Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 58
Við getum ekki sagt eða gert neitt sem Var búið að gerast á þeim VettVangi þVí atgangurinn Var slíkur. Annað kvöld frumsýna sviðslistamennirnir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson leikverkið Könnunar-leiðangurinn til KOI. Þeir félagar eru einnig höfundar verksins sem er sérstakt fyrir þær sakir að það er skrifað og æft upp til frumsýningar á aðeins einum mánuði og segir Hilmir að þetta sé í annað sinn sem þeir vinni verk með þessum hætti. „Við gerðum sýningu sem hét MP5 og fjallaði um hríðskotabyssurnar sem land- helgisgæslan ætlaði að eigna sér frá Noregi. Okkar pæling snýst um það hvað viðbragðstíminn í leikhúsi er langur og hversu seinlega það gengur hjá leikhúsunum að bregðast við þeim málum sem brenna á samfé- laginu hverju sinni. Það er kannski raunhæft að sýning sem fjallar um ákveðið málefni eða atburð komi á fjalirnar um einu og hálfu ári eftir að atburðurinn átti sér stað eða að umræðan var í hámæli. Þannig að okkur langaði til þess að búa til form þar sem við gætum bara dúndrað þessu út og sagt það sem okkur langaði til þess að segja hverju sinni. Nálgunin er því að við gefum okkur svona um mánuð frá ákvörðuninni um að byrja að vinna fram að frum- sýningu.“ Ekki taka sig of hátíðlega Hilmir segir að þeir hafi þó ekki valið þá leið að vinna verkið í spuna heldur fremur á hefðbundnari máta. „Við hreinlega byrjum á því að setjast saman við tölvuna og skrifa. Í fram- haldinu prófum við svo að fara út á gólf og prufa efnið sem við erum komnir með og þannig fram og til baka þangað til að við erum búnir að hamra saman handrit. Málið er að við Tryggvi erum búnir að vinna talvert saman áður og þekkjum hvor annan vel. Við höfum svipaðar hug- myndir um það hvað okkur finnst gera sig og vera skemmtilegt þannig að þetta hefur gengið mjög vel.“ Það er einnig nokkuð sérstakt við þessa sýningu að hún er án leikstjóra og annarra listrænna stjórnenda sem alla jafna er unnið með í leik- húsi í dag. „Já, þetta erum bara við tveir. Að vísu fengum við ljósamann til þess að hjálpa okkur við að setja upp ljósin en annað höfum við gert sjálfir svo þetta er mjög mínímalískt og hrátt. Fyrri sýningin okkar var í sjálfu sér tilraun til þess að láta á það reyna að fjarlægja yfirbyggingu leikhússins með þessum hætti og þar sem það gekk svona ljómandi vel þá ákváðum við að halda áfram. Mér finnst að leikhúsin mættu alveg gera meira af þessu og held að í raun taki leikhúsfólk sig á stundum helst til hátíðlega því það er líka hægt að gera þetta bara. Láta vaða.“ Hugleiddu að henda öllu Leikverkinu Könnunarleiðangrinum til KOI sem félagarnir frumsýna annað kvöld er því ætlað að vera ákveðinn farvegur til samfélags- legrar umræðu og Hilmir segir að þá sá mikilvægt að halda sig við einfalda og skýra umgjörð. „Verkið fjallar um tvo geimfara sem eru á siglingu á leiðinni að skoða KOI 310 sem á að verða framtíðarheimili mannkyns af því að jörðin er að deyja af okkar völdum. Þá er bankað utan á geim- skipið af veru sem þarfnast aðstoðar og er jafnframt fyrsta geimveran sem mannkynið rekst á. Þetta er ramm- inn um samtal um það hvort eigi að hleypa inn geimveru í neyð eða ekki. Þetta speglar flóttamannaástandið í Evrópu og víðar akkúrat núna. Ég játa að við hugleiddum að henda handritinu öllu og byrja upp á nýtt þann 4. apríl síðastliðinn þegar mótmælin voru á Austurvelli en svo sáum við að sá farsi væri einfaldlega tilbúinn og engu við það að bæta. Við getum ekki sagt eða gert neitt sem var búið að gerast á þeim vett- vangi því atgangurinn var slíkur. Af öskurplaninu Þetta málefni var eitthvað sem brann á okkur og okkur fannst að þarna hefðum við eitthvað segja og vildum því koma því frá okkur. Það var ekki svo að við hefðum einhverja persónulega tengingu við þessi mál heldur var þetta bara það sem kallaði á okkur. Vonandi getur þetta hjálpað til þess að skapa umræðu og hjálpað til við þá umræðu. Það er svo sannar- lega ekki vanþörf á. Málið er að það er svo gott að setja svona allegóríu út í geim því þá eru þetta bara tveir strákar í spandex- búningum á ferðalagi um víðáttur geimsins og við losnum við alla flokkadrætti og getum aðeins skoðað málið úr fjarlægð. Í samfélaginu sem við lifum í frá degi til dags erum við oft ansi fljót til að stökkva í skot- grafir, byrja að öskra hvert á annað og skrifa á Facebook í hástöfum og það kemur oft soldið í veg fyrir að við getum talað saman. Kemur í veg fyrir vitræna umræðu. Það breytir því ekki að fólk getur verið reitt og við erum það alveg sjálfir og erum ekkert að fela það. En það þarf að taka umræðuna af þessu öskurplani.“ Tveir strákar í spandex á ferðalagi um geiminn könnunarleiðangurinn til kOi er nýtt sviðsverk eftir þá Hilmi Jensson og tryggva gunnarsson sem þeir gáfu sér aðeins um mánuð til þess að semja og æfa fyrir frumsýninguna í tjarnarbíó annað kvöld. Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson eru höfundar og leikarar sviðslistaverksins Könnunarleiðangursins til KOI sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. FréTTAblAðIð/VIlHElm Félagarnir í hlutverkum sínum í Könnunarleiðangrinum til KOI. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r34 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð menning 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 D -C B 4 4 1 9 3 D -C A 0 8 1 9 3 D -C 8 C C 1 9 3 D -C 7 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.