Morgunblaðið - 22.07.2015, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
ÍSLENSKT TAL
SÝND MEÐ ENSKU TALI Í 2D
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D
MICHELLE ADAM SEAN
MONAGHAN SANDLER BEAN
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
IMDB 46%
Rotten Tomatoes: Einkunn ekki komin.
Paper Towns
Myndin er byggð á metsölubók
Johns Green, sem er einn allra vin-
sælasti höfundur samtímans og
skrifaði meðal annars bókina The
Fault in Our Stars. Hér er á ferð-
inni þroskasaga sem fjallar um
Quentin og nágranna hans Margo,
sem er mjög hrifinn af glæpasögum
og verður viðfang einnar slíkrar.
Margo hverfur nefnilega sporlaust
og skyndilega eftir að hafa farið
með Quentin í næturlangt ævintýri
um heimabæ þeirra. Hún skilur eft-
ir sig torræðar vísbendingar fyrir
Quentin til að leysa, og leitin leiðir
hann af stað í hörkuspennandi æv-
intýraför sem er hvort tveggja í
senn bráðfyndin og hjartnæm.
IMDB: 71%
Rotten Tomatoes: Einkunn ekki kom-
in.
Frumsýningar Þrjár glæsilegar myndir verða frumsýndar í kvöld.
Ted, orðljóti krúttbangsinnsem kviknaði til lífsins ífyrstu kvikmynd SethsMacFarlane (Family Guy)
árið 2012 er nú kominn aftur á hvíta
tjaldið. Eftir þolraunir fyrstu mynd-
arinnar, þar sem Ted og besti vinur
hans, John Bennett (Mark Wahl-
berg), lentu í ýmsum skakkaföllum,
ákvað Ted að kominn væri tími til
þess að giftast ástinni sinni, Tami-
Lynn (Jessica Barth). Sambúðin
reynist ekki eins vel og vonir stóðu
til, og þrætur um peninga og lífið
taka yfir. En þegar allt er að fara í
vaskinn er „töfralausnin“ í nánd:
Hjónakornin ákveða að eignast
barn. Á þeirri mjög svo misráðnu
ráðagjörð er hins vegar einn stór
galli: Ted er ekki með æxlunarfæri,
og því þarf að finna sæðisgjafa, með
góðu eða illu. Þegar allt um þrýtur
reyna þau að ættleiða, en komast þá
að því að Ted er tæknilega séð eign
en ekki lífvera. Við taka málaferli,
þar sem Ted þarf, með aðstoð lög-
fræðings síns, Sam L. Jackson (Am-
anda Seyfried), að sanna það að
hann sé „manneskja“, með öllum
þeim borgararéttindum sem því
fylgja.
Þau sem þekkja til verka Seths
MacFarlane vita að hverju gengið
er, því öll hans aðalsmerki eru á
handriti Ted 2: allt of langir brand-
arar að hætti Family Guy-þáttanna,
„flassbökk“ eða endurlit í stórum
stíl, urmull tilvísana í sjónvarp ní-
unda áratugarins og engu er eirt í
nánast örvæntingarfullri leit Mac-
Farlanes að því sem gæti mögulega
kitlað hláturtaugarnar.
Og á vissan hátt gengur það upp,
því að það er vel hægt að hlæja
mestallan tímann af þeim 115 mín-
útum sem myndin tekur. En á sama
tíma er hláturinn nokkuð holur, því
að kannski fjórði hver brandari er
virkilega fyndinn. Brandaramagn er
ekki sama og gæði.
Þá gengur húmorinn nánast að
öllu leyti út á það að hneyksla sem
mest, líkt og í fyrri myndinni, og fer
það algjörlega eftir áhorfandanum,
og jafnvel því stuði sem hann er í
þegar hann horfir á, hvort að það sé
fyndið eða sorglegt.
Það versta við Ted 2 er hins vegar
ekki tengt húmornum, heldur
grunnhugmyndinni á bak við hand-
ritið, þar sem einhvers konar réttar-
drama er saumað ofan í söguþráð-
inn, ásamt frekar klunnalegum
líkingum á vandamálum Teds við
þau vandamál sem afrískir þrælar
glímdu við í Bandaríkjunum áður en
bundinn var endi á þrælahald þar.
Niðurstaðan er mynd, sem sveiflast
á milli þess að þykjast vera með
boðskap og þess að vera sem mest
hneykslandi í fáránleik sínum.
Fyrsta framhaldsmyndin
Að því sögðu, þá er ýmislegt gott við
Ted 2, sem bjargar henni frá al-
gjörri glötun. Það til dæmis skín í
gegn hvað Mark Wahlberg í hlut-
verki Johns Bennett og Seth Mac-
Farlane ná vel saman, sem útskýrir
aðeins hvers vegna Wahlberg ákvað
að Ted 2 yrði fyrsta framhalds-
myndin sem hann myndi gera á ferl-
inum.
Þá er urmull af skemmtilegum
aukahlutverkum, þar sem til dæmis
Liam Neeson leikur svipað hörkutól
og við þekkjum úr Taken-mynd-
unum, og gjörsamlega stelur sen-
unni. Einnig má nefna Sam Jones,
öðru nafni Flash Gordon, en aðdá-
endur fyrri myndarinnar ættu að
muna eftir honum. Jones fær nokk-
uð stærra hlutverk í þessari mynd
og nýtur þess greinilega að lifa á
fornri frægð.
Það dugar þó skammt til þess að
vega upp á móti sundurlausu hand-
ritinu, sem réttlætir engan veginn
þá tæpu tvo klukkutíma sem það
tekur fyrir Ted að ráða fram úr
vandamálum sínum, ásamt því sem
hann, John og Sam reykja ótæpilegt
magn maríjúana, sannfæra stjörnu-
lögmanninn Patrick Meighan
(Morgan Freeman) um að taka mál
Teds að sér, og bjarga Ted undan
Donny (Giovanni Ribisi), vonda
gaurnum úr fyrri myndinni.
Ted 2 er því alveg þolanleg mynd
til þess að horfa á, en það er fátt
hérna sem bendir til þess að krútt-
bangsinn freðni eigi erindi á hvíta
tjaldið þriðja sinni.
Grínmagn ekki sama og gæði
Þrjú ágæt saman Þau John Bennett (Mark Wahlberg), Ted Clubber Lang (Seth MacFarlane) og Sam L. Jackson (Amanda Seyfried) á góðri stund.
Laugarásbíó, Smárabíó,
Háskólabíó, Sambíóin Egilshöll
og Borgarbíó Akureyri.
Ted 2 bbmnn
Leikstjóri: Seth MacFarlane. Handrit:
Seth MacFarlane, Alec Sulkin og Welles-
ley Wild. Aðalhlutverk: Mark Wahlberg,
Seth MacFarlane, Amanda Seyfried,
Giovanni Ribisi, John Slattery, Jessica
Barth og Morgan Freeman. Bandaríkin
2015, 115 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Lagahöfundurinn Wayne Carson er
látinn 72 ára að aldri. Þrátt fyrir að
hann hafi ekki notið sömu frægðar
og margir þeirra tónlistarmanna
sem hann skrifaði fyrir eru lögin
hans löngu orðin sígild. Always on
my Mind, sem Elvis Presley gerði
frægt er t.d. eftir Carson og einnig
lag Joe Cocker The Letter.
Neil Portnow, forseti National
Academy of Recording Arts and
Sciences, sagði í kjölfar andláts
Carsons að tónlistarheimurinn
hefði misst mikinn hæfileikamann
alltof snemma. Haft er eftir konu
Carsons að hann hafi þjáðst af syk-
ursýki og hjarta- og æðasjúkdóm-
um.
Tónlist Lagasmiðurinn Wayne Carson
samdi m.a. Always on my Mind.
Wayne Carson
látinn, 72 ára
Óskarsverð-
launahafinn
Benicio Del Toro
hefur verið orð-
aður við hlutverk
illmennis í næstu
Stjörnustríðs-
myndinni, Star
Wars: Episode
VIII, sem áætlað
er að komi út ár-
ið 2017.
Hann myndi þá leika á móti Daisy
Ridley, John Boyega og Oscar Isa-
ac, sem lék í nýju myndinni sem
kemur út í desember á þessu ári,
Star Wars: The Force Awakens.
Samkomulag hefur ekki náðst á
milli Disney, sem framleiðir Star
Wars í dag, og Benicio Del Toro en
samkvæmt BBC eru viðræður þeg-
ar hafnar. Áætlað er að Del Toro
muni leika illmennið í næstu mynd
en hann var upphaflega orðaður
við illmennið í síðustu Star Trek-
mynd, Star Trek: Into Darkness.
Það hlutverk endaði þó í höndum
Benedicts Cumberbatch.
Benicio Del Toro
næsta illmenni
í Star Wars?
Benicio Del Toro