Morgunblaðið - 22.07.2015, Page 26

Morgunblaðið - 22.07.2015, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 Rúnar Marvinsson kokkur er sjötugur í dag. Rúnar er fæddur oguppalinn í Sandgerði en býr nú að Hraunsmúla í Staðarsveit áSnæfellsnesi. Rúnar starfaði lengst af sem kokkur á veit- ingastaðnum Við tjörnina en var áður til sjós og starfaði einnig á Hót- el Búðum. Í tilefni afmælisins blæs Rúnar til afmælisveislu í Félagsheimilinu Lýsuhóli. „Það verður mikil matarmessa,“ segir Rúnar, sem hyggst þó ekki elda sjálfur, heldur halla sér aftur í ruggustól á meðan góðir vinir hans og fjölskylda sjá um matseldina, en Rúnar segir samstarfs- félaga sína gegnum árin vera meðal sinna bestu vina. Á boðstólum verða meðal annars kryddlegnar gellur og koli með gráðosti og ban- ana ásamt öðrum gömlum og hefðbundnum réttum frá ferli Rúnars. „Þeir urðu margir til réttirnir á Búðum í gamla daga og hefur mörg- um vegnað vel í gegnum tíðina. Ætli þeir fái ekki nýja lífdaga á laug- ardaginn,“ segir hann. Rúnar hyggst fara í veiðiferð með vinum og félögum í tilefni dags- ins. Hann segist ekki gerast svo stórtækur að hann veiði í soðið fyrir veisluna enda von á 100-200 manns á laugardag. Fósturforeldrar Rúnars voru Sumarliði Lárusson, bæjarverkstjóri í Sandgerði, og Jenný Sigurðardóttir húsmóðir. Rúnar á sex börn, en þrjú þeirra eru kokkar. Öll hafa þau þó fengist við matreiðslu á einn eða annan hátt. Börnin eru Gunnar Páll, Jenný, Sumarliði Örn, Krist- ín, Elvar og Laufar Sigurður. jbe@mbl.is Morgunblaðið/Golli Við tjörnina Rúnar starfaði lengst af á veitingastaðnum Við tjörnina. Gamlir réttir bornir fram á nýjan leik Rúnar Marvinsson er 70 ára í dag S igurður fæddist vestast í Vesturbænum í Reykja- vík 22.7. 1945 en flutti tveggja ára með fjöl- skyldu sinni í Sandgerði og þaðan til Grindavíkur þar sem hann ólst upp til tólf ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan austur á Eskifjörð 1958 þar sem Sigurður hefur átt heima síðan: „Þó ég hafi fæðst í Vesturbænum í Reykjavík fannst mér nánast eins og við værum að flytja heim þegar við fluttum austur. Pabbi var frá Reyðarfirði og mamma úr Borgar- firði eystra. Mér finnst ég því alltaf hafa verið Austfirðingur. Annars hefur mér allstaðar liðið vel þar sem ég hef átt heima.“ Sigurður var í sveit í þrjú sumur á Kirkjubólsseli í Stöðvarfirði, á þaðan góðar minningar og þykir alltaf vænt um Stöðvarfjörðinn síð- an. Sigurður byrjaði í Barnaskóla Grindavíkur, var í Barnaskóla Eski- fjarðar, stundaði nám við Héraðs- skólann á Laugarvatni og var síðan einn vetur við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum. Hann lærði síðan húsasmíði við Iðnskóla Austurlands, lauk þaðan sveinsprófi og öðlaðist meistararéttindi árið 1983. Sigurður stundaði síðar nám í uppeldis- og kennslufræði við Kenn- araháskóla Íslands og lauk þaðan smíðakennaraprófi árið 2000. Sigurður fór ungur til sjós, var á bátum frá Eskifirði og Reyðarfirði frá 13 ára aldri og var síðan á tog- urum. Auk þess starfaði hann við smíðar á Austurlandi og var þar húsasmiður á eigin vegum og hjá ýmsum fyrirtækjum. Hann kenndi svo smíði við Grunnskólann á Eski- firði á árunum 2000-2006. Kjaramálin og trilluútgerð Sigurður hóf ungur afskipti af verkalýðsmálum á Austfjörðum, sat í stjórn Iðnnemasambands Austur- lands á sínum yngri árum og sat Sigurður Ingvarsson verkalýðsleiðtogi – 70 ára Fjölskyldan Sigurður og Guðrún á ferðalagi með börnunum sínum, Hreini og Dagmar, í Borgarfirði eystra. Verkalýðsforingi með áhuga á trilluútgerð Reyðar Fyrsti bátur Sigurðar. Þær Ásrún Rós Aðalsteinsdóttir, Hanna Lára Tryggvadóttir, Helga Hrund Ólafs- dóttir, Kristín Lilja Káradóttir, Mária Líney Dalmay, Ragnheiður María Ottós- dóttir og Sunna Arnfinnsdóttir héldu tvær tombólur fyrir utan Krónuna í Reykja- vík. Þær söfnuðu 13.667 krónum og gáfu til styrktar Rauða krossinum, en þær gátu ekki allar verið með á myndinni. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. í í og 2, kja r r Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isLaugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • brynja@brynja.is HNÍFAR FYRIR ÚTIVISTINA Spónhnífur Verð kr. 5.495 Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Karl-Johan sveppahnífur Verð kr. 4.665 Tálguhnífur 120 Verð kr. 3.545 Skeiðarkrókur 162 Verð kr. 5.100 Skátahnífur Verð kr. 5.860

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.