Feykir - 16.12.1987, Qupperneq 6
6 FEYKIR 42/1987
Austur-Húnavatnssvsla:
Safnamál í brenmpunktí
í Austur - Húnavatnssýslu
fer nú fram nokkur umræða
um safnamál innan héraðsins.
Stefnt er að almennum fundi
til þess að ræða þessi mál í
janúar og er hann boðaður af
nefnd á vegum Sambands
austurhúnvetnskra kvenna.
Þar verður kannaður áhugi
fyrir að unnið verði sameigin-
lega að uppbyggingu safns
eða safna fyrir héraðið
og/eða að fundinn verði einn
staður bæði fyrir safnahús,
varðveislu gamalla húsa,
atvinnutækja og annarra
minja. Þessi fundur gæti
orðið undirbúningsfundur að
stofnun áhugamannafélags,
og/eða sjálfseignarstofnunar
um safn, með þátttöku
sveitarfélaga, félagasamtaka
og einstaklinga.
Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi hefur verið starf-
rækt í mörg ár, en húsnæði
þess er löngu orðið of lítið.
Þar er ekki hægt að taka
við stórum hlutum nema til
geymslu og vegna þess hve
húsnæðið er lítið er erfitt að
sýna það stærri hópum.
Að Reykjum í Hrútafirði
hefur um árabil verið rekið
myndarlegt byggðasafn, sem
sameiginlega var byggt upp
af Strandamönnum, Vestur -
Húnvetningum og Austur -
Húpvetningum.
A Skagaströnd er starfandi
sjóminja- og munasafnsnefnd
og eiga þar sæti fulltrúar frá
kvenfélaginu Einingu og
hreppsnefndinni. í þeirri
nefnd eru uppi áform um að
hefja framkvæmdir við Bjarma-
nes (gamla barnaskólann), til
þess að húsið geti hýst sjó- og
minjasafn á sómasamlegan
hátt.
Þetta gamla hús keypti
hreppurinn fyrir nokkrum
Nú er unnið að gerð nýs
aðalskipulags fyrir Skaga-
strönd og er stefnt að því að
lokatillaga liggi fyrir 1. mars
n.k. Það er Ragnar Gunnars-
son arkitekt á Akranesi, sem
vinnur að gerð skipulagsins
fyrir hreppsnefndina á Skaga-
strönd. Gildandi aðalskipulag
er síðan 1975.
árum í þeim tilgangi að þar
yrði komið upp safni.
Þorsteinn Gunnarsson arki-
tekt hefur skoðað húsið og
tekið að sér að vera sjóminja-
og munanefndinni til ráðu-
neytis við að koma húsinu í
upprunalegt horf. Gerð hefur
verið gróf áætlun um það
verk, sem byggir á því að
næsta sumar verði húsið
tekið í gegn að utan, en
sumarið 1989 verði gengið í
aðalatriðum frá því að innan
þannig að árið 1990 verði
hægt að byrja rekstur
safnsins.
í síðasta mánuði var
haldinn almennur kynningar-
fundur um þá tillögu, sem nú
liggur fyrir að hinu nýja
skipulagi. Að sögn Guð-
mundar Sigvaldasonar sveitar-
stjóra líst fólki vel á þau
drög og hafa ekki komið
fram miklar athugasemdir.
Skagaströnd:
Nýtt aðalskipulag
Séð yfir Skagaströnd.
Skagaströnd:
HoUenskur sjúkraþjálfari
væntanlegur
Upp úr áramótum er
væntanlegur hollenskur sjúkra-
þjálfari til starfa á Skaga-
strönd. Það er hreppsnefndin,
sem hefur forgöngu um
ráðningu þessa manns, sem
er 22 ára karlmaður, ókvæntur.
Að sögn Guðmundar Sig-
valdasonar sveitarstjóra er
talin mikil þörf fyrir mann
með þessa menntun á
staðnum, bæði til þess að
þjálfa þá sem við veikindi og
afleiðingar slysa hafa átt við
að stríða og eins til þess að
leiðbeina fólki við vinnu
þannig að minni hætta sé á
ýmiss konar atvinnusjúkdóm-
um. Guðmundur sagði að mikill
skortur væri á menntuðum
sjúkraþjálfurum hér á landi.
Því hefði verið ákveðið að
leita fyrir sér í Hollandi, en
þar er mikið framboð af
sjúkraþjálfurum. Þegar eru
nokkrir hollenskir sjúkra-
þjálfarar komnir til starfa
hér á landi.
Undanfarna mánuði hefur
íslenskur sjúkraþjálfari starfað
við heilsugæsluna á Blönduósi,
og haft mikið að gera. Þá er
verið að athuga með ráðningu
hollensks sjúkraþjálfara til
Hvammstanga úr þeim hópi,
sem sótti um vinnu á
Skagaströnd.
Úrvalið hefur
aldrei verið meira
Full búð af nýjum skóm
Dömuskór - Herraskór
Barnaskór - Inniskór
Leðurstígvél -
Jólatilboð
Kuldaskór
á alla fjölskylduna
er góð jólagjöf
20% afsláttur af öllum
kuldaskóm fram til jóla
Það hefur aldrei verið til
meira úrval
Töskur - Hanskar - Veski
Ferðabarir
Sjón er sögu ríkari
Verið velkomin
Ódýrar töskur og bakpokar
með myndum af Mikka og
Mínu fyrir krakka
Verslið í sérverslun
SKÓBÚÐ SAUÐÁRKRÓKS
Aðalgötu 10 - Sími 5405