Feykir


Feykir - 16.04.1986, Blaðsíða 6

Feykir - 16.04.1986, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 8/1986 Húnavaka að hefjast Húnavakan, hin árlega skemmti- og fræðsluvaka Ungmennasambands Austur-Húnvetninga hefst að þessu sinni laugardaginn 19. apríi og stendur í viku. Á Húnavöku verða sýnd tvö leikrit, tveir kórar syngja, málverkasýning og glerlistarsýning verða opnar og hin vinsæla Húsbændavaka verður að venju á síðasta vetrardag. Þá verður sumarskemmtun Grunnskólans á Blönduósi á Húnavöku, þar verða sýndar nokkrar kvikmyndir og dansleikir verða fjögur kvöld. Alls munu fimm hljómsveitir leika á þessum dansleikjum og þá má ekki gleyma að geta um barnaball sem verður um miðjan dag á sumardaginn fyrsta. Á það ball býður Ungmennasambandið öllum börnum eins og venja hefur verið í mörg ár og má fullvíst telja að þar verði mannmargt sem fyrr og dansinn stiginn af innlifun. Kristín og Kristinn á Húsbændavöku Húsbændavaka verður að kvöldi síðasta vetrardags. Þar mun Kristín Ólafsdóttir flytja erindi, Kristinn Sigmundsson syngur við undirleik Sigurðar Daníelssonar og Edda Björgvins- dóttir og Júlíus Brjánsson flytja skemmtiefni. Auk þessa verður heimatilbúið efni sem félagar í Fram, Vorboðanum og Ung- mennafélagi Bólhlíðinga semja og flytja. Kynnir verður Sigmar Jónsson. Tvö leikrit á Húnavöku Tvö leikrit verða sýnd á Húnavöku. Leikfélag Blönduóss sýnir gamanleikinn Vígsluvott- orðið, en verkið var frumsýnt á Blönduósi fyrir nokkru eins og áður hefur verið sagt frá í blaðinu. Hitt leikritið er Skottu- leikur eftir Brynju Benedikts- dóttur og er hún einnig leikstjóri. Það er Revíuleikhúsið, sem sýnir Skottuleik, en leikritið hefur verið sýnt syðra að undanförnu við miklar vinsældir. Skottuleikur er barnaleikrit, sem fjallar um þrjár nútíma- skottur, sem eru að leita sér að húsaskjóli fyrir nóttina. Þetta eru skrýtnar og skemmtilegar skottur, sem syngja og dansa. Skotturnar leika þær Guðrún Alfreðsdóttir, Saga Jónsdóttir og Guðrún Þórðardóttir. Skottu- leikur verður sýndur sunnu- daginn 20. apríl kl. 15.00. Vígluvottorðið verður sýnt að kvöldi sumardagsins fyrsta kl. 21.00 og á laugardagskvöldið 26. apríl kl. 20.30. Glerlist og myndlist Bjarni Jónsson listmálari verður með málverkasýningu á Hótel Blönduósi um Húnavöku. Sýningin verður opnuð þar þriðjudaginn 22. apríl, en laugardaginn 19. og sunnu- daginn 20. apríl verður Bjarni með sýningu á Skagaströnd. Bjarni málar aðallega þjóð- lífsmyndir, flestar frá sjávar- síðunni, en einnig myndir tengdar landbúnaði. Hann hefur tvisvar áður á síðustu árum verið með málverkasýningar á Hótel Blönduósi og hafa þær sýningar verið vel sóttar og margar myndir selst. „Bjarni málar myndir sem fólk skilur” sagði Bessi Þorsteinsson hótelstjóri á Blönduósi í samtali við blaða- mann. Sagði hann það stefnu þeirra á Hótel Blönduósi að vera öðru hvoru með listsýningar og stuðla þannig að aukinni menningu í héraði. Kona Bjarna, Astrid Ellings- sen prjónahönnuður verður með sýningu á kjolum úr listprjóni samhliða sýningu Bjama. Kjólamir verða til sölu. Eins og á öðrum stað er sagt frá verður Samband Austur- Húnvetnskra kvenna með gler- listarsýningu í Félagsheimilinu um Húnavöku. Karlakór og samkór Á Húnavöku skemmta tveir kórar. Karlakór Bólstaðar- hlíðarhrepps verður með söng- skemmtun á föstudagskvöldið 25. apríl. Kórinn á langan starfsaldur að baki og jafnan verið þróttmikið starf innan hans. Þeir félagar eru nýbúnir að halda sína árshátíð. Stjórnandi kórsins er Jón Tryggvason í Ártúnum. Hinn kórinn, sem skemmtir á Húnavöku, er Samkórinn Björk. Sá kór á sér ekki margra ára sögu, en félagar hans hafa tekist á við stór verkefni. Stjórnandi kórsins er Sigurður Daníelsson Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps. „Ég skal segja þér, ungi maður, við höfðum það þannig á samyrkjubúinu”. Sturla Þórðarson og Þorleifur Oskarsson í hlutverkum sínum í leikritinu Vígsluvottorðið, sem sýnt verður tvisvar sinnum á Húnavöku. og undirleikari Elínborg Sigur- geirsdóttir. Kórinn syngur á Húnavöku laugardaginn 26. apríl kl. 14.00. Kvikmyndasýningar og dansleikir Blönduósbíó sýnir margar góðar kvikmyndir um Húna- vöku. M.a. verða sýndar myndirnar Aftur til framtíðar og Undrasteinninn. Þá geta þeir sem dansleiki sækja sífellt heyrt í nýjum hljómsveitum. Á unglinga- dansleiknum laugardaginn 19. apríl leikur hljómsveitin Kórus, en hana skipa nokkrir ungir piltar frá Blönduósi. Önnur, en nafnlaus hljómsveit leikur einnig á þessum dansleik, en þá hljómsveit skipa ögn eldri piltar, sem eru að komast af tánings- aldrinum. Síðasta vetrardag leikur hljóm- sveitin Lexía fyrir dansi. Miðaldamenn frá Siglufirði leika á Föstudagskvöld og Hljómsveit Geirmundar Valtýs- sonar á laugardagskvöld. List og aftur list Glerlistarsýning Samband Austur-Húnvetnskra kvenna stendur fyrir sýningu á glerlist um Húnavöku. Sýningin er frá Gler í Bergvík á Kjalarnesi og eru munimir eftir listamennina Sigrúnu O. Einarsdóttur og Sören S. Larsen. Þetta er í fyrsta sinn, sem þessir listamenn sýna á landsbyggðinni og verður þetta yfirlitssýning frá verkstæði þeirra og stök myndverk. Þarna mun gefa að líta nytjalist og yfir í skúlptúr og verða listaverkin til sölu. Sýningin verður á eftir hæð í Félagsheimilinu og verður hún opnuð síðasta vetrardag. Það hefur verið nær árlegur viðburður nú um nokkurt skeið að Samband Austur-Húnvetnskra kvenna standi fyrir listasýningu í einhverri mynd. Því hafði blaðamaður samband við Elisabetu Sigurgeirsdóttur á Blönduósi og spurði hana hvenær þessi þáttur í starfi sambandsins hefði byrjað. Stór listasýning 1973 „Það var árið 1973, sem við stóðum fyrir mjög stórri lista- sýningu á Blönduósi” sagði Elísabet. „Það var mjög víðtæk sýning, þar sem sýnd voru málverk, svartlist, höggmyndir, húsagerðarlist, listvefnaður og tónlist var einnig á þessari listkynningu. Þessi sýning þótti takast mjög vel og var fjölsótt, enda um algera nýbreytni í Húnaþingi að ræða. Þetta framtak okkar vakti mikla athygli en fram að þeim tíma höfðu aðeins verið haldnar tvær málverkasýningar á Blönduósi eftir því sem ég kemst næst. Á þessari sýningu voru sýnd verk um 30 listamanna, auk þess, sem tónlistarmenn lögðu sitt af mörkum. ier í BERGVÍK Listaviðburðir árlega Elísabet sagði að þessi stóra sýning hefði verið upphafið að mikilli listkynningu í Húnaþingi. Síðan hefði árlega verið ein eða fleiri listasýningar á Blönduósi. Ymist hefði kvenfélagasambandið átt þar hlut að, önnur félaga- sambönd eða einstaklingar. Eftir þessa fyrstu listkynningu hafa kvenfélagskonur oftast verið með listsýningar um Húnavöku. Venjulega hefur verið lögð áhersla á að kynna eina listgrein í einu, t.d. var eitt sinn Batiksýning, í annað sinn GraFiksýning og eitt sinn sýning á vatnslitamyndum. Kínversk sýning í vetur stóð Sambandið síðan fyrir kínverskri listsýningu og er það í fyrsta sinn, sem þær fá sýningu erlendis frá. Við þessa sýningu aðstoðuðu bæði Kínverska sendiráðið og Kínversk-Islenska menningarfélagið, og eins lögðu einstaklingar í Húnaþingi til muni á sýninguna. Má þar til nefna forkunnarfagurt borð, sem hjón á Blönduósi eiga og eins léði einn Blönduósingur Rauða kverið á sýninguna. Þessa kínversku sýningu sóttu um 360 manns, en hún var aðeins opin í tvo daga. Merkilegt menningarstarf „Ég tel þetta mjög merkilegt menningarstarf, sem við höfum staðið fyrir” sagði Elísabet Sigurgeirsdóttir í samtali við blaðamann. „Þessar sýningar okkar hafa haft mjög mikil áhrif, bæði í þá veru að nú er orðið nokkuð algengt að hingað komi listamenn og sýni verk sín og eins hitt að þessar sýningar hafa orðið til þess að fólk fer nú meir á listsýningar en áður var, t.d. ef það er á ferð í Reykjavík. Þá er ég ekki í nokkrum vafa um að þetta hvetur fólk til þess að reyna að gera ýmsa muni sjálft og er það vel”.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.