Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 20
20 Fréttir NÝTT FRÁ TERRATRAAC ATII Amer ísk hágæ ða dekk! Smiðjuvegi 34 · Rauð gata · www.bilko.is · Sími 557-9110 Kostnaður sem krabbameinssjúklingar bera sjálfir Eitt af því sem hefur verið til umræðu að undanförnu er aukin kostnaðarþátttaka sjúklinga. Krabbameinssjúklingar eru þar ekki undan- skildir. Í meðfylgjandi töflu má sjá aukinn kostnað krabbameinssjúklinga á undanförnum árum. Upplýsingarnar eru fengnar úr skýrslu um greiðsluþátttöku sjúklinga sem gerð var fyrir Krabbameinsfélagið í september 2013. Sundurliðaðar upplýsingar frá Landspítalanum fyrir Krabbameinsfélagið Kostnaður í krónum 2011 2013 Hækkun % Aukinn lyfjakostnaður Dæmi 1: Sjúklingur fer í skurðaðgerð 167.006 191.196 14,48 69.415 Lyfjameðferð og geislameðferð Dæmi 2: Sjúklingur sem fer í skurðaðgerð 195.211 214.695 10 69.415 Uppbyggingu brjósts og lyfjameðf. Dæmi 3: Sjúklingur sem fer í skurðaðgerð 49.205 54.684 11 69.415 Raunveruleg dæmi frá Norðurlöndum Danmörk: Íslensk kona á fertugsaldri sem greindist með krabbamein í móðurlífi árið 2010 fór í krabbameinsmeðferð í Kaupmanna- höfn. Meðal annars var um að ræða geislameðferð og lyfjameðferð. Hún fékk síðan læknisþjónustu heim til sín ásamt sjúkraþjálfun og sálfræðiaðstoð. Konan þurfti ekkert að greiða fyrir þessa þjónustu. Svíþjóð: Íslenskur karl á sextugsaldri greindist með krabbamein í lungum árið 2011. Í Svíþjóð er öll krabbameinsmeðferð án kostnaðar fyrir sjúklinginn og er þá alveg sama hvort um er að ræða læknisheimsóknir, rannsóknir, heimahjúkrun eða lyf. KrabbameinssjúKlingar hafa verulegar áhyggjur n Staðan í krabbameinslækningum á Íslandi n Það vantar krabbameinslækna, nauðsynleg tæki og ný lyf Þ róunin í krabbameinslækn­ ingum á Íslandi veldur læknum, sjúklingum og að­ standendum verulegum áhyggjum. Erfitt er að manna stöður á krabbameinsdeild Landspítalans og er meðalaldur lækna orðinn hár. Alls vantar sex lækna til starfa á Landspítalanum, að mati yfirlæknis, og þá er aðstaðan á deildinni ekki nógu góð. Nauðsyn­ leg tæki eru ekki til staðar og þá er tregða í stjórnvöldum við að taka upp ný lyf og meðferðarúrræði. DV ræddi við Ragnheiði Haralds­ dóttur, forstjóra Krabbameinsfé­ lagsins, Gunnar Bjarna Ragnars­ son krabbameinslækni og Jakob Jóhannsson, krabbameinslækni og stjórnarformann Krabbameins­ félagsins, um stöðuna og horfur í krabbameinslækningum hér á landi. Hár meðalaldur krabbameinslækna „Það sem brennur helst á okkur er þessi mannfæð sem við höfum orðið fyrir, eða þetta tap á krabbameins­ læknum sem við höfum orðið fyrir síðustu árin,“ segir Jakob Jóhanns­ son, yfirlæknir við geislameðferð krabbameins á Landspítalanum og formaður stjórnar Krabbameinsfé­ lagsins. „Margir hafa hætt á síðustu árum. Þetta er meðal annars fólk í blóma lífsins sem er flutt út, en þetta er fólkið sem átti að taka við af okkur sem eldri erum. Þessi hópur er ekki lengur til staðar og meðalaldur er orðinn svolítið hár,“ segir Jakob. „Við verðum vör við það að sjúk­ lingar hafa orðið verulega miklar áhyggjur af þróun mála og það er íþyngjandi fyrir veikt fólk,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, í samtali við DV. Krabbameinsfélagið hef­ ur að undanförnu verið með ráð­ stefnur og fræðslufundi um stöðuna eins og hún er á krabbameinsdeild Landspítalans og horfurnar næstu árin. Undir lok október hélt félagið meðal annars málþing þar sem Helgi Sigurðsson, prófessor og yfirlækn­ ir krabbameinsdeildar Landspítal­ ans, hélt erindi. Sagði hann með­ al annars sex krabbameinslækna vanta til starfa á Landspítalanum, en þeir eru aðeins átta í dag. „Það er ekki til að létta okkur áhyggjurnar þegar við rýnum í tölurnar og sjáum hvernig þróun­ in er. Það er deginum ljósara að það verður að grípa til einhverra sér­ stakra ráða til þess að snúa blaðinu við. Það eru okkar skilaboð til stjórn­ valda,“ segir Ragnheiður. „Það blas­ ir við að það verður að koma meira fjármagn til spítalans. Það þarf að tryggja að hann verði meira aðlandi vinnustaður. Það þarf líka að búa hann miklu betur tækjum því við vitum að læknar eru meðal annars að fara því þeim hrýs hugur við að stunda lækningar við þær aðstæður sem mönnum er boðið upp á á Landspítalanum núna,“ bætir hún við. „Fólk vill ekki koma heim,“ segir Jakob enn fremur. „Það hljóta að vera margir hlutir sem valda því. Auðvitað eru það kjörin, mikil vinna, mikil viðvera hér á krabbameins­ deildinni, aðstaða er ekki eins góð og úti og menn hafa minni tíma til að sinna vísindavinnu. Hér vantar einnig tæki sem menn hafa aðgang að úti, til dæmis jáeindaskanna.“ Brýnt að fá jáeindaskanna Meðal þess sem mikið hefur verið í umræðunni að undanförnu er um­ ræddur jáeindaskanni. Um hund­ rað krabbameinssjúklingar eru sendir til Danmerkur á hverju ári í jáeindaskanna en slíkt tæki hefur aldrei verið til hér á landi. Jakob seg­ ir þörfina vera enn meiri. „Við velj­ um mjög vandlega þá sem við send­ um út. Ef við myndum hafa hann hérna þá myndum við nota hann miklu meira en við annars gerum.“ Jakob segir hugsanlegt að þörfin hlaupi á þúsundum, í stað þeirra hundrað sem fara til Danmerkur ár hvert. Þá segir hann nokkuð ljóst að enn fleiri verði sendir út á næstu misserum með tilkomu nýs geisla­ tækis á krabbameinsdeildina. „Nú erum við búin að fá mjög full­ komið geislatæki, eitt það fullkomn­ asta sem hægt er að fá í dag, sem gerir það að verkum að við getum verið nákvæmari við að gefa geisla­ meðferð. En til að auka þessa ná­ kvæmni þurfum við mjög líklega að fara að senda fólk út í jáeindaskanna til að hjálpa okkur að gera geisla­ meðferðina enn hnitmiðaðri. Þetta á sérstaklega við um ákveðna tegund­ ir af lungnakrabbameinum. Við vit­ um að stundum erum við að geisla mjög stórt svæði því við höldum að eitthvað sé krabbamein sem er ekki krabbamein. Svo getur vel verið að við séum stundum að geisla of lítið svæði, sem jáeindaskanni myndi sýna okkur,“ segir Jakob. Ástæðurnar sem gefnar hafa verið fyrir því hvers vegna enginn jáeindaskanni hefur verið til hér á landi eru tvær; annars vegar er tæk­ ið mjög dýrt og hins vegar hentar húsnæði Landspítalans ekki undir skannann. „Reyndar hefur verðið á þessum skanna verið að lækka,“ segir Jakob. „Það eru ekki mörg ár síðan hann kostaði tvo milljarða, en ætli hann sé ekki kominn nið­ ur í svona 1,2 milljarða í dag. Nýja geislatækið, sem við keyptum núna, kostaði hálfan milljarð, til saman­ burðar. Við getum ekki beðið eftir Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is „Deginum ljósara að það verður að grípa til einhverra sérstakra ráða til þess að snúa blaðinu við. Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Jakob Jóhannsson, krabbameinslæknir og stjórnarformaður Krabbameinsfélagsins Jáeindaskanni kostar nú mun minna en hann gerði þegar fyrst var talað um að Landspítalinn þyrfti að eignast hann. myND SigtRygguR ARi Heilbrigðis- kerfi í molum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.