Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 14
Helgarblað 14.–17. nóvember 201414 Fréttir StefnulauSir Stjórnmálaflokkar n Samfylkingin enn í stefnumótun vegna olíuvinnslu n Ríkisstjórnarflokkarnir ætla að minnka útblástur og vinna olíu n VG með og á móti R íkisstjórnin mun eins og kostur er stuðla að því að nýting hugsanlegra olíu- og gasauðlinda geti hafist sem fyrst, finnist þær í vinnanlegu magni,“ segir í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnar Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks. Það er því skýrt að stefna íslenskra yfir- valda er ekki aðeins að sækja hart að leit að olíu og gasi heldur að flýta eins og mögulegt er uppbyggingu kolvetnisstarfsemi. Ætluðum að minnka mengun Árið 2007 markaði ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks þá stefnu að minnka nettó útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 50–75 prósent til ársins 2050 miðað við árið 1990. Með nettóútstreymi er átt við útstreymi að frádreginni bindingu kolefnis í andrúmsloft- inu. Binding þess fer meðal ann- ast fram með aukinni skógrækt og landgræðslu. „ Leitað verður allra hagkvæmra leiða til að minnka út- streymi gróðurhúsalofttegunda. Markvisst verður stuðlað að sam- drætti í notkun jarðefnaeldsneyt- is, og þess í stað nýtt endurnýjan- leg orka og loftslagsvænt eldsneyti,“ segir meðal annars í stefnu ís- lenskra yfirvalda. Umhverfisráðuneytið gaf árið 2009 út skýrslu um möguleika til að draga úr nettóútstreymi gróður- húsalofttegunda hér á landi – enda í samræmi við gildandi stefnu. Umhverfissamtök spurðu fulltrúa allra stjórnmálaflokka um afstöðu og stefnu flokkanna til samdrátt- ar gróðurhúsaloftegunda á Íslandi og hver markmiðin ættu að vera í þeim málum. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, svaraði fyrir hönd flokksins sem nú fer með iðnaðar- og atvinnuvegaráðuneytið. „Árið 2007 þá tókum við þátt í því sem ríkisstjórnarflokkur að marka þá stefnu til 2050 að samdrátturinn ætti að verða 50–75 prósent. Þetta er metnaðarfullt markmið og við viljum halda okkur við það. Hvað varðar 2030 þá höfum við ekki sett okkur þetta markmið en við teljum hins vegar að við verðum að vinna þetta áfram á grundvelli megin- stefnunnar og í takti við nágranna- þjóðirnar.“ Þannig staðfesti Birgir fyrir kjós- endum að stefnan væri enn hluti af grundvallarmarkmiðum flokks- ins. „Þegar kemur að heildarlosun og gróðurhúsaáhrifum þá skiptir meira máli að hugsa um notkun- ina en ekki hvar olían er unnin. Þannig að við höfum stutt áform- in á Drekasvæðinu,“ svaraði Birgir spurningu um hvernig olíuvinnsla á Drekasvæðinu samræmdist markmiðum alþjóðasamfélagsins um að takmarka hlýnun jarðar við tvær gráður að meðaltali. Umhverfisráðherra telur sátt „Varðandi olíu vinnsl una er það mál í ákveðnum far vegi sem hef- ur verið nokk ur sátt um hér í þing- inu á meðal ólíkra flokka,“ sagði Sig urður Ingi Jóhannsson um- hverfisráðherra á Alþingi í septem- ber á þessu ári. Sigurður var þar að svara fyrirspurn Svandísar Svavars- dóttur, þingkonu VG og fyrrverandi umhverfisráðherra, um hver yrðu svör Íslands til Ban Ki-moon, aðal- ritara Sameinuðu þjóðannna, sem þá hafði boðað þjóðarleiðtoga til fundar í New York til að ræða lofts- lagsmál. Þá hafði Ban Ki-moon hvatt leiðtogana til að taka frum- kvæði í aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hin þverpólitíska sátt sem Sigurður vitnar þar í á sér vissulega stoð. Þingmenn flestra flokka hafa lýst yfir stuðningi við olíuvinnslu þótt vissulega hafi einstaka óánægju- raddir fengið að heyrast. VG á móti „Þetta er svona óðagotsaðgerð í mínum huga, sem farið var í, og al- gerlega, eins og ég segi, að vanbúnu máli,“ sagði Kolbrún Halldórsdótt- ir, fyrrverandi þingkona VG, árið 2009. Kolbrún var þá umhverfis- ráðherra. Hún hélt því um leið fram að VG væru andsnúin olíuvinnslu enda ekki í samræmi við nútt- úruverndarstefnu flokksins. Hún sagðist einnig telja að Ísland væri engan veginn í stakk búið til að gerast olíuríki og að olíuvinnsla á Drekasvæðinu væri ekki rétta leiðin til að koma samfélaginu á réttan kjöl. Þá benti hún á að VG hefðu ekki stutt áform um olíuvinnslu í atkvæðagreiðslu árið 2008. Á móti kemur að VG hafa með aðgerðum sínum í ríkisstjórn Sam- fylkingar og VG stutt olíuvinnslu. Þá má benda á að árið 2013 unnu Stöð 2 og Fréttablaðið könnun á stuðn- ingi almennings við olíuvinnslu á Íslandi. 80 prósent svarenda sögð- ust styðja að stjórn völd leyfðu olíu- vinnslu á Dreka svæðinu. Þá leiddi könnunin einnig í ljós að meirihluti kjósenda allra flokka styður vinnsl- una. Þar á meðal eru kjósendur VG sem er sá flokkur sem mestar efa- semdir hefur haft á vinnslu. Hörð átök Á flokksstjórnarfundi VG í ágúst á þessu ári urðu nokkur átök um olíu- vinnslu. Málefnatillaga var raun- ar ekki tekin til afgreiðslu en sam- þykkt var að vísa málinu til stjórnar. Á tungutaki stjórnmálanna þýðir slík samþykkt iðulega að málinu sé frestað og raunar ýtt til hlið- ar án þess að hafna því með bein- um hætti. Umdeild mál eru þannig gjarnan færð til stjórnar í stað þess að þeim sé afgerandi hafnað enda gæti slíkt valdið kurr í baklandi flokkanna. Eyjan fjallaði um fund- inn á sínum tíma en í frétt vefsins segir að Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður flokksins og núverandi þingmaður, hafi raunar sigrað Svandísi á málefnaþinginu. Sem ráðherra talaði Steingrímur alla jafna fyrir olíuvinnslu en þó á varfærnislegum nótum. Um af- stöðu Steingríms má benda á að árið 2001, þegar lög um kolvetnis- vinnslu í íslenskri efnahagslögsögu voru samþykkt var Steingrímur nefndur sem einn þeirra sem hefðu áhuga á vinnslu en töluðu varfærn- islega; tæki sér jafnvel stöðu aftur- halds. Því verður þó ekki neitað að ríkisstjórn Samfylkingar og VG átti beinan þátt í núverandi stefnu; að vinna olíu við Íslandsstrendur. Stefna í mótun Samfylkingin hélt nýlega fund um olíuvinnslu á Íslandsmiðum. Í sam- tali við Morgunblaðið sagði Katrín Júlíusdóttir, þingkona flokksins og fyrrverandi iðnaðarráðherra, að fundurinn væri liður í stefnumót- unarvinnu Samfylkingarinnar. „Það hafa komið upp skeptísk ari sjón ar mið á síðustu árum gagn vart olíu vinnslu,“ sagði Katrín við blaðið og bætti við að rétt væri að hlusta á slíkt. „Við eig um und ir öll um kring- um stæðum að stíga var lega til jarð- ar þegar kem ur að auðlind un um okk ar.“ Vissulega er rétt að hlutfall þeirra sem eru gagnrýnir á olíu- vinnslu hefur hækkað en vert að benda á að Samfylkingin var þar til nýlega í lykilstöðu er varðar stefnumótun varðandi olíuvinnslu enda flokkurinn sem fór með ráðu- neyti iðnaðar fram til þess tíma er Steingrímur J. Sigfússon, fyrrver- andi formaður VG, tók við atvinnu- vegaráðuneytinu. Stefnumótunin er því nokkrum árum seinna en ef til vill hefði verið heppilegt. Össur er spenntur „Það var aldrei tekin nein stefnu- mark andi umræða um þetta inn- an flokks ins þótt umræðan hafi átt sér stað. Sér stök stefnu mörk un um þetta mál átti sér aldrei stað og það má kannski segja að það sé vel og miður,“ sagði Katrín við Morgun- blaðið. Skortur á stefnumótun hefur ekki stöðvað fulltrúa flokks- ins í yfirlýsingum um stórkostleg tækifæri fyrir Íslendinga með olíu- vinnslu. „Við munum fyrr en seinna skipa okkur á bekk með olíuþjóð- um heimsins. Ég bind sterkar vonir við að olía og gas muni skapa mik- inn auð á Íslandi, og afrakstur okk- ar mun allur renna í sameiginlega sjóði,“ skrifaði Össur Skarphéðins- son, þingmaður Samfylkingarinn- ar, um olíuvinnslu árið 2008. Össur sló svo á svipaða strengi árið 2012, þá utanríkisráðherra, á fundi Arion banka um olíuvinnslu á Dreka- svæðinu. „Olíuvinnsla er einn af mörgum möguleikum sem eru á sjóndeildarhring Íslendinga og í framtíðinni mun olíuvinnsla, og þjónusta við olíusvæðin þrjú, geta skapað umtalsverðan auð fyrir ís- lenskt samfélag.“ Stefnuleysi flokkanna Fjallað var um innleiðingu fisk- veiðistjórnunarkerfisins í Skírni árið 2013 í grein eftir Svan Krist- jánsson stjórnmálafræðing. Svanur kannaði stefnumótun og starf stjórnmálaflokkanna í fiskveiði- stjórnun á þeim tíma sem inn- leiðing kvótakerfisins átti sér stað sem og í kringum endurskoðun kerfisins seinna á níunda áratugn- um. Niðurstaða Svans er að raunar hafi engir flokkar, utan Kvennalist- ans, unnið heimavinnuna og búið yfir heildstæðri stefnu í fiskveiði- stjórnunarmálum. „Í byrjun nóvember 1987 lagði Kvennalistinn fyrstur flokka fram stefnu um stjórnun fiskveiða ásamt eigin tillögum um grundvallar- breytingar á gildandi lögum.15 Kvennalistinn hafnaði með öllu því kvótakerfi sem verið hafði frá 1983,“ segir í greininni. Skrifin fela í sér að einhver stærsta stjórnmálaaðgerð „Tilgangur slíks félags er að gæta íslenskra hags- muna með því að halda utan um leyfi til olíu- og gasvinnslu. „Þannig að við höfum stutt áformin á Drekasvæðinu. Atli Þór Fanndal atli@thorfanndal.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.