Morgunblaðið - 22.07.2015, Page 27
lengi í stjórn Árvakurs, verkalýðs-
félags Eskifjarðar. Hann var ýmist
formaður eða varaformaður Árvak-
urs um árabil. Þá var Sigurður for-
seti Alþýðusambands Austurlands,
sambands verkalýðsfélaganna á
Austurlandi á árunum 1988-2000.
Sigurður sat í stjórn Verka-
mannasambandsins og miðstjórn
ASÍ um skeið, í stjórn Sjóminja-
safns Austurlands um árabil, var
varamaður í bæjarstjórn Eski-
fjarðar og sat í ýmsum nefndum á
vegum bæjarfélagsins og verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Áhugamál Sigurðar hafa alltaf
snúist um smábátaútgerð: „Við
hjónin áttum alltaf bát frá 1985 og
fyrsta bátinn smíðaði ég að miklu
leyti sjálfur. Ég hef alltaf haft yndi
af því að fara á skak. Það er fátt
meira róandi og gefandi en að
sækja sér í soðið í fallegu veðri. Yf-
irleitt fór ég einn í róðra en á tíma-
bili var sonarsonur minn einnig með
í för.
Ég hef einnig haft gaman af að
smíða, smíðaði að sjálfsögðu mitt
eigið hús hér á Eskifirði og hef haft
gaman af að dunda mér við smíðar
eftir að fór að hægast um á öðrum
sviðum.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Guðrún
Gunnlaugsdóttir, f. 2.1. 1948, grunn-
skólakennari á Eskifirði. Foreldrar
hennar voru Gunnlaugur Gunn-
laugsson, f. 2.11. 1915, d. 1991,
bóndi í Heiðarseli í Hróarstungu,
og k.h., Gunnhildur Björnsdóttir, f.
5.1. 1928, fyrrv. húsfreyja í Heið-
arseli, en býr nú á dvalarheimili
aldraðra á Egilsstöðum.
Börn Sigurðar og Guðrúnar eru
Hreinn, f. 9.7. 1966, vélstjóri hjá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað, bú-
settur á Eskifirði, en kona hans er
Berglind Jóhannsdóttir lífefnafræð-
ingur og á Hreinn þrjú börn, og
Dagmar, f. 20.10. 1969, löggiltur
læknaritari og starfsmaður við leik-
skóla, búsett á Akranesi, en maður
hennar er Viðar Hreggviðsson raf-
virki og eiga þau þrjú börn.
Bróðir Sigurðar var Gunnar
Ingvarsson, f. 11.4. 1947, d. 30.9.
2011, vélstjóri og framkvæmdastjóri
í Reykjavík, en eftirlifandi kona
hans er Hólmfríður Friðriksdóttir
og eignuðust þau eina dóttur.
Foreldrar Sigurðar voru Dagmar
Sigurðardóttir, f. 29.5. 1912, d. 17.3.
1980, húsfreyja á Eskifirði, og Ingv-
ar Gunnarsson, f. 18.2. 1919, d. 23.6.
1991, vélstjóri á Eskifirði.
Úr frændgarði Sigurðar Ingvarssonar
Sigurður
Ingvarsson
Guðrún Hjörleifsdóttir
húsfr. í Breiðuvík
Hallgrímur „harði“ Jónsson
b. í Breiðuvík
Jónína Sesselja Hallgrímsdóttir
húsfr. í Borgarfirði eystra
Sigurður Jónsson Árnes
ættfr. og sjóm. víða á Aust-
fjörðum og í Eyjum
Dagmar Sigurðardóttir
húsfr. á Eskifirði
Sigríður Eyjólfsdóttir
vinnuk. í Hrunamannahr.
Jón Gíslason
vinnumaður í Árnessýslu
Sólveig Jónsdóttir
vinnukona frá Stóru-Breiðuvíkurhjáleigu
Jón Nikulásson
b. í Teigagerði, síðast
í Víði pósthús í Nýja-
Íslandi í Kanada
Una Sigríður Jónsdóttir
húsfr. á Reyðarfirði
Gunnar Bóasson
útvegsb. í Bakkagerði á Reyðarfirði
Ingvar Gunnarsson
vélstj. á Eskifirði
Sigurbjörg Halldórsdóttir
húsfr. á Grenjaðarstað
Bóas Gunnarsson
vélstj. á Stuðlum.
Reynir Gunnarsson
vélstj. og útgerðar-
m. á Reyðarfirði
Karl Kvaran
listmálari
Guðrún
Ágústsdóttir
söngkona
Björn
Hallgrímsson
forstj. H.
Ben. & Co.
Ólafur Kvaran
listfræðingur
Gunnar Kvaran
listfræðingur
Kristinn Hallss.
óperusöngvari.
Emilía Björg
Björnsdóttir
ljósmyndari
við Morgunbl.
Kristinn
Björnsson
fyrrv. forstj.
Skeljungs
Finnur Geirsson
forstj. Nóa Síríus
Hallgrímur
Geirsson lögm.
Ágúst
Benediktsson
Elísabet
Benedikts-
dóttir
húsfr. í Rvík
Hallgrímur
Benediktsson
stórkaupm.
og alþm.
í Rvík
Guðrún
Björnsd.
húsfr. á
Rjúpnafelli
í Vopnafirði
Bóel
Bóasd.
húsfr. á
Stuðlum
Ingileif
Hallgrímsd.
stjórnarform
Geir
Hallgrímsson
forsætisráðh.
Gunnar Snorri
Gunnarsson
sendiherra
Bóas Bóasson
b. á Stuðlum í Reyðarfirði,
af Stuðlaætt
Benedikt
Bóas
Hinriksson
blaðam. við
Morgunbl.
Hinrik Árni
Bóasson
vélfr. hjá
Mannviti.
Margrét
Bóasard.
söngkona
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
Ingvar Júlíus fæddist á Vífils-stöðum 22.7. 1928. Foreldrarhans voru Helgi Ingvarsson,
yfirlæknir á Vífilsstöðum, og k.h.,
Guðrún Lárusdóttir, varðstjóri við
talsímadeild Landssímans.
Systir Helga var Soffía, borg-
arfulltrúi, amma Sveinbjarnar I.
Baldvinssonar rithöfundar. Helgi
var sonur Ingvars G. Nikulássonar,
prests á Skeggjastöðum, og k.h.,
Júlíu Guðmundsdóttur húsfreyju, af
Keldnaætt, en Guðrún var systir
Páls, föður Lárusar leikara. Hún var
dóttir Lárusar Pálssonar, smá-
skammtalæknis og bónda á Sjón-
arhóli á Vatnsleysuströnd, og Guð-
rúnar Þórðardóttur húsfreyju.
Meðal systkina Ingvars voru dr.
Guðrún Pálína, skólastjóri Kvenna-
skólans; dr. Lárus Jakob yfirlæknir,
og Sigurður sýslumaður.
Eftirlifandi eiginkona Ingvars er
Sigríður Guðmundsdóttir og eign-
uðust þau níu börn, Helga fram-
kvæmdastjóra, sem er látinn; Guð-
mund Ágúst framkvæmdastjóra;
Júlíus Vífil, borgarfulltrúa og óp-
erusöngvara; Júlíu Guðrúnu kenn-
ara; Áslaugu Helgu kennara; Guð-
rúnu sölustjóra; Elísabetu sem lést í
barnæsku; Elísabetu framkvæmda-
stjóra, og Ingvar lækni.
Ingvar lauk prófum frá Sam-
vinnuskólanum í Reykjavík 1948.
Að námi loknu hóf hann störf hjá
Helga Lárussyni frá Klaustri og
starfaði síðan hjá Innkaupastofnun
ríkisins 1951-60.
Ingvar stofnaði fyrirtækið Ingvar
Helgason hf. 1956 og sneri sér alfar-
ið að rekstri þess 1960. Fyrirtækið
flutti þá inn leikföng og gjafavöru,
en hóf innflutning og sölu bifreiða
1963 og átti eftir að verða stærsta
bílaumboð landsins um skeið. Þá var
fyrirtækið Bílheimar stofnað af
Ingvari og fjölskyldu 1993.
Ingvar var einn af stofnendum
Junior Chamber á Íslandi, var fyrsti
forseti sambandsins 1960-61, átti
sæti í stjórn Bílgreinasambandsins
1984-88. Hann var sæmdur ridd-
arakrossi 1999 fyrir störf að atvinnu-
og líknarmálum.
Ingvar lést 18.9. 1999.
Merkir Íslendingar
Ingvar
Helgason
30 ára Íris ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í verkfræði frá
HÍ og er að hefja störf hjá
LS Retail í Reykjavík.
Kærasti: Tómas Bjarna-
son, f. 1980.
Bræður: Pétur Már, f.
1989, og Stefán Jón, f.
1994.
Foreldrar: Pétur Stef-
ánsson, f. 1955, starfs-
maður hjá UKTI, og Gyða
Jónsdóttir, f. 1955, hús-
freyja í Reykjavík.
Íris Ásta Péturs-
dóttir Viborg
30 ára Hjörvar ólst upp á
Ólafsfirði, býr á Akureyri,
lauk viðskiptafræðiprófi
frá HA og vinnur hjá Ís-
lenskum verðbréfum.
Maki: Tinna Lóa Ómars-
dóttir, f. 1986, sölumaður
hjá MS.
Dætur: Arna Dögg, f.
2007, og Bríet Halldóra, f.
2010.
Foreldrar: Maron Björns-
son, f. 1959, skipstjóri, og
Halldóra Garðarsdóttir, f.
1957, húsmóðir.
Hjörvar
Maronsson
90 ára
Guðrún Hulda
Guðmundsdóttir
Kristinn Þórir Einarsson
Páll Halldór Guðmundsson
85 ára
Elín Sigurðardóttir
Guðný Kristín Guðnadóttir
Hafdís J. Bridde
Hannes Guðmundsson
María Jóna Helgadóttir
80 ára
Bergljót Sigurbjörnsdóttir
Elsa Guðmundsdóttir
Gunnar Rafn Guðmundsson
Ólafur Ágústsson
Sesselja Friðriksdóttir
75 ára
Friðrik A. Jónsson
Ingi Gústafsson
Sólrún Jensdóttir
70 ára
Eygló Ingimarsdóttir
Sigurbjörg Björnsdóttir
60 ára
Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson
Björgvin Rúnar Leifsson
Dagbjört Eysteinsdóttir
Erlingur Hreinn Hjaltason
Jón Aðalsteinn Þorgeirsson
Karl Sigurður Sigurðsson
Katla Gunnarsdóttir
Kristín Þorgrímsdóttir
Leó Pálsson
Margrét Þorvaldsdóttir
Ólöf Guðnadóttir
Sigurborg Jóna
Hilmarsdóttir
Sigurvin Bjarnason
Valmundur Ingi Pálsson
50 ára
Elín Sigrún Erlingsdóttir
Guðjón H. Sigurgeirsson
Gunnlaugur Atli Sigfússon
Hjörtur Grétarsson
Kári Þór Sigríðarson
Ragnheiður Garðarsdóttir
Siggeir Valdimarsson
Sóley Ragnarsdóttir
Úlfhildur Hlíf Úlfarsdóttir
Þórdís Hafsteinsdóttir
40 ára
Ásmundur Þórhallsson
Björg Alexandersdóttir
Bryndís Brynjólfsdóttir
Dýri Jónsson
Erik Hermann Gíslason
Erling Gestur Kristjánsson
Guðbjörg Arnórsdóttir
Guðmundur F. Eggertsson
Guðmundur Jörundsson
Helga Dögg Jóhannsdóttir
Hildur Ingvarsdóttir
Magnús Guðnason
Mateusz Marcin Wozniak
Ragnheiður Guðjónsdóttir
Ragnhildur B. Bolladóttir
Þorsteinn Bollason
30 ára
Agnieszka Pieczka
Anna Samúelsdóttir
Bragi Eiríkur Jóhannsson
Claire Marie Eleonor
Ranstam
Elisabeth Krueger
Fjóla Sólveig Karlsdóttir
Hjörtur Jóhannsson
Ingunn Ósk Benediktsdóttir
Lea Steinþórsdóttir
Qays Constantine
Stetkevych
Sveinn Guðgeir Ásgeirsson
Vilhjálmur H. Ólafsson
Til hamingju með daginn
40 ára Hrafnhildur býr í
Vogum, lauk BSc-prófi í
ferðamálafræði og BA-
prófi í ensku í Árósum og
er verkefnastjóri á sviði
ferðamála hjá Reykja-
nesbæ.
Börn: Sindri, f. 2000,
Logi, f. 2006, og Emilía
Gló, f. 2008.
Foreldrar: Þóra Braga-
dóttir, f. 1953, og Haf-
steinn Ólafsson, f. 1952,
en þau eiga og starfrækja
Beiti í Vogum.
Hrafnhildur Ýr
Hafsteinsdóttir
Gler, gluggar, glerslípun & speglagerð frá 1922
Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími: 565 0000 | Fax: 555 3332 | glerborg@glerborg.is | www.glerborg.is
Sjálfvirk rennibraut inn á heimili