Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 7
Samþykki
Stefnt er að því að um miðjan desember 2014, og á næstu þremur mánuðum þar
á eftir, geti umsækjendur samþykkt útreikninga. Þar með verður ákvarðaðri
leiðréttingarfjárhæð ráðstafað til lækkunar á höfuðstóli fasteignaveðlána á
fremsta veðrétti eða til myndunar sérstaks persónuafsláttar. Umþóttunartími
þeirra umsækjenda sem fá niðurstöður sínar síðar telst þrír mánuðir frá því að
upplýsingar viðkomandi eru birtar. Breyting á láni tekur gildi frá og með næsta
mánuði eftir að viðkomandi lántaki hefur staðfest útreikning.
Umsækjendur geta gert athugasemdir á leidretting.is telji þeir að ákvörðuð
leiðréttingarfjárhæð byggi á röngum upplýsingum. Varði athugasemdir önnur
atriði skal málinu beint til úrskurðarnefndar í gegnum leidretting.is.
Rafrænt samþykktarferli
Í lögum nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, er kveðið á
um að málsmeðferð skuli vera rafræn. Notkun veflykla stenst ekki þær lögformlegu
kröfur sem gerðar eru til skuldbindandi rafrænnar undirritunar um ráðstöfun
fjármuna. Til þess að gæta fyllsta öryggis er því nauðsynlegt að umsækjendur
noti rafræn skilríki við samþykkt og ráðstöfun leiðréttingarfjárhæðar.
Niðurstöður
Nú getur meirihluti umsækjenda um leiðréttingu kynnt sér niðurstöður
umsókna sinna á leidretting.is. Tölvupóstur hefur verið sendur öllum
umsækjendum um hvort niðurstöður þeirra liggi fyrir en afgreiðsla
nokkurs hluta umsókna tefst um hríð vegna breytinga sem orðið hafa á
högum viðkomandi umsækjenda. Í þeim tilfellum þar sem útreikningum
er ekki lokið verða niðurstöður birtar jafnharðan og þær eru tilbúnar
og viðkomandi gert viðvart að nýju með tölvupósti.
Birting
Umsækjendur geta skoðað niðurstöður útreikninga með rafrænum
skilríkjum eða veflykli RSK. Hafi breyting orðið á lögheimili eða í hjúskap
umsækjenda frá árunum 2008-2009 takmarkast birting upplýsinga við
umsækjendur sjálfa.
leidretting.is
442 1900
Opnunartími 9:30-15:30adstod@leidretting.is
birting – samþykki – ráðstöfun
Höfuðstólsleiðrétting
húsnæðislána
Nánari upplýsingar um höfuðstólsleiðréttingu húsnæðislána eru veittar á rsk.is/leidretting. Upplýsingar um rafræna undirritun er m.a. að finna á rsk.is/skilriki og skilriki.is.