana í lífi mínu. Ég var svo heppin að fá að vera mikið hjá henni sem barn og það var fátt betra en þegar hún las fyrir mig vísur með ljúfri röddu á kvöldin. Mér fannst ekk- ert notalegra en að hlusta á hana og fangaði hún athygli mína alla mjög auðveldlega og svo sveif ég svo blítt inn í draumalandið. Svo voru það strætóferðirnar í bæinn sem enduðu oft í Kolaportinu eða þá að við fórum í bingó en amma virtist vera ótrúlega heppin og vann oftar en ekki. Stundum hélt ég að hún sæi í gegnum veggi þegar ég var lítil og var að stelast t.d. í kanilsykurkarið, þá spurði hún mig hvað ég væri að gera rétt í þann mund sem ég náði tökum á karinu þrátt fyrir að hún væri í öðru herbergi. Hún amma var bara svo mikil amma. Hún var lágvaxin með silfurgrátt hár, krullur og svolítið bústin. Hún var mikil handverkskona og það lék allt í höndunum á henni. Mér fannst ég alltaf örugg hjá henni og mér fannst ekkert betra en að vera hjá henni. Ég heyrði hana aldrei kvarta, þó lífið hafi nú ekki alltaf verið auðvelt hjá henni varð ég aldrei þess vör að hún kvart- aði. Hún bara gerði það sem þurfti að gera. Nægjusöm var hún og þurfti hún ekki bílpróf því hún hafði strætó og hún hafði aldrei farið til útlanda því hérna hafði hún allt sem hún þurfti. Hún skildi ekkert í því hvað fólk væri að þvælast þetta. Ég er svo ofsalega þakklát henni þar sem hún hugsaði svo vel um sína og það mun ég gera líka. Hún reyndist mér og Ronju Líf mikill bjargvættur þegar við vor- um í húsnæðisvanda og lánaði okkur íbúðina sína meðan hún var á Grund, en heimilið hennar var henni mjög kært og er okkur Ronju Líf það líka. Þarna á ég mínar bestu minningar um hana og Ronja Líf fær að upplifa sín fyrstu ár á sama stað og ég, og fær að hlusta á sömu vísur og ég. Það er mér mjög dýrmætt. Íris Ingþórsdóttir. Elsku amma, ég kveð þig nú með söknuði og sorg í hjarta en gleðst jafnframt yfir öllum þeim minningum sem við áttum sam- an. Það var alltaf svo gott að koma til þín í Skipasundið í spjall og fá heimalagaða jóla- köku, kleinur eða annað gott með kaffinu. Amma var myndarleg í eld- húsinu og mjög handlagin. Hún vann lengi sem saumakona, prjónaði mikið og gerði aðra handavinnu alveg þar til sjónin fór að daprast á allra síðustu ár- um. Hún kenndi mér að prjóna og hekla þegar ég var barn. Það var alltaf gaman þegar við sýnd- um hvor annarri afraksturinn af handavinnu okkar og spjölluð- um saman um það sem var á prjónunum. Amma hafði einstakt jafnað- argeð og lét fátt slá sig út af lag- inu. Við barnabörnin vorum oft hjá ömmu og afa í Skipó sem krakkar og ég á margar góðar minningar þaðan. Háaloftið sem Jói frændi innréttaði var frábær staður fyrir krakka að leika sér og saumherbergið hennar ömmu líka með öllum tölunum og öðrum gersemum. Slátur- gerðin er mér minnisstæð, þeg- ar við krakkarnir fengum að sauma vambirnar og þegar amma var rjóð í vöngum að steikja kleinur í stóra pottinum. Við fjölskyldan fórum oft með ömmu á páskum í Borgarnes að heimsækja Jóa móðurbróður hennar. Amma ólst upp í Borg- arnesi og þar var gaman að vera. Þar rifjaði amma upp gamla tíma með okkur og ég man hvað mér fannst merkilegt að heyra sögur af því hvernig lífið var hjá ömmu þegar hún var stelpa. Ég sakna þín, elsku amma, þú áttir sérstakan stað í mínu hjarta og ég þakka þér fyrir all- ar góðu stundirnar sem við átt- um. Góða ferð heim. Þín, Hulda Lóa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.