Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 44

Fréttablaðið - 28.04.2016, Síða 44
Á seinni árum hefur Elísabet tekið litadýrð inn í líf sitt. Hún gengur í svipuðum fatnaði en í ólíkum litum. Litskrúðugar kápur og fallegir hatt­ ar eru einkenni hennar. Drottning­ in hefur haldið sig við sömu hönn­ uði í áratugi. Fyrst var það Nor­ man Hartnell en hann hannaði bæði brúðarkjól hennar og krýningar­ kjól. Síðan tók við Hardy Arnis sem á heiðurinn af fatastíl drottningar. Elísabet og Filippus prins giftu sig árið 1947. Árið 1952 féll faðir hennar frá og Elísabet tók við völdum. Hún var þó ekki krýnd fyrr en árið 1953. Svo virðist að eftir því sem árin liðu hafi Elísa­ bet fallið meira og meira fyrir litum. Hún gengur í bleiku jafnt sem bláu eða fjólubláu, grænu, gulu en þó síst í rauðu. Drottning gengur alltaf með hanska þar sem hún kemur og hvít perlufesti hefur fylgt henni alla tíð. Sagt er að Elísabet eigi yfir 5.000 ólíka hatta. Elísabet er ein ríkasta kona heims en hún notar engu að síðu uppáhaldshattana aftur og aftur. Suma notar hún að­ eins einu sinni. Angela Kelly hefur verið einka­ stílisti og hönnuður drottningar frá árið 1994. Hún gerir skissur af kjólum, kápum, höttum, hönsk­ um og jafnvel regnhlífum og sýnir drottningu áður en hafist er handa við saumaskapinn. Síðan velja þær efni við hæfi. Tólf manns hafa at­ vinnu af því að passa upp á fata­ skáp drottningar. Allur fatnaður er skráður í bækur og tiltekið hve­ nær hann var notaður og við hvaða tækifæri. Þess er gætt að drottn­ ingin mæti ekki í sama lit tvisv­ ar á stuttum tíma. Þess er sömu­ leiðis gætt að drottningin skeri sig ávallt úr í mannfjölda. Litir eru notaðir eftir tilefnum, drottningin er ekki í sama lit þegar hún heim­ sækir sjúkrahús eða hermenn. Regnhlífar drottningar eru allar gegnsæjar svo þær skyggi ekki á andlit hennar. Þá eru handtöskur hennar mikilvægar í heildarútlit­ inu og úthugsaðar. Oft er sagt að eldri konur ættu að klæðast litum til að gefa andlitinu ljóma, ekki er óhugsandi að sú sé ástæða þess að drottningin klæðist alltaf falleg­ um litum. Með 5.000 hatta í fataskápnuM Elísabet Englandsdrottning varð níræð á dögunum en hún hefur stýrt konungsveldinu í 64 ár. Elísabet gengur alltaf með hatt á höfði og fatastíll hennar þykir afar klassískur en litríkur, kjóll og kápa í stíl. Elísabet mætti í bláu dressi í garðveislu við Balmoral-kastala. Elísabet drottning við opnun nýrrar byggingar hjá breska varnarmálaráðuneytinu. Hattinn gerði Philip Somerville. Elísabet var í ljósbláu við 800 ára minn- ingarathöfn Magna Carta í Bretlandi. Drottning var í fjólubláu þegar hún heimsótti nýja fæðingar- deild við sjúkrahúsið í Stevenage á Englandi. Í heimsókn í Surrey á Englandi. Drottn- ingin klæðist ekki oft rauðum lit. Drottningin í heimsókn í Halifax í Kanada.Í heimsókn í Dover á Englandi.Í heimsókn í Glasgow í Skotlandi. Fa rv i.i s // 0 41 6 588 2300 Kringlunni KJÓLL 5.495 kr. SKÓR 12.995 kr. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Sumarlegar Stretchbuxur á 12.900 kr. - háar í mittið - stærð 34 - 52 - 6 litir: blátt, svart, grátt, hvítt, sandgrátt, röndótt blátt/hvítt. Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Endalaust ENDALAUST NET 1817 365.is 2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r8 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 D -F C A 4 1 9 3 D -F B 6 8 1 9 3 D -F A 2 C 1 9 3 D -F 8 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.