Vestfirska fréttablaðið


Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Qupperneq 12

Vestfirska fréttablaðið - 05.04.1995, Qupperneq 12
'-ft Sértilboð Bókhlöðunnar út þessa viku íslenska orðabókin - Verð frá kr. 4.900- ' r ' Arbok F.I. Ystustrandir norðan Djúps - Verð frá kr. 2.830- l BOKHLAÐAN sfmi 3123 I FRÉTTABLAÐIÐ I RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: SÍMI 94-4011 • FAX 94-5225 Málverk og laufaviður í Drymlu - almenn samkeppni um snjó- og íslistaverk May-Lill Þorkels opnar kl. 14 á laugardaginn (8. apríl) sölusýningu á málverkum í húsnæði Drymlu að Skólastíg 3 í Bolungarvík. Þetta er fyrsta sýning hennar á stórum olíumálverkum en viðfangsefnið er lífið og tilveran. Lista- konan, sem er frá Noregi, verður við opnun sýningarinnar og síðan bæði á skírdag og annan laugardag. Sýningin stendur til 22. apríl. Tilraunir prjónahóps með laufaviðarmunstur Á laugardaginn má einnig sjá afrakstur prjónahóps sem starfandi hefur verið innan Drymlu, félags handverksfólks, en hópurinn hefur verið að hanna og prjóna flíkur með laufaviðarmunstri. Slíkt munstur er vel þekkt hér á Vest- fjörðum og kannast eflaust flestir við hinn hefðbundna vestfirska laufaviðarvettling, en hann er prjónaður úr mjög fínu bandi. Drymlufélagar hafa hins vegar prófað að útfæra munstrið í grófara band og ýmsar flíkur, svo sem húfur og peysur auk vettlinga. En auðvitað er sjón sögu ríkari. Hinn hefðbundni vestfirski laufaviðan/ettlingur er að sjálfsögðu einnig til í Drymlu. Drymludagur á skírdag og stoppað í sokka Á skírdag verður Drymludagur. Auk þess sem málverk, prjónles og rúmlega ársgömul saga félagsins verða til sýnis, má fá stoppað í hreinar hosur, hlýða á sögur, Ijóð og tónlist, sjá tekið ofan af ull og hún kembd. Utan dyra er ætlunin að standa fyrir samkeppni um snjó- og íslistaverk. Öllum er heimilt að taka þátt í sam- keppninni og veitir Soffía Hauksdóttir (sími 7121) nánari upplýsingar um fyrirkomulag og skráir þátttöku. Gestum og gangandi gefst kostur á að greiða listaverkunum atkvæði sitt til verðlauna. Laugardaginn 15. apríl kl. 18 verða úrslit snjó- og íslistaverkasamkeppninnar gerð kunn og verð- laun veitt. Opnunartími Drymlu í apríl og maí: Fímmtudaga og föstudaga kl. 14-18 Laugardaga kl. 14-17 í kringum páskana verður aftur á móti opið sem hér segir: Laugardag 8. apríl kl. 14-19 10.-12. apríl kl. 14-18 Skírdag 13. apríl kl. 14-19 Laugardag 15. apríl kl. 14-19 ísafjörður: Tilfæringap í 75 ára Bókhlöðu og Sporthlöðu Verulegar breytingar hafa verið gerðar innanstokks hjá Bókaverslun Jónasar Tómas- sonar og Sporthlöðunni á Isafírði. Verslanirnar voru opnaðar aftur á laugardag- inn, 1. aprfl, og var meðfylgj- andi mynd þá tekin af eig- endum og starfsfólki. Allar innréttingar hafa verið endurnýjaðar og smfðaður hef- ur verið nýr stigi upp á aðra hæðina. Sú nýlunda er einnig orðin. að bókaverslunin er komin niður á jarðhæðina þar sem Sporthlaðan hefur verið fram til þessa en sportvörurnar eru komnar upp á aðra hæð þar sem verslað hefur verið með bækur í nokkuð mörg ár. Bækurnar eru því komnar niður á fyrstu hæð eins og var í árdaga, en þó ekki á sama stað, því að nú eru þær þar sem gamlir Isfirðingar kölluðu Matthíasarbúð [Sveinssonarj. Bókaverslun Jónasar Tóm- assonar er 75 ára á þessu ári og hefur þó líklegast aldrei verið yngri. Eigendur og starfsfólk Bókaverslunar Jónasar Tómassonar og Sporthlöðunnar á ísafirði 1. apríl sl. Frá vinstri: Gunnlaugur Jónasson, Kristín Ólafsdóttir, Margrét B. Gunnarsdóttir, Jónas Gunnlaugsson, Gunnhildur Elíasdóttir, Lára Gísladóttir, Hermann Hákonarson, Sigrún Halldórsdóttir, Elín Björg Þráinsdóttir og Hrafn Snorrason. Breytingar á öldrunar- þjonustu í Bolungarvík - samningur undirritaður sl. sunnudag og þegar hann verður kominn í framkvæmd verða öldrunarmál í Bolungarvík eins og þau gerast best á landinu Frá undirskrift samningsins: Ágúst Oddsson læknir og forseti bæjarstjórnar, Sighvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra og Halldór Benediktsson settur bæjarstjóri. Samningur um breytingar á öldrunarþjónustu í Bol- ungarvík milli heilbrigðis- ráðherra og bæjaryfírvalda var undirritaður sl. sunnu- dag. Samningurinn felur það m.a. í sér, að byggður verður síðari áfangi dvalar- og hjúkrunarheimilis í Bolung- arvík, en fjármálaráðuneytið hefur þegar samþykkt hönn- un hinnar nýju byggingar. Gert er ráð fyrir þvf, að heildarflatarmál hússins verði um 800 fermetrar. Á fyrstu hæð er gert ráð fyrir eldhúsi, borð- stofu og setustofu, á annarri hæð verður hjúkrunardeild fyr- ir sex sjúklinga og á þriðju hæð er gert ráð fyrir dagvistun og vinnusal. í kjallara verður kapella, líkhús og geymslur. Heildarkostnaður er áætlaður 96 milljónir króna með búnaði og frágenginni lóð. Enn fremur er gert ráð fyrir því, að Bolungarvíkurkaup- staður kaupi hluta ríkissjóðs í núverandi húsnæði Sjúkrahúss Bolungarvikur og breyti þeirri stofnun í vistheimili fyrir aldr- aða fyrir allt að 10 vistmenn. Kaupin munu eiga sér stað þegar hin nýja álina dvalar- og hjúkrunarheimilisins verður fokheld, enda verði aðilar á- sáttir um kaupverð. Þegar umræddur samningur verður kontinn til framkvæmda verða öldrunarmál í Bolungar- vfk og heilbrigðisþjónusta fyrir aldraða orðin eins og best gerist í bæjarfélögum á Islandi, segir í tilkynningu frá heilbrigðis- ráðuneytinu og Bolungarvík- urkaupstað. Samningurinn er gerður með þeim fyrirvara, að bæjarsjóður Bolungarvíkur hafi fjárhags- Iegt bolmagn til þess að ráðast í framkvæmdina.

x

Vestfirska fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirska fréttablaðið
https://timarit.is/publication/1149

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.