Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 28.04.2016, Blaðsíða 19
Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Stjórnlagaráði bárust 323 skrif-leg erindi vorið og sumarið 2011 frá fólki sem gaf sig fram að fyrra bragði til að rétta ráðinu hjálpar- hönd við vinnu sína við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þessi hjálp reyndist vel. Fyrir hana verður seint fullþakkað. Erindi Arnars Jenssonar Eitt erindið barst frá Arnari Jenssyni, gamalreyndum lögreglumanni og tengifulltrúa Íslands hjá Europol, sam- eiginlegri lögreglu Evrópusambands- ins. Erindi Arnars varðaði lagaúrræði almannavaldsins gegn ólögmætum ávinningi (e. Assets Recovery eða Pro- ceeds of Crime Recovery). M.ö.o.: Hvað geta stjórnvöld gert til að gera upptækar eignir sem menn hafa sölsað undir sig með ólögmætum hætti enda þótt sönnunarbyrði fyrir dómstólum hafi ekki dugað til sak- fellingar? Málið snýst um lagaúrræði sem hefur rutt sér til rúms í Evrópu á undanförnum árum (e. non-convic- tion based confiscation), þ.e. „úrræði sem beita má innan einkamálaréttar- fars þar sem sönnunarþröskuldur er lægri en innan sakamálaréttarfarsins. Þetta lagaúrræði hafa m.a. SÞ, ESB og Evrópuráðið, auk Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mælt með að aðildarlöndin tækju upp til að ná til baka fjármunum og eignum sem aflað hefur verið með ólögmætum hætti og skila þeim til réttra eigenda“ svo vitnað sé orðrétt í erindi Arnars. Arnar Jensson sagði ennfremur í erindi sínu að hann hefði setið fund þar sem hann heyrði Róbert Spanó prófessor í lögum draga „í efa að íslensk lagasetning sem heimilaði þetta úrræði mundi standast eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar vegna þess að eignarréttur nyti meiri lagaverndar á Íslandi en í flestum öðrum löndum (!). Taldi hann líklegt að þrátt fyrir að Alþingi mundi samþykkja slík lög mundi Hæstiréttur komast að þeirri niðurstöðu að þau stæðust ekki eignar- réttarákvæði stjórnarskrárinnar vegna sérstöðu þessa ákvæðis þar. Í ljósi þess að allar fyrrgreindar alþjóðastofnanir hafa mælt með þessu lagaúrræði og ekki síður vegna þess að Mannrétt- indadómstóll Evrópu hefur í nokkur skipti komist að þeirri niðurstöðu að lög af þessu tagi brjóti ekki í bága við eignarréttarákvæði Mannréttindasátt- mála Evrópu – skýtur þetta óneitanlega dálítið skökku við.“ Misbeiting stjórnarskrár Arnar Jensson hélt áfram: „Að mínu áliti, svo og ýmissa annarra sem ég hef rætt þetta við (bæði Íslendinga og erlendra sérfræðinga) er bráðnauðsyn- legt að skoða þetta gaumgæfilega til að stjórnarskráin standi ekki í vegi fyrir að hægt sé að setja í lög á Íslandi alþjóð- lega viðurkennd úrræði sem auðveldi yfirvöldum að ná til baka ólögmætum ávinningi af brotastarfsemi. Sé ofan- greind skoðun Róberts Spanó rétt, mætti halda því fram með sterkum rökum að stjórnarskráin verndi þá sem ná til sín ávinningi og eignum með ólögmætum hætti og standi jafnframt í vegi fyrir því að yfirvöld geti náð ólög- mætum ávinningi til baka og skilað honum til réttra eigenda. Hvers vegna ætti íslenskur eignarréttur að njóta meiri verndar en annars staðar? Hvers vegna ætti ólögmætur ávinningur að njóta verndar stjórnarskrárinnar? Ég kem því þessu erindi á framfæri við Stjórnlagaráð með þeirri beiðni að farið verði yfir eignarréttarákvæðið í ljósi ofangreinds og það tryggt að stjórnarskráin hindri ekki að hægt verði að setja þessi eða sambærileg alþjóðlega viðurkennd úrræði í lög á Íslandi.“ Eignarrétti fylgja skyldur, svo og takmarkanir Ábending Arnars Jenssonar var vand- lega reifuð og vel þegin. Stjórnlagaráðs- menn voru sumir sama sinnis og Arnar um alvöru málsins, enda hafði svohljóðandi málsgrein verið bætt inn í drög að eignarréttarákvæði lýðveldis- stjórnarskrárinnar mörgum vikum áður en erindi Arnars barst ráðinu: „Eignarréttur samkvæmt stjórnarskrá þessari nær hvorki til þýfis né sjálf- tekinna hlunninda.“ Á síðari vinnslu- stigum var þessi afdráttarlausa fram- setning látin víkja fyrir mildara orðlagi: „Eignarrétti fylgja skyldur, svo og takmarkanir í samræmi við lög.“ Það er texti frumvarpsins sem kjósendur sam- þykktu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012. Hugsunin má heita hin sama að baki hvoru tveggja orðalaginu. Líklegt virðist í ljósi atburða undan- genginna vikna að ábending Arnars Jenssonar komi aftur til gaumgæfi- legrar athugunar við næstu endur- skoðun stjórnarskrárinnar, vonandi þó ekki eftir önnur 70 ár. Lagaúrræði gegn ólögmætum ávinningi Hvað geta stjórnvöld gert til að gera upptækar eignir sem menn hafa sölsað undir sig með ólög- mætum hætti enda þótt sönn- unarbyrði fyrir dómstólum hafi ekki dugað til sakfellingar? Á fundi stjórnlagaráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Stenst kröfur sem stærri bílar væru stoltir af Verð frá aðeins 2.940.000 kr. ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 8 . a p R Í L 2 0 1 6 2 8 -0 4 -2 0 1 6 0 3 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 D -A 8 B 4 1 9 3 D -A 7 7 8 1 9 3 D -A 6 3 C 1 9 3 D -A 5 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 2 7 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.