Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 12
Helgarblað 14.–17. nóvember 201412 Fréttir kynntu þér málið! SIÐMENNT w w w . s i d m e n n t . i s Málsvari veraldlegs samfélags Siðmennt Skráðu þig í félagið á www.sidmennt.is Ók konuna niður Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efn- is að karlmaður sæti gæsluvarð- haldi til 5. desember næstkomandi. Maðurinn er grunaður um alvar- lega líkamsárás á fyrrverandi sam- býliskonu sína að morgni laugar- dagsins 6. september síðastliðinn. Í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að maðurinn hafi ítrekað reynt að keyra konuna niður við heimili hennar. Þegar lögregla kom á vett- vang var konan meidd á fæti og hrufluð á hendi. Lögregla hóf þegar leit að manninum og var hann handtekinn á hóteli síðar sama dag. Konan sem varð fyrir árásinni sagði í skýrslutöku hjá lögreglu að hún hefði orðið vör við fyrrver- andi sambýlismann sinn að rífast við nágrannakonu hennar við hús hennar að morgni 6. september. Hún hafi horft á þau út um glugg- ann og maðurinn séð hana og sagst myndu drepa hana ef hún blandaði lögreglu í málið. Hann hafi síðan kastað skiptilykli í gegnum rúðu á svefnherbergi hennar. Í kjölfarið hafi hún farið út með skiptilykilinn til að ræða við manninn sem hafi verið mjög æstur. Hann hafi far- ið upp í bifreiðina og ekið á hana, hún hafi dottið og komið sér und- an honum en þá hafi hann bakkað og keyrt aftur á hana þar sem hún stóð á gangstétt. Maðurinn hafi síðan gert þriðju tilraunina en hún hafi komið sér undan bifreiðinni þá. Sagði konan að maðurinn hafi sagst ætla að drepa hana. Í úrskurði héraðsdóms kom fram að lögregla hefði rætt við vitni sem staðfestu frásögn konunnar. „Ég trúði á málstað okkar“ Styrmir Gunnarsson útskýrir upplýsingaöflun um kommúnista S varið er að ég hafði ekki efa- semdir um að ég gerði rétt með því að taka þetta verkefni að mér vegna þess að ég trúði á málstað okkar í kalda stríðinu, gerði mér grein fyrir að það var stríð, þótt það væri kalt en ekki heitt og í stríði er stundum óhjákvæmilegt að gera ýmislegt sem ella þætti ekki við hæfi,“ segir Styrmir Gunnarsson, rithöfund- ur og fyrrverandi ritstjóri Morgun- blaðsins, aðspurður af hverju hann telji enn rétt að hafa stundað upplýs- ingaöflun um stjórnmálastarf sósía- lista á Íslandi á sjöunda áratug síð- ustu aldar. Upplýsingar Styrmis rötuðu svo meðal annars í fréttir í Morgunblað- inu en voru einnig sendar til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæð- isflokksins og forsætisráðherra, og Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra. Frá þessu var greint í frétt í Morgun- blaðinu á fimmtudaginn en sú frétt byggir á bók eftir Styrmi um kalda stríðið sem kemur út í næstu viku. Styrmir var rétt rúmlega tvítug- ur þegar hann hóf samskipti sín við mann á vinstri væng íslenskra stjórn- mála árið 1961 með það fyrir aug- um að fá frá honum upplýsingar um starfsemi kommúnista hér á landi. Þetta gerði Styrmir að undirlagi Eyj- ólfs Konráðs Jónssonar, þáverandi ritstjóra Morgunblaðsins. Samskiptin áttu sér svo stað fram til ársins 1968. Í frétt Morgunblaðsins segir að Styrmir telji enn að hann hafi gert rétt með þessari upplýsingaöflun, jafnvel þó að upplýsingarnar hafi ekki bara verið nýttar til fréttaskrifa heldur hafi einnig ratað til stjórnmálamanna í Sjálfstæðisflokknum. „Þetta hafi verið upplýsingaöflun og hann hafi aldrei haft nokkrar efasemdir um að hann hafi gert rétt með því að vinna þetta verk.“ Styrmir segir frekari um- fjöllun um ástæður þessarar skoðun- ar sinnar vera að finna í bókinni. n ingi@dv.is Sumt er „óhjákvæmilegt“ í stríði Segir Styrmir um réttmæti upplýsingaöflun- ar sinnar um kommúnista. Mynd SiGtryGGur Ari Rannsókn langt komin Rannsókn lögreglunnar á Sel- fossi á kynferðisbroti gegn fatlaðri konu á Sólheimum er langt á veg komin. Samkvæmt heimildum DV hefur dregið til tíðinda í málinu. Búið er að yf- irheyra bæði brotaþola og ger- anda í málinu en enn er beðið eftir skýrslu frá sérfræðingi svo unnt sé að ljúka rannsókn. Þorgrímur Óli Sigurðsson, að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Selfossi, segist vonast til að fá hana í hendur á næstu dögum. Þá segir hann rannsóknarhagsmuni ekki hafa krafist þess að farið yrði fram á gæsluvarðhald yfir manninum. n Þrír sendir í vikunni á Litla-Hraun n Erfitt að stöðva neyslu á læknadópi S íðasta sunnudag þá var einn út úr heiminum á morfíni,“ segir fangi á Kvíabryggju í samtali við DV. Blaðið hef- ur heimildir fyrir því að inn- an fangelsisins Kvíabryggju sé neysla ýmissa tegunda læknadóps nokkuð útbreidd. Á dögunum var einn fangi svo bersýnilega í vímu að helmingur fanga var tekinn þvagprufu. Annar fangi sem DV ræddi við segir að þrír fangar hafi verið send- ir aftur á Litla-Hraun í kjölfarið. „Það var einn hérna, ég sá hann, hann datt utan í vegginn, hann var svo ruglað- ur. Hann var mjög furðulegur,“ segir fanginn. Bæði Birgir Guðmundsson, for- stöðumaður Kvíabryggju, og Páll Winkel fangelsismálastjóri segja að um sé að ræða vandamál sem erfitt sé að uppræta. „Þetta kemur fyrir hérna eins og í öðrum fangelsum að menn fái sér. Það er frekar sjaldgæft hérna en auðvitað kemur það fyrir hér eins og í öðrum fangelsum,“ segir Birgir í samtali við DV en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um umrætt atvik. „dópa og djamma eins og þeir vilja“ Fyrri fanginn á Kvíabryggju, sem DV ræddi við, heldur því fram að ástæðan fyrir því að vægt sé tekið á neyslu sumra fanga sé vinskapur við fangaverði. „Það er alveg ótrú- legt hvað sumir fangar komast upp með á Kvíabryggju, sumir sem hérna hafa verið sem eru að nota fíkni- efni eru sendir strax í burtu en þeir sem sleikja upp fangaverðina geta fengið að dópa og djamma eins og þeir vilja,“ segir hann. Birgir Guð- mundsson vísaði öllum spurning- um á Fangelsismálastofnun en tjáði blaðamanni þó að fíkniefnaneysla þekktist vissulega á Kvíabryggju líkt og í öðrum fangelsum. „Vel ruglaður“ Seinni fanginn sem DV ræddi við segir það ekki óalgeng að menn séu sendir aftur á Litla-Hraun skömmu eftir komu á Kvíabryggju. Yfirleitt sé um að ræða unga menn sem leiðist aftur í fyrri neyslu þegar þeir sjá hversu hlutfallslega mikið frelsi sé á Kvíabryggju. „Þegar það eru teknar prufur hérna þá eru þeir teknir sem vitað er um og svo er helmingur af húsinu tekinn líka. Ég veit ekki hvort að þetta hafi verið morfín en þetta voru pillur sem hann var greinilega að neyta. Hann var vel ruglaður, það sást alveg á honum. Það voru þrír sendir á Litla-Hraun, það mældist í einum óvart sem enginn vissi af,“ segir seinni fanginn. Erfitt að uppræta læknadóp Páll Winkel bendir á í samtali við DV að mjög erfitt geti verið að uppræta innflutning og neyslu á svokölluðu læknadópi í fangelsum. Um sé að ræða efni sem fíkniefnaleitarhundar finni ekki í flestum tilvikum og séu sömuleiðis oft í mjög smáum skömmtum sem geri það að verk- um að auðveldara sé að fela efnið. Fangaverðir séu þó þjálfaðir í að bera kennsl á einkenni fíkniefnanotkunar. „Við erum meðvitaðir um þetta, í fangelsin koma reglulega inn bæði fíkniefni og þetta svokallaða lækna- dóp, þessi lyf sem fíkniefnahundar greina ekki. Það er okkar verkefni að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir það. Það er einfaldlega þannig að meðan það er vilji til að neyta fíkniefna þá munu menn reyna að koma efnunum inn,“ segir Páll. Hefur áhrif á reynsluvist Páll segir að tekið sé nokkuð hart á þeim föngum sem staðnir eru að verki við notkun fíkniefna. Séu þeir í opnu úrræði svo sem Kvíabryggju eða Sogni eru viðkomandi send- ir aftur á Litla-Hraun komist upp um neyslu. „Þetta kemur reglu- lega upp. Við mælum okkar vist- menn, þeir eru mældir bæði reglu- lega og óreglulega. Ef viðkomandi er í neyslu, og ég tala nú ekki um ef ver- ið er að senda efni inn, þá eru þeir fluttir í lokað fangelsi og slíkt hefur áhrif á allan framgang í refsivistinni. Það getur haft áhrif á reynsluvist, vistun á áfangaheimili og svo fram- vegis,“ segir Páll. Suboxone algengast Páll segir að um sé að ræða þvagprufur, en slík próf greina raun- ar ekki allar tegundir læknadóps. „Það eru reglulega að koma inn ný efni, nýtt dóp. Við fylgjumst með og um leið og við heyrum af einhverju nýju, þá er prófað fyrir því,“ segir Páll. Hann bendir á að í einhverjum tilvikum kunni að vera um að ræða neyslu á morfíni, en annað lækna- dóp sé þó algengara. „Maður heyrir helst af Suboxone, en maður heyri líka af morfínplástrum sem eru þá leystir upp. Sum þessara efna eru þannig að það fer alveg rosalega lítið fyrir þeim. Þannig að það er erfitt að stoppa þetta með öllu,“ segir Páll. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is „Það er alveg ótrú- legt hvað sumir fangar komast upp með á Kvíabryggju. Kvíabryggja Þrír vistmenn voru sendir aftur á Litla-Hraun í vikunni eftir að fíkniefni fundust í þvagprufu. Helming- ur fanga var tekinn í próf eftir að einn fangi sást greinilega í vímu á sunnudag. „Út úr heiminum“ á Kvíabryggju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.