Jökull


Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 40

Jökull - 01.12.1964, Blaðsíða 40
V. Hofsjökull 1962/63 1963/64 Nauthagajökull 1962/64 (2 ár)) ............................ -4-43 Múlajökull 1962/64 (2 ár) ................................. -4-56 VI. Langjökull Hagafellsjökull vestari 1962/64 (2 ár) .................... -4- 320 — eystri 1961/63 (2 ár) ...................... -4- 155 ? VII. Noröurlandsjöklar Gljúfrárjökull 1962/64 (2 ár) ............................. -t-37 ATHUGASEMDIR OG VIÐAUKAR Af 29 jökulsporðum, sem mældir voru haustið 1964, hafa 8 reyuzt vaxandi eða kyrrstæðir. Auk þess hefur Brúarjökull sprungið og hlaupið fram marga kílómetra, eins og nánar er skýrt frá á öðrum stað í þessu hefti. Síðujökull hefur líka sprungið mjög og gengið nokkuð fram. Virðist allmikill gangur í mörgum skriðjöklum frá Vatnajökli, en annars staðar hafa skriðjökl- ar hopað, sumir mjög mikið. Drangajökull. Byggð hefur nú fallið niður um sinn í Reykjarfirði nyrðra og í Leirufirði. Er því óhægt um vik að fylgjast með árlegum breytingum skriðjökla þar. Verður annaðhvort að gera þangað sérstakar ferðir í ágústlok eða taka myndir af jökulsporðunum úr flugvél. Jökulsporðurinn í Kaldalóni er orðinn mjög lítill, en lítið hefur gengið á hann síðustu 2—3 árin. Snœfellsjökull. Austan i Snæfellsjökli er nú orðið ekki um neina eiginlega skriðjökla að ræða. Þar hefur mælingum verið haldið uppi síðan 1931 á Hyrningsjökli og frá 1934 á Jökul- hálsi. Þá lá Hyrningsjökull niður í kvosina sunnan undir Goskúlu, en svo mætti nefna gjall- og vikurgígana austan i Snæfellsjökli, 825 m yfir sjó, þar sem hún er hæst. Norðan Gos- kúlu lá skriðjökulsjaðar niður að jafnsléttu á Jökulhálsi og þakti alla norðausturhlíðina að Geldingafelli. Á síðustu 30—33 árum hefur jökullinn hopað um 1000 m á þessum slóðum. Hyrningsjökull er horfinn og að norðaustan hefur jökulkápan hörfað upp í miðjar hlíðar. Hefur hún verið þunn og er enn. Sum árin hafa komið upp langir hryggir í mælingastefn- una, og verða mælingatölur þá hálfgerð mark- leysa. Haustið 1964 sá mælingamaðurinn, Haraldur Jónsson, hreppstjóri í Gröf, ekki fært að mæla í merkjastefnurnar og valdi því litla jökul- tungu í slakka vestur af Goskúlu og setti þar ný merki til þess að miða við eftirleiðis. Á Goskúlu stendur sæluhús Ferðafélags Is- lands, og eru veggir þess grafnir í rauðagjall upp að þakbrún. Nokkur jarðhiti er þar í gjall- inu, og myndast smáskútar undir vetrarsnjón- um. Veturinn 1932/33 mældist 3—5 st. hiti í slík- um skútum, þótt 5—7*st. frost væri úti. I Skeiðarárjökli hefur verið talsverður gang- ur sumarið og haustið 1964. Hannes á Núps- stað segir (21. des.), að jökullinn gangi „óð- fluga“ fram í lónin austan við mælingastaðinn. Ragnar i Skaftafelli segir, að mikill gangur muni vera í jöklinum við Fæirnestinda. Hafi hann hækkað þar til muna síðan haustið 1963. Heiman frá Skaftafelli að sjá hækkaði jökull- inn í stefnu á Hviríildalsskarð svo mikið frá því í maí til 14. ágúst, að ganga varð 18 metr- um hærra (lóðrétt) upp í túnbrekkuna á Hæð- um til þess að sjá sömu klettasyllu í Lóma- gnúpi. Frá 14. ágúst til októberloka varð enn að hækka sig um 5 m í sama skyni. Segir Ragn- ar, að hækkun hafi orðið á jöklinum alla leið, svo langt sem sést norður eftir og fram á jökul- sporð. „Það er eiris og hækkun verði meiri, eftir því sem framar kemur. . . Það er eins og straum- röst gangi eftir honum miðjum alla leið og dreifist síðan út til hliðanna." Við Morsárjökul var ekki hægt. að mæla á venjulegum stað vegna lóna. Var mælt frá merki, sem sett var upp 1960. Hafði jökullinn hopað þar 200 m á 4 árum. Skaftafells- og Svínafellsjökull. Guðlaugur á Svínaíelli segir, að báðir séu óvenjulega mikið sprungnir. Flosi Björnsson á Kvískerjum getur þess, að JÖKULL 1964 98

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.