Jökull

Ataaseq assigiiaat ilaat

Jökull - 01.12.1964, Qupperneq 38

Jökull - 01.12.1964, Qupperneq 38
Leiðangursmenn komu á Grímsfjall um miðnætti 24 maí, en þá var snjór kringum skálann og mik- ill hrímkleggi á þakinu. Photo: M. Jóhannsson. vatnsborði voru 2 m, og hæð Depils því 35.5 m. Árð áður var tilsvarandi hæð 47.43 m og hækk- un A yfirborði Grímsvatna því tæpir 12 metrar. Litli-Mósi var kominn í kaf. Stóri-Mósi mæld- ist 11.5 m upp úr, en var 23.22 m árið áður. Hækkun í Grímsvötnum samkvæmt því 11.7 m. Þriðjud. 26. maí. Um morguninn var skál- inn tjargaður utan, en kl. 14.30 var haldið af stað til Kverkfjalla í ágætu veðri. Leituðum enn að snjómastri, árangurslaust. Kl. 18.15 kom- um við á Brúðarbungu eftir 33 km akstur af Grímsfjalli. Sáum yfir Brúarjökul og upptök sprungusvæðis. Komum kl. 22.00 á melkoll við Hveradalahöfða eftir að hafa ekið tæpa 43 km. Miðvikud. 27. maL Veður dásamlega fagurt. Frost í nótt 8 st. Kl. 11.00 var lag af stað austur að „Kverk“. Þaðan sá ylir Brúarjökul, þar sem hann ryðst fram á Kverkárnes. Kverkjökull hef- ur bersýnilega verið tviskiptur, meðan hann var lengri. Þá hefur jökulsporðurinn náð langt norður á Ranann og klofnað þar um mikinn tind. Kl. 18.00 héldum við af stað og ætluðum á Eystri-Kverkfjöll, en þá sló yfir léttri þoku, svo að við tókum stefnu rakleitt til Grímsvatna. Um. 8 km frá Grimsfjalli bilaði vatnsdæla í Jökli 2. Þeir Þórður og Gunnar tóku að sér dæluskiptin, en hinir héldu á staðinn, þar sem snjómerkið átti að vera. Þar hófu fjórir að grafa gryfju, en hinir héldu heim í skála á snjó- bílnum Bris. Viðgerð á Jökli 2. lokið kl. 00.20. Var þá búið að grafa gryfju í 210 cm dýpt og skrásetja snjólög, en borun með ísbor frestað til morguns. Fimmtud. 28. mai. Þoka og hlýtt í veðri. Haldið til Grímsvatna og borað úr gryfjubotni. Þegar borholan var orðin 386 cm, fannst greini- lega snjólag síðasta sumars, grófur ís með sand- kornum. Snjólag síðasta árs er því 596 cm á Grímsvatnasvæðnu, þar sem snjómerkið var áður. Vatnsinnihald eða eðlisþyngd var ekki mæld vegna áhaldaskorts, en íslög og snjógerð skráð. 1 Við rætur Grímsfjalls að austan var borað niður í rúma 400 cm og reist einfalt mastur úr 2 þuml. járnpípu. Stóð mastrið 4.35 m í snjó, en 5.53 m upp úr. Það er 1514 m yfir sjó og 2.5 km frá skálanum. Föstud. 29. maí. A-kaldi og gott veður. Þoku- ruðningur, en sér til lofts. Frost um 8 st. Hald- ið heimleiðis kl. 07.40. Vegmælir 133.1 km. Hæðarmælir 1765 (1719) m. Kl. 09.25, eftir 14 km akstur, urðum við varir við fyrstu sprung- una, er lá í vægan boga frá NV—SA. Beygðum norður á bóginn til þess að komast á norður- jaðar sprungusvæðisins. Eftir að hafa ekið þannig 2—3 km, tókum við stefnu í SV og komum að snjómastri kl. 11.30. Gunnar Guðmundsson gekk í stefnu á Páls- fjall og mældi 463 m frá mastri að fyrstu sprungu. ) Kl. 13.20 komum við að neðri járnstöng, og mældust 4.9 km milli stanga. Þaðan gekk ferðin greiðlega niður á jökul- sporð. Komum þangað kl. 15.15. Magnús Jóhannsson (ágrip dagbókar). 96 JOKULL 1964

x

Jökull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.