Feykir - 16.12.1987, Blaðsíða 7
42/1987 FEYKIR 7
Skagaströnd:
Þórdís spákona
Spákonufell.
A Skagaströnd gefur hreppur-
inn út fréttabréf, sem ber
nafnið Þórdís spákona. A
þessu ári hefur það komið
reglulega út á þriggja
mánaða fresti ogerþargreint
frá ýmsu, sem er að gerast á
vegum hreppsnefndarinnar
auk ýmiss annars efnis, sem
erindi á til Skagstrendinga.
I síðasta blaði er pistill,
sem ber yfirskriftina „Hver
var Þórdís spákona?” Pistillinn
er á þessa leið:
Auðvitað vita allir hver
Þórdís spákona var, eðahvað?
Það var landnámskonan á
Spákonufelli, var pað ekki? í
tímariti Stofnumr Ama Magnús-
sonar, sem heitir Gripla, segir
Bjarni nokkur Einarsson svo
frá:
,,Það var seint í ágúst-
mánuði undir kveld (1975) að
ég stýrði bíl norður Skaga-
strönd og var ætlunin að leita
náttstaðar í Höfnum. Með
mér var konan mín, Sigrún
Hermannsdóttir, og systir
hennar, Björg. Farið var að
skyggja, og framundan bar
hátt dimmt fjall við bláan
himinn. Við vorum ókunn, en
vissum að leið okkar mundi
innan skamms liggja meðfram
Spákonufelli, og við gátum
okkur til að þetta væri fjallið.
Allt í einu hrópar Björg:
,,Sjáið þið konunal", og
bendir upp á fjallið. Við konan
mín sáum jafnskjótt að á
endilangri fjallshlíðinni virtist
liggja konulíkneski, efst var
andlit með skýrum dráttum,
reglulegum og virðulegum, og
niður eftir mótaði fyrir öðrum
likamshlutum allt niður á tær.
Virtist okkur þessi sýn taka af
Arnar HU 1 skip Skagstrendings h.f. á Skagaströnd.
Húnaflói:
Rækjustofrann að
stækka
í vetur má veiða 750 tonn
af rækju í Húnaflóa, en það
er 250 tonnum meira en í
fyrra. Að sögn Heimis L.
Fjelsteds eru menn almennt
bjartsýnir á að rækjustofninn
í Flóanum nái sér á næstu
tveimur árum.
Þegar mest var mátti veiða
3600 tonn af rækju í
Húnaflóa og hafa fjölmargir
haft atvinnu af þessum
veiðum og vinnslu úr aflanum
undanfarin ár. Því varð það
mikið áfall þegar rækjustofninn
datt svo niður að ekki voru
leyfðar veiðar á nema 500
tonnum í fyrravetur.
- metár í vinnslu -
Rækjuvinnslur við Flóann
hafa í framhaldi af þessu lagt
stóraukna áherslu á að fá
úthafsrækju til vinnslu. Þannig
verður yfirstandandi ár metár
hjá Rækjuvinnslunni á Skaga-
strönd hvað aflamagn til
vinnslu varðar og verða þar
alls unnar um 1650 lestir af
rækju á árinu. Sömu sögu er
að segja frá Blönduósi. Að
sögn Kára Snorrasonar fram-
kvæmdastjóra Særúnar hf.
verða unnin um 1300 tonn af
rækju á þessu ári hjá
fyrirtækinu og er stór hluti af
þeim afla veiddur af nýja
úthafstogaranum Nökkva.
Hjá Rækjuvinnslunni á Skaga-
strönd vinna að jafnaði um
25 manns og um 20 hjá
Særúnu á Blönduósi.
Þeim Heimi og Kára bar
saman um það að erfitt væri
að reka rækjuvinnslu um
þessar mundir vegna þess
hve kostnaðarhækkanir innan-
lands hafi verið miklar að
undanförnu en verðlag á
vörunni erlendis lækkað um
35% frá í fyrra. Verðlag á
skelfiski er hins vegar orðið
svo lágt erlendis að veiðar og
vinnsla á hörpudiski liggur
alveg niðri.
allan efa um fjallið."
Og síðar:
„Eftir að þetta var skrifað
átti ég tal við Þórhall
Vilmundarson um nafnið
Spákonufell. Hann hafði þá(í
fyrirlestri) getið þess ti/að spá
væri í frummerkingu sinni, að
sjá (langt frá sér) og horfa á,
sbr. þýska sagnorðið spáhen
og danska spejde, sem er af
sömu rót. Spáfell taldi
ÞórhaUur hafa getað breyst í
Spákonufell þá er frummerking
fyrra liðs hefði verið farin að
fyrnast og fólk þá leitað
skýringa á nafninu eða bætt
um af ímyndunarafli sínu.
Hitt hefði og getað stuðlað að
þeirri þróun, að menn hefðu
þóst sjá konumynd ífjallinu.”
Þá höfum við það.
Innritun í Fjölbrautaskólann á
Sauðárkróki fyrir vorönn 1988
n ]][[ n stendur yfir til mánudagsins
II í JJ 21. des. n-^- ‘ Heimavist og
mötuneyti er við skólann.
Skólinn býður upp á nám á eftirtöldum brautum:
STYTTRI NÁMSBRAUTIR:
Fiskvinnslubraut 1 (2 annir)
Undirbúningur fyrir nám i fiskiðn í Fiskvinnsluskólanum.
Fiskvinnslubraut 2 (4 annir)
Undirbúningur fyrir nám í fisktaekni i Fiskvinnsluskólanum.
Heilsugæslubraut (4 annir)
Undirbúningur undir aðstoðarstörf við hjúkrun, veitir aðgang
að Sjúkraliðaskóla [slands. Mögulegt framhald á náttúru-
fræðibraut.
Sjúkraliðabraut (6 annir)
Útskrifar sjúkraliða í samvinnu við viöurkenndar sjúkrastofn-
anir. Mögulegt framhald á náttúrufræöibraut.
Uppeldisbraut (4 annir)
Býr nemendur undir nám og störf á vettvangi félags- og
uppeldismála, m.a. í Fósturskóla íslands. Mögulegt framhald
á félagsfræðabraut.
Viðskiptabraut (4 annir)
Undirbúningur undir almenn verslunar- og skrifstofustörf,
lýkur með verslunarprófi. Mögulegt framhald á hagfræöa-
braut.
Vélstjórabraut 1. stigs - Vélavörður (1 önn).
STÚDENTSPRÓFSBRAUTIR (8 annir):
Veita nauðsynlegan undirbúning til náms á háskólastigi. Á
öllum þessum brautum er lögð mikil áhersla á nám í íslensku,
ensku og stærðfræöi, en á hverri braut eru ákveðnar greinar
sem einkenna brautina, hér nefndar innan sviga.
Félagsfræðabraut
(Sálfræði, uppeldisfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði og
saga).
Hagfræðabraut
(Hagfræði, bókfærsla og aðrar viðskiptagreinar).
Náttúrufræöibraut
(Stærðfræði, efnafræði og liffræði).
Nýmálabraut
(Enska og önnur erlend mál).
Tæknibraut
Einungis ætluð þeim er lokið hafa iðnnámi. Undirbúningur
fyrir tækniskóla eða verkfræðinám. Lýkur með tæknistúdents-
prófi.
IÐNFRÆÐSLUBRAUTIR:
Grunndeild málmiðna (2 annir)
Lýkur með prófi sem veitir styttingu á námssamningi i
málmiðnum.
Grunndeild rafiðna (2 annir)
Lýkur með prófi sem er forsenda fyrir námssamningi i
rafvirkjun, rafvélavirkjun og rafeindavirkjun.
Samningsbundiö iönnám
Almennar greinar og bóklegar faggreinar fyrir samnings-
bundna iðnnema í bifvélavirkjun, húsasmíði, húsgagnasmíði,
múrsmiði, rafvélavirkjun, rafvirkjun, rennismiði og vélsmiði
(aflvélavirkjun).
MEISTARASKÓLI:
Framhaldsmenntun fyrir húsasmiði, múrara og pipulagninga-
menn til meistararéttinda.
ÖLDUNGADEILD - KVÖLDSKÓLI:
( boði eru áfangar úr dagskóla, þegar næg þátttaka fæst, auk
þess ýmis námskeið í hagnýtum og vinsælum greinum, svo
sem saumaskap, myndmennt, trjárækt og ættfræði.
Allarnánari upplýsingar um námsbrautir fástá
skrifstofu skólans, simi 95-5488.
Skólameistari