Fréttablaðið - 28.04.2016, Page 58
Við getum ekki sagt
eða gert neitt sem
Var búið að gerast á þeim
VettVangi þVí atgangurinn
Var slíkur.
Annað kvöld frumsýna sviðslistamennirnir Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson leikverkið Könnunar-leiðangurinn til KOI.
Þeir félagar eru einnig höfundar
verksins sem er sérstakt fyrir þær
sakir að það er skrifað og æft upp
til frumsýningar á aðeins einum
mánuði og segir Hilmir að þetta sé
í annað sinn sem þeir vinni verk
með þessum hætti. „Við gerðum
sýningu sem hét MP5 og fjallaði
um hríðskotabyssurnar sem land-
helgisgæslan ætlaði að eigna sér frá
Noregi. Okkar pæling snýst um það
hvað viðbragðstíminn í leikhúsi er
langur og hversu seinlega það gengur
hjá leikhúsunum að bregðast við
þeim málum sem brenna á samfé-
laginu hverju sinni. Það er kannski
raunhæft að sýning sem fjallar um
ákveðið málefni eða atburð komi á
fjalirnar um einu og hálfu ári eftir
að atburðurinn átti sér stað eða að
umræðan var í hámæli. Þannig að
okkur langaði til þess að búa til form
þar sem við gætum bara dúndrað
þessu út og sagt það sem okkur
langaði til þess að segja hverju sinni.
Nálgunin er því að við gefum okkur
svona um mánuð frá ákvörðuninni
um að byrja að vinna fram að frum-
sýningu.“
Ekki taka sig of hátíðlega
Hilmir segir að þeir hafi þó ekki
valið þá leið að vinna verkið í spuna
heldur fremur á hefðbundnari máta.
„Við hreinlega byrjum á því að setjast
saman við tölvuna og skrifa. Í fram-
haldinu prófum við svo að fara út
á gólf og prufa efnið sem við erum
komnir með og þannig fram og til
baka þangað til að við erum búnir
að hamra saman handrit. Málið er
að við Tryggvi erum búnir að vinna
talvert saman áður og þekkjum hvor
annan vel. Við höfum svipaðar hug-
myndir um það hvað okkur finnst
gera sig og vera skemmtilegt þannig
að þetta hefur gengið mjög vel.“
Það er einnig nokkuð sérstakt við
þessa sýningu að hún er án leikstjóra
og annarra listrænna stjórnenda
sem alla jafna er unnið með í leik-
húsi í dag. „Já, þetta erum bara við
tveir. Að vísu fengum við ljósamann
til þess að hjálpa okkur við að setja
upp ljósin en annað höfum við gert
sjálfir svo þetta er mjög mínímalískt
og hrátt. Fyrri sýningin okkar var
í sjálfu sér tilraun til þess að láta á
það reyna að fjarlægja yfirbyggingu
leikhússins með þessum hætti og
þar sem það gekk svona ljómandi
vel þá ákváðum við að halda áfram.
Mér finnst að leikhúsin mættu alveg
gera meira af þessu og held að í raun
taki leikhúsfólk sig á stundum helst
til hátíðlega því það er líka hægt að
gera þetta bara. Láta vaða.“
Hugleiddu að henda öllu
Leikverkinu Könnunarleiðangrinum
til KOI sem félagarnir frumsýna
annað kvöld er því ætlað að vera
ákveðinn farvegur til samfélags-
legrar umræðu og Hilmir segir að þá
sá mikilvægt að halda sig við einfalda
og skýra umgjörð. „Verkið fjallar um
tvo geimfara sem eru á siglingu á
leiðinni að skoða KOI 310 sem á að
verða framtíðarheimili mannkyns
af því að jörðin er að deyja af okkar
völdum. Þá er bankað utan á geim-
skipið af veru sem þarfnast aðstoðar
og er jafnframt fyrsta geimveran sem
mannkynið rekst á. Þetta er ramm-
inn um samtal um það hvort eigi að
hleypa inn geimveru í neyð eða ekki.
Þetta speglar flóttamannaástandið í
Evrópu og víðar akkúrat núna.
Ég játa að við hugleiddum að
henda handritinu öllu og byrja upp á
nýtt þann 4. apríl síðastliðinn þegar
mótmælin voru á Austurvelli en svo
sáum við að sá farsi væri einfaldlega
tilbúinn og engu við það að bæta.
Við getum ekki sagt eða gert neitt
sem var búið að gerast á þeim vett-
vangi því atgangurinn var slíkur.
Af öskurplaninu
Þetta málefni var eitthvað sem
brann á okkur og okkur fannst að
þarna hefðum við eitthvað segja og
vildum því koma því frá okkur. Það
var ekki svo að við hefðum einhverja
persónulega tengingu við þessi mál
heldur var þetta bara það sem kallaði
á okkur. Vonandi getur þetta hjálpað
til þess að skapa umræðu og hjálpað
til við þá umræðu. Það er svo sannar-
lega ekki vanþörf á.
Málið er að það er svo gott að setja
svona allegóríu út í geim því þá eru
þetta bara tveir strákar í spandex-
búningum á ferðalagi um víðáttur
geimsins og við losnum við alla
flokkadrætti og getum aðeins skoðað
málið úr fjarlægð. Í samfélaginu sem
við lifum í frá degi til dags erum við
oft ansi fljót til að stökkva í skot-
grafir, byrja að öskra hvert á annað
og skrifa á Facebook í hástöfum og
það kemur oft soldið í veg fyrir að
við getum talað saman. Kemur í veg
fyrir vitræna umræðu. Það breytir
því ekki að fólk getur verið reitt og
við erum það alveg sjálfir og erum
ekkert að fela það. En það þarf að
taka umræðuna af þessu öskurplani.“
Tveir strákar í spandex á ferðalagi um geiminn
könnunarleiðangurinn til kOi er nýtt sviðsverk eftir þá Hilmi Jensson og tryggva gunnarsson sem þeir
gáfu sér aðeins um mánuð til þess að semja og æfa fyrir frumsýninguna í tjarnarbíó annað kvöld.
Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson eru höfundar og leikarar sviðslistaverksins Könnunarleiðangursins til KOI sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. FréTTAblAðIð/VIlHElm
Félagarnir í hlutverkum sínum í Könnunarleiðangrinum til KOI.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 8 . a p r í l 2 0 1 6 F I M M T U D a G U r34 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð
menning
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
D
-C
B
4
4
1
9
3
D
-C
A
0
8
1
9
3
D
-C
8
C
C
1
9
3
D
-C
7
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K