Fréttablaðið - 28.04.2016, Side 19
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag Stjórnlagaráði bárust 323 skrif-leg erindi vorið og sumarið 2011 frá fólki sem gaf sig fram að fyrra
bragði til að rétta ráðinu hjálpar-
hönd við vinnu sína við endurskoðun
stjórnarskrárinnar. Þessi hjálp reyndist
vel. Fyrir hana verður seint fullþakkað.
Erindi Arnars Jenssonar
Eitt erindið barst frá Arnari Jenssyni,
gamalreyndum lögreglumanni og
tengifulltrúa Íslands hjá Europol, sam-
eiginlegri lögreglu Evrópusambands-
ins. Erindi Arnars varðaði lagaúrræði
almannavaldsins gegn ólögmætum
ávinningi (e. Assets Recovery eða Pro-
ceeds of Crime Recovery).
M.ö.o.: Hvað geta stjórnvöld gert til
að gera upptækar eignir sem menn
hafa sölsað undir sig með ólögmætum
hætti enda þótt sönnunarbyrði fyrir
dómstólum hafi ekki dugað til sak-
fellingar? Málið snýst um lagaúrræði
sem hefur rutt sér til rúms í Evrópu á
undanförnum árum (e. non-convic-
tion based confiscation), þ.e. „úrræði
sem beita má innan einkamálaréttar-
fars þar sem sönnunarþröskuldur er
lægri en innan sakamálaréttarfarsins.
Þetta lagaúrræði hafa m.a. SÞ, ESB og
Evrópuráðið, auk Alþjóðabankans og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mælt með
að aðildarlöndin tækju upp til að ná til
baka fjármunum og eignum sem aflað
hefur verið með ólögmætum hætti og
skila þeim til réttra eigenda“ svo vitnað
sé orðrétt í erindi Arnars.
Arnar Jensson sagði ennfremur í
erindi sínu að hann hefði setið fund
þar sem hann heyrði Róbert Spanó
prófessor í lögum draga „í efa að íslensk
lagasetning sem heimilaði þetta úrræði
mundi standast eignarréttarákvæði
stjórnarskrárinnar vegna þess að
eignarréttur nyti meiri lagaverndar á
Íslandi en í flestum öðrum löndum (!).
Taldi hann líklegt að þrátt fyrir að
Alþingi mundi samþykkja slík lög
mundi Hæstiréttur komast að þeirri
niðurstöðu að þau stæðust ekki eignar-
réttarákvæði stjórnarskrárinnar vegna
sérstöðu þessa ákvæðis þar. Í ljósi þess
að allar fyrrgreindar alþjóðastofnanir
hafa mælt með þessu lagaúrræði og
ekki síður vegna þess að Mannrétt-
indadómstóll Evrópu hefur í nokkur
skipti komist að þeirri niðurstöðu að
lög af þessu tagi brjóti ekki í bága við
eignarréttarákvæði Mannréttindasátt-
mála Evrópu – skýtur þetta óneitanlega
dálítið skökku við.“
Misbeiting stjórnarskrár
Arnar Jensson hélt áfram: „Að mínu
áliti, svo og ýmissa annarra sem ég
hef rætt þetta við (bæði Íslendinga og
erlendra sérfræðinga) er bráðnauðsyn-
legt að skoða þetta gaumgæfilega til að
stjórnarskráin standi ekki í vegi fyrir að
hægt sé að setja í lög á Íslandi alþjóð-
lega viðurkennd úrræði sem auðveldi
yfirvöldum að ná til baka ólögmætum
ávinningi af brotastarfsemi. Sé ofan-
greind skoðun Róberts Spanó rétt,
mætti halda því fram með sterkum
rökum að stjórnarskráin verndi þá sem
ná til sín ávinningi og eignum með
ólögmætum hætti og standi jafnframt í
vegi fyrir því að yfirvöld geti náð ólög-
mætum ávinningi til baka og skilað
honum til réttra eigenda. Hvers vegna
ætti íslenskur eignarréttur að njóta
meiri verndar en annars staðar? Hvers
vegna ætti ólögmætur ávinningur að
njóta verndar stjórnarskrárinnar? Ég
kem því þessu erindi á framfæri við
Stjórnlagaráð með þeirri beiðni að
farið verði yfir eignarréttarákvæðið
í ljósi ofangreinds og það tryggt að
stjórnarskráin hindri ekki að hægt
verði að setja þessi eða sambærileg
alþjóðlega viðurkennd úrræði í lög á
Íslandi.“
Eignarrétti fylgja skyldur,
svo og takmarkanir
Ábending Arnars Jenssonar var vand-
lega reifuð og vel þegin. Stjórnlagaráðs-
menn voru sumir sama sinnis og
Arnar um alvöru málsins, enda hafði
svohljóðandi málsgrein verið bætt inn
í drög að eignarréttarákvæði lýðveldis-
stjórnarskrárinnar mörgum vikum
áður en erindi Arnars barst ráðinu:
„Eignarréttur samkvæmt stjórnarskrá
þessari nær hvorki til þýfis né sjálf-
tekinna hlunninda.“ Á síðari vinnslu-
stigum var þessi afdráttarlausa fram-
setning látin víkja fyrir mildara orðlagi:
„Eignarrétti fylgja skyldur, svo og
takmarkanir í samræmi við lög.“ Það er
texti frumvarpsins sem kjósendur sam-
þykktu í þjóðaratkvæðagreiðslunni
2012. Hugsunin má heita hin sama að
baki hvoru tveggja orðalaginu.
Líklegt virðist í ljósi atburða undan-
genginna vikna að ábending Arnars
Jenssonar komi aftur til gaumgæfi-
legrar athugunar við næstu endur-
skoðun stjórnarskrárinnar, vonandi þó
ekki eftir önnur 70 ár.
Lagaúrræði gegn ólögmætum ávinningi
Hvað geta stjórnvöld gert til að
gera upptækar eignir sem menn
hafa sölsað undir sig með ólög-
mætum hætti enda þótt sönn-
unarbyrði fyrir dómstólum hafi
ekki dugað til sakfellingar?
Á fundi stjórnlagaráðs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Stenst kröfur sem stærri
bílar væru stoltir af
Verð frá aðeins
2.940.000 kr.
ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð
og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 8 . a p R Í L 2 0 1 6
2
8
-0
4
-2
0
1
6
0
3
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
D
-A
8
B
4
1
9
3
D
-A
7
7
8
1
9
3
D
-A
6
3
C
1
9
3
D
-A
5
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
2
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K