Feykir - 16.04.1986, Blaðsíða 12
16. apríl 1986
Feykir
8. tbl. - 6. árg.
Auglýsingasúni Feykis
er 5757
Rausnarleg gjöf tQ
Öldrunarheimilisins
KomáKEM
Að því best er vitað hefur Morgunblaðið verið eitt blaða sem haft
hefur flugvél til umráða við fréttaöflun, en nú hefur orðið breyting á.
Siðastliðinn fimmtudag brá Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum,
blaðamaður Feykis sér yfir á Krókinn með nýjustu fréttir úr Húnaþingi
auk þcss sem hann aðstoðaði við upplímingu efnis um Húnavöku.
Magnús hefur að undanförnu verið að læra flug og er nú um þessar
mundir að Ijúka einkaflugmannsprófi.
Fimmtudaginn 3. apríl sl. hélt
Slátursamlag Skagfirðinga h.f.
aðalfund sinn í matsal félagsins
á Eyri.
A fundinum voru lagðir fram
endurskoðaðir reikningar fyrir
árið 1985. Reikningarnir báru
með sér að hagur félagsins er
góður og verulegur hagnaður
varð á rekstrinum sl. ár.
Undanfarin ár hafa félagsmenn
oftast fellt tillögur um arð-
greiðslu, hafa talið álitlegra að
SkagaJjörður:
Almannavamaæflng
Miðvikudaginn 9. apríl sl. var
haldin almannavarnaæfing í
Skagafirði sem skipulögð var af
Almannavarnanefnd ríkisins. í
Aðalfundur Mjólkursamlags Skagfirðinga
Föstudaginn 11. apríl var
aðalfundur Mjólkursamlags Skag-
firðinga haldinn í Héðinsminni í
Blönduhlíð.
Á fundinum kom fram að
innvegin mjólk hjá Mjólkur-
samlaginu nam 9202,097 ltr. og
hafði aukist um 627,888 Itr. eða
7,32% á milli ára. Innleggjendur
mjólkur árið 1985 voru 160 og
meðalinnlegg var 57513 ltr. og
var aukning sem nam 2550 ltr.
Meðal fita í prósentum var
3,785. Hvað flokkunina varðar
þá var 97,4% mjólkurinnar í 1.
tlokk. Rekstur Mjólkursamlags-
ins gekk vel á árinu og eftir að
bændum hafði verið greitt fullt
grundvallarverð, kr. 20,8836.
fyrir pr. ltr., nam hagnaður
70.101,00 kr. Samþykkti
fundurinn að rekstarhagnaður
mjólkursamlagsins yrði gefinn í
söfnun til kaupa á rúmum í
öldrunardeild Sjúkrahúss Skag-
firðinga.
Á fundinum var einnig
samþykkt að verðfellingafé
ársins 1985 verði notað til
kynningar- og auglýsingastarfsemi
Blönduós:
Bylting í atvinnulífinu
á mjólkurvörum. Verðfellinga-
fénu verði ráðstafað af hags-
munafélagi kúabænda í Skaga-
firði í samráði við samlagsráð.
Hafa forráðamenn Mjólkur-
samlags Skagfirðinga hugsaðsér
að verja hluta þessa fjár.til að
gefa mjólk í skólana síðustu
tvær kennsluvikur vorsins. Einnig
er í athugun að greiða niður
mjólk til leikskóla.
Á fundinum var og samþykkt
tillaga þar sem því var beint til
ríkisstjórnarinnar að láta kanna
möguleika á því að nýta
einungis íslenskar mjókurafurðir
til matvælaframleiðslu innan-
lands og hætta þar með
innflutningi erlendra mjólkur-
afurða.
(s.þ.)
æfingunni tóku þátt björgunar-
sveitir frá Sauðárkróki og
Hofsósi, lögregla og sjúkra-
húsið, auk nemenda í Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki, sem
voru í hlutverki hinna slösuðu.
Æfingin fólst í því að sett voru á
svið slys á þremur stöðum
samtímis og var fjöldi hinna
slösuðu nokkuð á sjöunda
tuginn.
Almannavarnanefnd Sauðár-
króks hafði yfirstjóm björgunar-
aðgerða með höndum. I samtali
við nýskipaðan formann hennar
Hallgrím Ingólfsson bæjartækni-
fræðing kom m.a. fram að æfing
þessi hafði kvorki tekist betur né
verr en aðrar svipaðar æfingar,
sem haldnar hafa verið hér á
landi. Hallgrímur sagði enn-
fremur. „Auðvitað fór ýmislegt
úrskeiðis, en þaðsem háði okkur
þó fyrst og fremst varfjarskipta-
leysið við slysstað. Það verður
eitt af okkar fyrstu verkefnum
að kippa því í liðinn, bæði að afla
nauðsynlegs búnaðar og velja
honum fastan samastað”.
G&j)
í síðustu viku ákvað fjármála-
ráðherra hverjir skyldu fá að
kaupa raðsmíðaskipin, sem fyrr
í vetur voru boðin til sölu.
Ákveðið var að annað skipið
sem smíðað var í Slippstöðinni á
Akureyri skyldi koma í hlut
Blönduósinga. Fulltrúar frá
Særúnu hf. og Blönduóshreppi
fóru síðan til Akureyrar í gær,
þriðjudag til að ganga frá
samningunum um skipakaupin.
„Það er almenn ánægja hér á
Blönduósi með þessi skipakaup”
sagði Hilmar Kristjánsson odd-
viti á Blönduósi í samtali við
blaðamann. „Við fengum í
okkar hlut það skipiðsem okkur
hentar best, og við vildum helst.
Það er Ijóst að þessi kaup munu
hafa geysileg áhrif á atvinnulíf
hér á staðnum og má raunartala
um byltingu í því sambandi.
Áætlað er að útgerð skipsins og
vinnsla á afla skapi um 30 störf á
Blönduósi. í sama streng tók
Kári Snorrason franikvæmda-
stjóri Særúnar hf. og benti hann
á að þetta skip gerði meira en að
tvöfalda skipastól Blönduós-
inga að lestafjölda.
Ákveðið er að stofna hluta-
félag um útgerð skipsins. Aðilar
að því verða Blönduóshreppur,
Særún hf. og íslenska útflutn-
ingsmiðstöðin, sem frá upphafi
hefur verið hluthafi í Særúnu hf.
Hugsanlegt er að fleiri aðilum
verði gefinn kostur á að gerast
hluthafar.
Tilboð Blönduósinga í skipið
var 173,4 millj. kr. Skipið er 300
lestir að stærð. Það verður búið
fullkomnum tækjum til að verka
og frysta rækjuna um borð. Búist
er við að það verði afhent í
september og mun þá strax
halda til veiða. (mó)
Blönduós:
Erfiðleikar hjá
Pólarpijóni
- lausn í sjónmáli?
í síðustu viku var starfsfólk
hjá Pólarprjóni hf. á Blönduósi
kallað til fundar og því tilkynnt
að ef ekki rættist úr með
fjárhagsstöðu fyrirtækisins gæti
það átt von á því að segja þyrfti
upp fólki og jafnvel hætta
starfsemi fyrirtækisins.
Síðan þá hafa staðið yfir mikil
fundahöld um málefni fyrirtækis-
ins og m.a. var búist við því í
upphafi vikunnar að nefnd
f'ulltrúa fyrirtækisins, Álafoss,
Blönduóshrepps og Byggða-
stofnunar, sem alllengi hefur
leitað lausnar á málum
fyrirtækisins, skilaði áliti, og
stjórn Byggðastofnunar mun
hafa tekið málið fyrir í gær. Að
sögn Hilmars Kristjánssonar
oddvita á Blönduósi virðist nú
vera fundin lausn á vanda
fyrirtækisins þó hann gæti ekki á
þessari stundu greint frá því á
hvern hátt sú lausn er.
(mó)
I EYKIR spyr á
Sauðárkróki
Hvað gerðir þú þér til upp-
lyftingar í Sæluviku?
efla félagið betur áður.
Nú bar stjórnin fram tillögu
um að enginn arður verði
greiddur en Öldrunarnefnd
Skagafjarðar færðar kr. 200.000,00
í söfnun sem Lionsklúbbur
Sauðárkróks stendur fyrir um
þessar mundir. Þessi tillaga var
samþykkt í einu hljóði. Þá var
ennfremur samþykkt tillaga frá
stjórninni að gefa út jöfnunar-
hlutabréf að því marki sem lög
leyfa.
Hreinn Hreinsson:
„Fór á Spanskfluguna, mjög
gott”:
Óskar Jónsson:
„Ég sá Rauðhóla Rannsý, fór á
tónleika með Skagfirsku söng-
sveitinni og fór svo að borða á
Mælifelli”.
Jóhanna Karlsdóttir:
„Ég gerði nú sitt af hverju, t.d.
fór ég á 7 stelpur, Spansk-
fluguna, á tónleika Skagfirsku
söngsveitarinnar og svo að
lokum þá dreif ég mig á
gömludansaball”.
Heimir Þorsteinsson:
„Ég ligg yfir stærðfræðinni”.
Þorsteinn Erlingsson:
„Ég dreypti aðeins á brennivíni og
eltist við kvenfólk”.