Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 8
8 Fréttir Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Sveitarfélög á Suður- nesjum stefna ríkinu S amband sveitarfélaga á Suðurnesjum ætlar að höfða mál gegn íslenska ríkinu út af því að Vegagerðin rifti heimild samtakanna til að bjóða út einokun á akstri rútubif- reiða til og frá Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Þetta segir Ásgeir Eiríksson, sveitarstjóri í Vogum og fyrrverandi formaður Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum. Ásgeir segir að sambandið verði af miklum tekjum á hverju ári vegna riftunarinnar. Á þeirri forsendu grundvallast málareksturinn. „Við erum í málaferlum við ráðuneytið út af þessari riftun. Við teljum hana ólög- mæta þar sem hún eigi sér ekki stoð í samningi okkar við Vegagerðina. Þetta hefði skapað sambandinu mikl- ar tekjur sem við verðum þá af.“ Ásgeir segir að í fyrra hafi stað- ið til að Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum myndi bjóða út einkaleyfi til áætlunarferða rútubif- reiða til og frá Flugstöð Leifs Eiríks- sonar. Samkeppniseftirlitið hlutað- ist hins vegar til um þær fyrirtætlanir og gaf út álit þar sem stofnunin mót- mælti fyrirætluðu útboði um einokun á áætlunarleiðinni á milli flugstöðv- arinnar og Reykjavíkur. Þar sagði meðal annars: „Þá ítrekar Samkeppn- iseftirlitið tilmæli til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum að stöðva þegar í stað fyrrgreind áform sín um einokun á áætlunarleiðinni milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur.“ Samkeppniseftirlitið vildi sumsé halda keyrslu á viðkom- andi áætlunarleið frjálsri þannig að samkeppni gæti ríkt um hana á milli rútufyrirtækja. Risinn á rútubílamarkaðnum Fyrirtækið Kynnisferðir er risinn á rútubílamarkaðnum á Íslandi og hefur rekið Flugrútuna um árabil. Líkt og DV greindi frá á þriðjudaginn þá skilar fyrirtækið góðum hagn- aði þessi árin þar sem mikið góðæri hefur ríkt í ferðamannaiðnaðinum síðastliðin ár en auk aksturs til og frá Leifsstöð hefur fyrirtækið einnig boðið upp á ferðir á þekkta ferða- mannastaði eins og Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Fyrirtækið Allrahanda hefur einnig keyrt á milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur síð- astliðin ár. Kynnisferðir hafði lengi haft sér- leyfi á akstri til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, að sögn Ásgeirs, og byggði það leyfi á samningi við Sam- band sveitarfélaga á Suðurnesjum. Samkeppniseftirlitið var hins vegar mótfallið slíkri áframhaldandi ein- okun og greip því til álitsins. Íslenska ríkið var í lok árs í fyrra dæmt til að greiða rútubílafyrir- tækinu Hópbílaleigunni ehf. tæp- lega 250 milljóna króna skaðabæt- ur vegna þess að Ríkiskaup gengu ekki til samninga við fyrirtæk- ið um einkaleyfi á rútubílaakstri á Suðurnesjum árið 2005 þrátt fyrir að fyrirtækið hefði átt lægsta til- boðið. Lengi hefur því verið togast á um einkaleyfi til rútubílaferða á Suðurnesjum og verður svo áfram um sinn. Hver sem er má keyra Ekki liggur fyrir hver hefði feng- ið einkaleyfi á akstrinum ef Sam- band sveitarfélaga á Suðurnesjum hefði farið í útboðið. Í kjölfar álits Samkeppniseftirlitsins ákvað inn- anríkisráðuneytið að fara þess á leit við Vegagerðina að stofnunin rifti ákvæði samnings á milli Vegagerðar- innar og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þar sem kveðið er á um útboð á einkaleyfi til áætlunar- ferða á milli Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar og Reykjavíkur. Ásgeir segir að sambandið hefði ekki verið ánægt með þetta: „Það voru landshlutasamtökin á Suðurnesjum ekki ánægð með. Sam- tökin telja að sá samningur við Vega- gerðina sé ótvíræður og að í hon- um felist einkaleyfi á akstri til og frá flugstöðinni. Þetta endaði með því að Vegagerðin rifti einhliða þessu ákvæði samningsins við samtökin.“ Ásgeir segir að í kjölfarið megi segja að hver sem er geti stund- að áætlunarferðir til og frá Flug- stöð Leifs Eiríkssonar en það sem er breytt er að Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fær ekki neina hlut- deild í hagnaðinum sem verður til af þessum akstri. Í kjölfarið var ákveðið að höfða dómsmál gegn íslenska ríkinu að sögn Ásgeirs. Hann segir að málið verði tekið til efnismeðferðar fyrir dómi á fyrra hluta næsta árs. n Telja sig verða af miklum tekjum af rútubílaferðum frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Við teljum hana ólögmæta Aukin samkeppni Innanríkisráðuneyti Hönnu Birnu Krist- jánsdóttur ýtti á eftir riftuninni og hefur Samband sveitarfé- laga nú ákveðið að höfða dómsmál gegn ríkinu vegna hennar. Mynd SIgtRygguR ARI Ósátt Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er ósátt við íslenska ríkið vegna tekjumissis af áætlunarferðum. Myndin er frá Reykjanesbæ. Ákærður fyrir manndráp af gáleysi Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður af lögreglustjór- anum á Akureyri fyrir mann- dráp af gáleysi, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Manninum er gefið að sök að hafa ekið of hratt miðað við aðstæður á Ólafsfjarðarvegi í mars síðast- liðnum. Þar tók maðurinn fram úr snjóruðningstæki án þess að gæta nægilegrar varúðar, að því er kem- ur fram í ákæru. Maðurinn ók bíl sínum fram- an á bíl sem kom úr gagnstæðri átt með þeim afleiðingum að einn farþeganna í síðarnefnda bílnum lést nánast samstundis. Þá hlutu ökumaður og annar farþegi bílsins mikla áverka víða um líkamann. Í slysinu lést ung móðir frá Akur eyri, Zofia Gnidziejko, sem lét eftir sig eiginmann og tvö börn, fjögurra og tíu ára gömul. Fjölskylda konunnar sem lést í slysinu gera kröfu um að eigin- manni hennar og börnum verði greiddar þrjár milljónir króna hverju, alls níu milljónir í miska- bætur. Málið var þingfest á mánu- dag. Ý msar vísbendingar eru á lofti um að jólaverslunin muni verða líflegri í ár en í fyrra,“ segir í skýrslu Rannsóknarseturs versl- unarinnar á Bifröst um jólaverslun- ina í ár. Í skýrslunni kemur fram að batinn eftir efnahagsniðursveifluna á haustmánuðum 2008 hafi verið hæg- ur en stöðugur. Enn sé nokkuð langt í að verslunin nái sömu hæðum og fyrir hrun og hún sé þannig enn 15 til 20 prósentum minni að raunvirði en þegar hún var sem mest árið 2007. Nú virðist þó vera komið að kaflaskilum ef marka má skýrsluna. „Hagstofan greindi frá því í þjóð- hagsspá sinni í sumar að greina mætti aukinn kraft í innlendri eftirspurn. At- vinnuþátttaka hefur aukist á árinu, kaupmáttur jókst og skuldir heimil- anna hafa farið lækkandi en allt leiðir það til þess að kaupgeta heimilanna eykst,“ segir í skýrslunni. Áætlar Rann- sóknarsetur verslunarinnar að jóla- verslun aukist um 4,2 prósent frá síð- asta ári að nafnverði og að aukningin nemi 4 prósentum að magni til sé leið- rétt fyrir áætluðum verðhækkunum á tímabilinu. Í skýrslunni er, venju samkvæmt, einnig valin jólagjöfin í ár. Að þessu sinni varð nytjalist fyrir valinu en hún sameinar hönnun, hugvit og hand- verk. „Það er tímanna tákn að neyt- endur hafa bæði hagkvæmni og gæði að leiðarljósi við innkaupin. Þetta birt- ist meðal annars í því að nytjahlutir til heimilisins þurfa bæði að uppfylla praktískar þarfir og lífga upp á um- hverfið. Hagleiksfólk hefur þess vegna fengið útrás fyrir hæfileika sína í fegr- un nytjahluta af ýmsum toga,“ segir í skýrslunni um jólagjöfina í ár. Í ljósi þessa var það mat sérskipaðrar dóm- nefndar að jólagjöfin í ár væri nytja- list sem getur verið af ýmsum toga; heimatilbúin eða fjöldaframleidd, innlend eða erlend. n einar@dv.is Jólaverslun mun glæðast Jólagjöfin í ár er nytjalist að mati Rannsóknarseturs verslunarinnar nytjalist Nytjalist getur verið af ýmsum toga. Aðalatriðið er þó að hönnunin sameini notagildi og fagurfræði. Í skýrslunni segir að það sé alkunna að kaffi bragðast betur ef það er borið fram í fallegum bolla eins og þessum sem dæmi. Færri innbrot í Kópavogi Innbrot á heimili í Kópavogi voru ívið færri á fyrstu tíu mánuðum ársins í saman- burði við sama tímabil áranna 2012 og 2013. Þjófnuðum fækkaði líka í samanburði við síðasta ár, en eru engu að síð- ur yfir meðaltali í samanburði við önnur svæði í umdæminu. „Á því kunna reyndar að vera ýmsar skýringar og má meðal annars benda á Smára- lind, en þar er talsvert um hnupl og hefur það auðvitað áhrif á tölfræðina,“ segir á vef lögreglunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.