Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 19
Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Fréttir 19
Skjaldborgin um Hönnu birnu
Ráðherra breytir
frásögn sinni
Yfirheyrsla „reyndi á“ Gísla
Hanna Birna hafnar því nú, sem
hún sagði í Kastljósi þann 26.
ágúst, að Gísli Freyr hefði beðið
hana um að beita sér fyrir því að yf
irheyrslu yfir honum yrði flýtt.
Í viðtalinu í sumar sagðist
Hanna Birna eingöngu hafa ósk
að eftir því við Stefán Eiríksson,
þáverandi lögreglustjóra á höfuð
borgarsvæðinu, að yfirheyrslu yfir
Gísla Frey yrði flýtt vegna þess að
Gísli Freyr bað hana um það.
„Það var beiðni af hálfu Gísla
Freys um það að fá, vegna þess að
þeir óskuðu eftir því að hann kæmi
í rannsókn, að því yrði flýtt að hann
kæmi til yfirheyrslu. Það er ekkert
óeðlilegt við það,“ sagði hún þá.
Gísli Freyr þrætti fyrir þetta í
Kastljósvið tali
á þriðjudag og sagð
ist ekki hafa beðið um að yfir
heyrslu yrði flýtt. Þegar fréttastofa
RÚV ræddi við Hönnu Birnu á
miðvikudag tók hún í sama streng
og Gísli Freyr. Þannig hafði frásögn
hennar breyst og aðspurð hvort
um beiðni af hálfu Gísla Freys
hefði verið að ræða svaraði hún:
„Það var ekkert þannig í því. Mér
fannst sárt gagnvart Gísla vegna
þess að hann átti að fara í yfir
heyrslu með fimm daga fyrirvara.
Mér þótti það sárt. Ég fann hvern
ig það reyndi á hann og það er ekk
ert óeðlilegt við það að það sé ósk
að eftir því að því sé flýtt ef það er
möguleiki.“
Játaði Gísli Freyr hlaut átta mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Mynd Sigtryggur Ari
augljóslega raunin.
Ráðherrar sitja í umboði
meirihluta Alþingis og starfa al
farið á ábyrgð þess. Píratar hafa
boðað vantrauststillögu gegn
Hönnu Birnu allt frá því að upp
lýst var um afskipti hennar af
lögreglurannsókninni. Stjórnar
andstaðan öll kallar nú eftir taf
arlausri afsögn Hönnu Birnu en
þingmenn ríkisstjórnarinnar slá
skjaldborg um ráðherra. n
n Sigmundur Davíð og Bjarni Benidiktsson lýsa yfir stuðning við Hönnu Birnu
Styðja Hönnu
Birnu Formenn
Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins
líta ekki á það sem af-
sagnarsök að pólitískur
aðstoðarmaður fremji
lögbrot gegn hælisleit-
endum og ráðherra
segi Alþingi ósatt um
staðreyndir málsins.
Mynd Þorri
Boltinn í höndum
Hönnu Birnu
Stuðningurinn innan flokksins færir ábyrgðina á framhaldinu til Hönnu Birnu
F
orkólfar innan Sjálfstæðis
flokksins, sem DV hefur
náð sambandi við, vísa yfir
leitt til þess að beðið sé eftir
skýrslu umboðsmanns Al
þingis um lekamálið. Þingmenn
gefa lítið upp um umræður um
stöðu Hönnu Birnu Kristjáns
dóttur, varaformanns flokksins,
sem fram fóru á þingflokksfundi
síðastliðinn miðvikudag. Undan
tekningarlítið er vísað til Bjarna
Benediktssonar, formanns flokks
ins, sem lýsti því yfir eftir fundinn
að Hanna Birna nyti trausts og að
breiður stuðningur hefði verið við
hana á fundi þingflokksins. Sér
stök umræða um lekamálið fór
fram um miðjan september síð
astliðinn á Alþingi. Stjórnarand
stæðingar brugðust þá hart við
þeirri ráðstöfun að innanríkis
ráðuneytið skyldi hafa verið brot
ið upp vegna rannsóknar á leka
málinu og með nokkrum hætti í
þágu Hönnu Birnu. Bjarni Bene
diktsson sagði efnislega við það
tækifæri að Alþingi væri ekki rétti
vettvangurinn til þess að ræða
flokksaga yfir einstökum ráð
herrum. Nú hefur hann lýst yfir
afdráttarlausum stuðningi við
Hönnu Birnu og er ekki annað að
sjá en sá stuðningur sé einnig æði
víðtækur innan þingflokksins.
En ekki fullur einhugur
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur þó lýst
opinberlega þeirri skoðun sinni að
ráðherra beri fulla pólitíska ábyrgð
á aðstoðarmönnum sínum. Hafi
þeir brotið hegningarlög í störfum
sínum fyrir ráðherrann beri ráð
herra að víkja á grundvelli hlut
lægrar og pólitískrar ábyrgðar „og
því skipti ekki máli þótt ráðherr
ann sjálfur hefði ekki brotið af sér.
Þessi skoðun mín hefur ekki breyst
og hefur komið fram opinberlega,“
segir hann í pistli á Pressunni.
Hann segir enn fremur að Hanna
Birna og Bjarni, formaður flokks
ins, hafi farið ítarlega yfir málið á
þingflokksfundinum síðastliðinn
miðvikudag. „Ég virði hennar
sjónarmið í málinu eins og hún
hefur alltaf virt mín. Mismunandi
sjónarmið okkar í þessu máli leiðir
ekki til vantrausts af minni hálfu á
ráðherrann. Svona til upplýsingar
höfum við verið ósammála um
fleiri mál, jafnvel prinsippmál, án
þess að ég hyrfi frá stuðningi við
hana. Sama má segja um fleiri ráð
herra.“
Sjálfdæmi Hönnu Birnu um
framhaldið
Umboðsmaður Alþingis skil
ar þinginu áliti sínu um sam
skipti innanríkisráðherra og þá
verandi lögreglustjóra, Stefáns
Eiríkssonar, í næstu viku. Þannig
er ljóst að þótt aðstoðarmaður
ráðherra hafi verið fundinn sek
ur um trúnaðarbrot er málinu alls
ekki lokið. Jafn ljóst er að stuðn
ingur flokksformannsins við
Hönnu Birnu er óhaggaður að
minnsta kosti þar til niðurstöður
umboðsmanns liggja fyrir. Margt
bendir til þess að auki að þótt þær
niðurstöður verði Hönnu Birnu í
óhag falli formaður Sjálfstæðis
flokksins ekki frá stuðningi sín
um við hana. Með nokkrum rök
um má því segja að með stuðningi
sínum hafi flokksformaðurinn og
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
varpað boltanum í hendur Hönnu
Birnu. Þannig verði hún að lesa í
aðstæður sem upp koma og eiga
það við samvisku sína hvort hún
situr eða stígur úr ráðherrastól. n
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Samviskan Stuðningur
Bjarna Benediktssonar,
flokksformanns Sjálfstæð-
isflokksins, við Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, varafor-
mann flokksins, ræður
úrslitum. Um leið þarf hún
að eiga það við samvisku
sína hvort hún situr eða
stígur upp úr ráðherrastól.
Mynd Sigtryggur Ari JóHAnnSSon.