Jökull - 01.12.1951, Page 17
Snjómœlingar á Vatnajölili 1951.
Sigurjón Rist notaði hvert tækifæri, sem gafst,
til þess að grafa niður úr vetrarsnjónum og
mæla þykkt hans og vatnsgildi. Vegna illviðra
urðu jsessar mælingar færri en ella hefði orðið.
Snjómælingar voru gerðar á þessum stöðum:
Snjó- Vatns-
Hað dýpt gildi
m cm mm
T4 Sunnan Esjufjalla . . 650 114 435
S2 Suðaustan Esjufjalla 760 150 570
S3 Austan Esjufjalla .. . 900 176 ?
S4 Norðaustan Esjufjalla 1120 230 1290
S9 Norðlingalægð 1300 420 1900
S22 Við Grímsvötn 1580 415 1860
S32 Á Dyngjujökli 1410 360 1580
S37 Upp af Köldukvíslarj. 1540 240 1160
S43 Á Skeiðarárjökli .... 940 150
S50 Norðan Esjufjalla . . . 1540 520 2580
Á meðan leiðangurinn dvaldist á jöklinum
hafði fennt 50 cm við S6 og 24 cm við S5. Eðlis-
þyngd nýsnævisins var 0,37. Snjór var að þessu
sinni óvenjulega lítill á sunnanverðum jöklin-
um.
Við S4 virtist vera óleyst um 30 cm hjarn-
lag frá vetrinum 1949—1950. Snælínan hefur
því verið 1100 m yfir sjávarmál sumarið 1950.
★
Lón við Breiðamerkurjökul. Við jaðar Breiða-
merkurjökuls hafa myndazt þrjú allmikil lón,
siðan jökullinn styttist svo mjög. Hið vestasta,
Breiðárlón, er 24 m djúpt. Jökulsárlón er 35
m, en það er raunar klofið í tvennt af jökul-
kambi fremst á Esjufjallarönd. Vestari hlutinn
hefur ekki verið mældur. Stemmulón við austan-
verðan Breiðamerkurjökul er víðáttumikið, en
um dýpt þess er ekki vitað.
Fjallsá kemur einnig úr 45 m djúpu lóni við
austanverðan Fjallsjökul, en svo nefnist jök-
ullinn milli Breiðamerkurfjalls og Ærfjalls.
Milli Ærfjalls og Múlans kernur önnur jökul-
tunga, sem sameinast Fjallsjökli fremst. Undan
honum kemur Hrútá, og heitir hann Jrví að
réttu lagi Hrútárjökull. — Nafnið Fjallsjökull
var fallið i gleymsku. Þ. Thoroddsen nefnir
ltann Eystri-Hrútárjökul. En hví skyldi Fjallsá
koma .undan Hrútárjökli? /. Ey.
★
Smájöklar við Flateyjardal. I byrjun mai
1940 var ég við annan mann á ferð úti í Fjörð-
um austan Eyjafjarðar og fór frá Hvalvatns-
firði til Flateyjardals inn eftir Iíaðaldal, yfir egg-
ina í botni dalsins, sem er um 750 m há, og nið-
ur í Ytri-Brettingsstaðadal. Báðum megin við
eggina eru jöklar, sem ekki eru sýndir á korti.
Á flugmyndum landmælingadeildar vegamála-
stjórnarinnar sjást þessir jöklar, og með saman-
burði við þær telst mér til, að jöklarnir renni
niður í ca. 600 m hæð í báðum dölunum. Þeir
liggja aðallega milli 750 m og 600 m hæðar. I
hinu mikla ritverki þeirra Ahlmanns og Sig-
urðar Þórarinssonar, Vatnajökull, er kort yfir
hæð snælínu á Islandi og er hún þar áætluð
1000—1100 m við utanverðan Eyjafjörð. Virðist
rétt að þetta sé athugað nánar með tilliti til
Jaeirra jökla, er að ofan getur.
Trausti Einarsson.
★
Enskir frœðirnenn, sex að tölu, frá Durham
University Exploration Society dvöldust að
Breiðá og i Esjufjöllum frá byrjun júlí fram
um miðjan september. Unnu Jieir einkum að
því að gera uppdrátt af Esjufjöllum og jökul-
jöðrunum frá Fellsfjalli að Ivvískerjamúla. Eru
uppdrættir þessir gerðir i 1:25000 og hinir Jjarf-
legustu fyrir allar rannsóknir á þessum slóðum.
Þeir félagar höfðu flestir nýlokið prófi við
Durliam háskóla í Englandi, en frá þeim há-
skóla hafa komið hingað ungir fræðimenn á
Bob Young og Hal Lister ferðbúnir til Esjufjalla.
Ljósm.: Sverrir Scheving.
15