Feykir - 16.12.1987, Qupperneq 20
20 FEYKIR 42/1987
Siglufjörður:
Loðna til Sigluflarðar
Gestur Þorsteinsson.
Sauðárkrókur:
Gestur ráðinn
bankastjóri
Um síðustu helgi voru
komin 55 þúsund tonn af
loðnu til Síldarverksmiðju
ríkisins á Siglufirði sem er
helmingi minna magn en
Innbrotið í Leikskólann
Furukot er enn óupplýst að
sögn lögreglunnar og er
málið í rannsókn. Sömu sögu
má segja um rúðubrotin í
Sauðárkrókskirkju og víðar
í bænum, sem framin
voru fyrir nokkru. Að sögn
Björns Mikaelssonar yfir-
lögreglúþjóns hafa borist
ábendingar til lögreglunnar
varðandi rúðubrotin, en
ekkert hefur sannast
ennþá. Björn sagði að mikið
hafi borið á því síðan jólatrén
á sama tíma í fyrra. Það var
létt yfir Þórhalli Jónssyni
verksmiðjustjóra S.R. þegar
blaðið hafði samband við
hann á föstudaginn, en þá
komu upp í bænum að
perum af þeim væri stolið.
T.d. voru 3 perur eftir á trénu
við Bamaskólann eftir síðustu
helgi, en á það tré voru settar
um 50 ljósaperur. Einnig
hefur verið talsvert um
perustuld við tré Kaupfélagsins
við Skagfirðingabúð.
Það er orðið mjög slæmt
þegar skemmdarfýsn er
orðin það mikil hjá fólki að
saklaus jólatré verða fyrir
barðinu á henni. Slíkan
fíflaskap þarf að stöðva.
höfðu loðnubátarnir streymt
inn til Siglufjarðar alla
vikuna og síðustu loðnu-
þrærnar voru um það bil að
fyllast. Að sögn Þórhalls
hefur verið brætt á fullum
afköstum 1500 tonn á
sólarhring síðustu vikur.
Fyrirhugað er að hætta
bræðslu 2-3 dögum fyrir jól
og byrja aftur fljótlega eftir
áramótin.
Við bræðsluna vinna 36
menn á tvískiptum vöktum,
hvor vakt er átta klukkustundir.
„Við vonumst auðvitað eftir
að fá góðan slurk af loðnu
eftir áramótin sagði Þórhallur,
það veltur þó talsvert mikið á
hvað loðnan verður komin
austarlega en aðalveiðisvæðið
undanfarið hefur verið við
Kolbeinsey og meðan loðnan
veiðist þar erum við hér á
Siglufirði öruggir með veru-
legan hluta af veiðinni”.
Bankaráð Búnaðarbanka
íslands ákvað á dögunum að
Gestur Þorsteinsson tæki við
stjórn útibús bankans á
Sauðárkróki.
Gestur sem starfað hefur í
útibúinu til fjölda ára hafði í
mörg ár verið aðstoðarmaður
Ragnars heitins Pálssonar,
sem stjórnað hafði útibúinu
frá því það var stofnað á
sjöunda áratugnum er
bankinn yfirtók eignir
sparisjóðsins. Gestur var af
mörgum talinn líklegur
arftaki hans og var hann eini
umsækjandinn um stöðuna.
Sauðárkrókur:
Innbrot og rúðubrot óupplýst
- mikið um peruþjófnað af jólatrjám -
Sauðárkrókur:
Gránufélagið hefur starfsemi sína
Meðlimir Gránufélagsins. Frá vinstri: Gylfi Arnbjörnsson, Jón Gauti Jónsson, Unnur
Kristjánsdóttir, Margrét Soffía Björnsdóttir og Arnþrúður Ösp Karlsdóttir. A myndina vantar
Sigurlaug Elíasson.
Um síðustu helgi opnaði
Gránufélagið starfsemi sína
formlega í gamla skrifstofu-
húsnæði K.S., Gránu. Félag
þetta samanstendur af nokkrum
aðilum sem reka starfsemi
sína og þjónustu sjálfstætt í
húsnæðinu og kennir þar
ýmissa grasa.
Við opnunina rakti Jón
Gauti Jónsson sögu Gránu
frá upphafi og til dagsins í
dag í stuttu máli, og bauð
gesti velkomna að litast um í
húsinu og kynna sér starfsemina.
Skal hér sagt frá því helsta
um hvern aðila.
Iðnráðgjafi Norðurlands
vestra, Unnur Kristjánsdóttir,
er þarna með skrifstofu og
mætir á hana einu sinni í viku,
á þriðjudögum kl. 9-16.
Reynslan hefur sýnt, að mikil
og náin tengsl við fyrirtæki er
forsenda góðs árangurs.
Opnun skrifstofu hér á
Sauðárkróki myndi bæta slík
tengsl til muna og bæta þar
með þjónustuna í Skagafirði.
Gylfi Ambjömsson cand.
merc. í rekstrar- og svæðis-
hagfræði er með ráðgjafar-
fyrirtæki sem nefnist Hug-
myndir sf. Fyrirtækið veitir
annars vegar sérfræðilega
ráðgjöf í gerð byggðaáætlana,
þar sem sú reynsla og
þekking sem fyrir er á
hverjum stað er höfð að
leiðarljósi og hins vegar
alhliða ráðgjöf og aðstoð við
rekstur einstakra fyrirtækja.
Einnig er boðið upp á gerð
ítarlegra úttekta á vinnu-
markaði og atvinnuuppbygg-
ingu bæja og héraða, til þess
að skilgreina nákvæmlega
séreinkenni og forsendur
fyrir framtíðar atvinnuþróun.
I því sambandi hefur verið
unninn mjög ítarlegur svæða-
skiptur gagnagrunnur, Sværan,
sem hefur að geyma atvinnu-
skiptingu hvers sveitarfélags
á landinu fyrir árin 1972 -
1985.
Við hliðina á Hugmyndum
sf. er þjónustufyrirtækið í
handraðanum. Eigandi þess
er Jón Gauti Jónsson
landfræðingur. Jón vann hjá
Náttúruvemdarráði á ámnum
1977 - 1985, þar af þrjú
síðustu árin sem framkvæmda-
stjóri. Sat á þeim tíma í
Ferðamálaráði Islands. Hann
hefur kennt við Fjölbrauta-
skólann á Sauðárkróki frá
haustinu 1985 og árið eftir
var hann ritstjóri Feykis. Á
þessu ári hefur Jón unnið að
ýmisskonar bæklin^agerð í
samstarfi við SAST sf.
Starfsemi fyrirtækisins í
handraðanum snýst um gerð
upplýsinga- og auglýsinga-
bæklinga, fjölmiðlun og
ferðaþjónustu, s.s. gerð ferða-
mannabæklinga.
Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
hefur komið sér upp vinnu-
aðstöðu í suðurenda Gránu,
þar sem hún mun þrykkja
sáldþrykk, mála á efni og
vinna ýmsa muni úr leðri.
Einnig býður hún félagasam-
tökum og fyrirtækjum upp á
að þrykkja á búninga, veifur,
fána o.fi.
Við hliðina á Ösp hefur
Margrc Soffía Björnsdóttir
aðstöðu, þar sem hún hyggst
vinna í grafik (svartlist) og
eru verk hennar til sölu.
Margrét útskrifaðist sem
grafiker árið 1984 frá
Kaupmannahöfn og hefur tekið
þátt í samsýningu bæði
innanlands og erlendis.
Að lokum skal telja
Sigurlaug Elíasson sem flytur
vinnuaðstöðu sína í Gránu í
næsta mánuði. Sigurlaugur
útskrifaðist úr málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1983 og hefur haldið
þrjár einkasýningar á málverk-
um og grafík og tekið þátt í
samsýningum.
Þá hafa verið taldir upp
þeir aðilar sem teljast til
Gránufélagsins og er ekki að
efa að sú starfsemi sem þarna
hefur verið komið á fót er
afar góð nýting á gömlu
húsnæði sem Grána er. Þetta
mun efia gamla miðbæ
Sauðárkróks til muna og
veitti ekki af. Segja má að
gamla Grána iði af lífi því
undir starfsemi Gránufélagsins,
á neðri hæðinni, er komin
gullsmíðastofan Gallerí Grána,
hárgreiðslustofan Hár-List
og tækni- og ráðgjafarþjónustu-
fyrirtækið Frumverk.
Feykir óskar öllum þessum
aðilum velfarnaðar í fram-
tíðinni og megi starfsemi
þeirra dafna og efla upp-
byggingu gamla miðbæjarins
á Sauðárkróki.