Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 50
Haiden Palmer efst í öllu
og bætti stigametið
Haiden Palmer, bandarískur
leikstjórnandi nýkrýndra íslands-
meistara snæfells í domino’s-deild
kvenna, setti nýtt stigamet í loka-
úrslitum kvenna í ár. Hún skoraði
134 stig í leikjunum fimm og bætti
22 ára stigamet olgu færseth í
lokaúrslitum kvenna um
23 stig. Palmer var efst
hjá snæfelli í öllum
tölfræðiþáttum
eða í stigum (134),
fráköstum (59),
stoðsendingum (28),
stolnum boltum
(18), vörðum
skotum (9),
sóknarfrá-
köstum (13)
og þriggja
stiga
körfum
(11).
Stjarnan – 3. sæti
Þjálfari rúnar Páll Sigmundsson
Rúnar Páll gat ekki byrjað betur með Stjörnuna og varð meistari
á fyrsta ári en í fyrra átti hann eins og liðið erfitt uppdráttar.
Stjarnan er með gríðarlega sterkan og breiðan hóp og á svo
sannarlega að slást um Íslandsmeistaratitilinn í sumar.
í besta/versta falli
stærsta nafnið sem kom stærsta nafnið sem fór
GenGi stjörnunnar undanfarin sex sumur
2010
a-deild
2011
a-deild
2012
a-deild
2013
a-deild
2014
a-deild
2015
a-deild
Baldur Sigurðsson
Fyrrverandi fyrirliði KR er
mættur í Garðabæinn.
Pablo Punyed
Miðjumaðurinn öflugi frá El
Salvador fór til Eyja.
12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1
spá íþróttadeildar 365
1. sæti ? 5. Valur 9. ÍBV
2. sæti ? 6. Víkingur 10. Ía
3. Stjarnan 7. fylkir 11. Víkingur Ólafsvík
4. Breiðablik 8. fjölnir 12. Þróttur
pepsi
spáin
2016
nánar á vísi
Guðjón Baldvinsson kom heim í Garðabæinn á miðju sumri í
fyrra og skoraði ellefu mörk í fimm leikjum. Hann er hungraður
í að gera betur og vinna titil með uppeldisfélaginu.
↣
138 4 5 4
körfubolti eftir að hafa lent 2-0
undir í úrslitaeinvígi domino's-
deildar karla bitu Haukarnir frá sér.
Það gerðu þeir meira að segja án
síns besta manns, Kára Jónssonar,
og eru aftur komnir inn í einvígið.
Haukarnir eiga heimaleik í kvöld
gegn ríkjandi meisturum og geta
komið einvíginu í oddaleik með
sigri í kvöld. Það mátti líklega telja
þá á fingrum annarrar handar sem
höfðu trú á sigri Hauka í síðustu
leik en Haukarnir sýndu hvað í
þeim býr. Þeir eru komnir með
blóð á tennurnar og skildi enginn
afskrifa Hafnarfjarðarliðið.
Hugarfar Haukanna breyttist
„mér fannst hugarfarið breytast hjá
Haukunum. Þeir höfðu meiri trú á
verkefninu en í hinum leikjunum.
Pressan var líka af þeim og þeir
gátu komið algjörlega æðrulausir í
leikinn með allt að vinna en engu
að tapa. nú settu þeir líka niður
stóru skotin ólíkt því sem var í leik
tvö,“ segir Hermann Hauksson, sér-
fræðingur hjá Körfuboltakvöldi á
stöð 2 sport.
„Ég hef trú á þeim núna. Það er
byr með þeim og þeir verða að
halda í trúna enda hafa þeir nú
séð að þeir geta vel unnið Kr. Það
verður fullt hús og stemning. Ég
hef bullandi trú á því að þeir komi
þessu í oddaleik.“
síðasti leikur liðanna var heldur
betur dramatískur þar sem finnur
atli magnússon tryggði Haukum
framlengingu með ævintýralegri
þriggja stiga körfu um leið og leik-
tíminn rann út.
„finnur var flottur. emil barja
var traustur allan leikinn sem og
brandon mobley. eini maðurinn
sem spilaði ekki vel hjá Haukum
var Haukur Óskarsson en hann átti
afleitan leik. Það sem gerist þegar
Kári Jónsson dettur út er að sóknar-
leikurinn laskast mikið. fjarvera
hans hefur lítil áhrif á vörnina enda
Kári ekki sterkur varnarmaður. Það
þurfa fleiri að stíga upp í sókninni
og það hafa emil og Kristinn mar-
inósson meðal annars gert,“ segir
Hermann en innkoma guðna Val-
entínusarsonar hefur einnig fært
Haukum mikið.
„Hann kom þeim inn í leik tvö og
stoppar Craion. Hann nær að halda
honum frá körfunni og lætur ekki
gabba sig. svo fær hann mígrenis-
kast og getur ekki spilað meira sem
er leiðinlegt. Þetta er reyndur strák-
ur sem hefur spilað í Hólminum og
danmörku og kann alveg leikinn.
Haukanna vegna vona ég að hann
verði heill heilsu í þessum leik. Þeir
þurfa á honum að halda.“
Kr-ingar gerðu röð mistaka
Það héldu nánast allir að Kr-ingar
myndu sópa Haukunum auðveld-
lega í síðasta leik en hvað klikkar
eiginlega hjá þeim?
„Kr-ingarnir gerðu röð mistaka
og sáu til þess sjálfir að þeir unnu
ekki leikinn. Þeir eru stigi yfir og
Haukar verða að brjóta. Þá eiga
menn eins og Craion og snorri að
fara langt upp völlinn og frá bolt-
anum. brynjar, Helgi og bjössi
eiga að fá boltann. Hin mistökin
eru að gefa Haukum séns á loka-
skotinu. Þeir hefðu átt að brjóta og
senda Haukana á línuna. sérstak-
lega þegar Haukur fékk boltann
því hann vildi aldrei fara á línuna.
Hann var svo stressaður. Kr-ing-
arnir voru ekki tengdir síðustu
mínútur leiksins,“ segir Hermann
en meistararnir eru ekki alltaf upp
á sitt besta í lok jafnra leikja.
„Það er munstur sem við höfum
séð og kemur á óvart. Þetta er eitt
reynslumesta úrslitaeinvígislið sem
hefur komið fram. Þeir þekkja þetta
allt flestir. nú sjáum við í þessum
leik úr hverju liðin eru gerð en
ég held að þetta verði magnaður
leikur. Jafn og skemmtilegur í flottri
stemningu.“
Hafði ekki trú á leik fjögur
Þó að Hermann hafi trú á oddaleik
þá sér hann það samt ekki gerast að
Kr tapi þremur leikjum í röð.
„Ég hafði ekki trú á leik fjögur
eftir leik tvö. Ég hef trú á oddaleik
en sé ekki fyrir mér að Kr tapi þar.
Ég verð í settinu með Kidda frið-
riks á þessum leik og við skoruðum
á Haukana eftir leik tvö að ef þeir
vildu sjá okkur aftur þar yrðu þeir
að taka leik þrjú. Þeir tóku þeirri
áskorun. auðvitað vildu þeir sjá
okkur sykurkoddana aftur á skján-
um. Hver vill það ekki?“ segir Her-
mann léttur.
henry@frettabladid.is
Hef bullandi trú á oddaleik
Fjórði leikurinn í úrslitaeinvígi Domino's-deildar karla á milli KR og Hauka fer fram í kvöld. KR fær þá
annað tækifæri til þess að lyfta bikarnum en Hermann Hauksson sérfræðingur býst við mjög jöfnum leik.
Nú sjáum við í
þessum leik úr
hverju liðin eru gerð en ég
held að þetta verði
magnaður
leikur.
Hermann Hauksson,
sérfræðingur í Körfu-
boltakvöldinu á Stöð
2 Sport.
Ekkert liðanna hefur
komist í oddaleik
Haukar geta skrifað nýjan kafla í
sögu lokaúrslita karla takist þeim
að vinna fjórða leikinn á móti KR
á Ásvöllum í kvöld.
Haukarnir voru tíunda liðið sem
lendir 2-0 undir í úrslitaeinvíginu
síðan að liðin þurftu að vinna þrjá
leiki til að vinna Íslandsmeistara-
titilinn. Ekkert liðanna hefur unnið
og aðeins tvö af þessum níu hafa
komist í leik fjögur, Tindastóll
2001 og Þór Þ. 2012.
Vinni Haukar leikinn í kvöld
verða þeir fyrsta liðið sem lendir
2-0 undir í úrslitaeinvígi til að
komast alla leið í oddaleik um
Íslandsmeistaratitilinn. Þeir verða
þá að vinna annan leikinn í röð
á móti KR en KR-liðið hefur ekki
tapað tveimur leikjum í röð í úr-
slitakeppninni síðan vorið 2013.
frettaBlaðið/Pjetur
Í dag
18.45 Körfuboltakvöld Sport 2
19.00 Shakhtar - Sevilla Sport 3
19.00 Villarreal - liverpool Sport
19.15 Haukar - Kr Sport 2
21.30 Pepsí deild - upphitun Sport
19.15 Haukar - Kr Ásvellir
19.30 Valur - afturelding Valshöllin
olís deild kvenna í handbolta
Grótta - fram 21-16
Markahæstar (Skot): Þórey Anna Ásgeirs-
dóttir 6/1 (12/3), Sunna María Einarsdóttir
5/1 (8/2), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2
(4/1), Lovísa Thompson 2 (7) - Ragnheiður
Júlíusdóttir 6/1 (21/2), Steinunn Björns-
dóttir 2 (2), Hekla Rún Ámundadóttir 2 (3),
Hildur Þorgeirsdóttir 2 (5).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 29/1
(43/2, 67%) - Guðrún Ósk Maríasd. 11 (26/2,
42%), Hafdís Lilja Torfad. 8/2 (14/2, 57%).
gróttukonur eru komnar í lokaúr-
slitin annað árið í röð eftir 3-0 í ein-
víginu og hafa nú unnið fyrstu fimm
leiki sína í úrslitakeppninni í ár. íris
björk símonardóttir, markvörður
gróttu, varði 52 prósent skota sem
hún fékk á sig í undanúrslitunum.
Haukar - Stjarnan 29-23
Markahæstar: Ramune Pekarskyte 7 (11),
Maria Ines De Silve Pereira 5 (6), Ragnheiður
Ragnarsdóttir 5 (7), Karen Helga Díönu-
dóttir 5 (9), Ragnheiður Sveinsdóttir 3 (5)
- Þórhildur Gunnarsdóttir 8 (9), Sólveig Lára
Kjærnested 5 (8), Hanna Guðrún Stefáns-
dóttir 3/3 (5/3).
Haukakonur unnu öruggan sigur
og eru komnar í 2-1 í einvíginu og
vantar því bara einn sigur í viðbót til
að komast í úrslitin á móti gróttu.
næsti leikur er á föstudagskvöldið.
meistaradeildin, undanúrslit
atlético - Bayern 1-0
1-0 Saúl Niguez (11.).
Hinn 21 árs gamli saul dansaði í
gegnum vörn bæjara og tryggði
atlético 1-0 sigur á Calderon með
mögnuðu „messi“-marki. Jan oblak
og atlético gáfu fá færi á sér og atlé-
tico hélt hreinu í fjórtánda sinn í
síðustu sextán heimaleikjum sínum
í meistaradeildinni.
Ef Bayern vinnur ekki þá
skila ég inn vegabréfinu
mínu. Nei. Ég er ekki með
þýskt vegabréf en mér er
alveg sama.
Bergur Ebbi
@bergurebbi
2 8 . a p r í l 2 0 1 6 f i m m t u d a G u r26 s p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
D
-D
0
3
4
1
9
3
D
-C
E
F
8
1
9
3
D
-C
D
B
C
1
9
3
D
-C
C
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K