Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 14.–17. nóvember 2014
Dæmdur í 36
ára fangelsi
Lee Joon-seok, skipstjóri suður-
kóresku ferjunnar sem sökk í
apríl á þessu ári með þeim af-
leiðingum að 300 fórust, var í
vikunni dæmdur í 36 ára fangelsi
fyrir vítavert gáleysi sem hann
sýndi af sér á slysstað. Joon-seok
flúði frá borði þegar ferjan sökk,
án þess að koma farþegum til
bjargar. Flestir þeirra voru börn.
Joon-seok hafði verið ákærð-
ur fyrir manndráp og saksóknari
fór fram á dauðarefsingu. Hann
var sýknaður af þeirri ákæru.
Joon-seok var á meðal 15
áhafnarmeðlima sem voru sóttir
til saka vegna slyssins.
472 farþegar voru í ferjunni
þegar henni hvolfdi 16. apríl
síðastliðinn. Aðeins 172 þeirra
komust af.
Fá lítið sem ekkert
greitt fyrir vinnuna
n Norðurkóreskir verkamenn sendir til Katar n Halda 10 prósentum launa
Þ
úsundir farandverkamanna
frá Norður-Kóreu eru við
störf í furstadæminu Katar
þar sem undirbúningur
vegna heimsmeistaramóts-
ins í knattspyrnu árið 2022 er í full-
um gangi. Líkja má aðstæðum verka-
mannanna við þrælkunarbúðir því
þeir fá lítið sem ekkert greitt fyrir
vinnu sína. Breska blaðið Guardian
hefur undanfarin misseri fjallað ítar-
lega um aðbúnað verkafólks í Katar í
tengslum við heimsmeistaramótið og
beindi það sjónum sínum að verka-
mönnum frá Norður-Kóreu í umfjöll-
un sinni á dögunum.
Sumir fá ekki neitt
Blaðið hefur rætt við fjölda norður-
kóreskra verkamanna sem starfað hafa
í Katar, þá einna helst höfuðborginni
Doha þar sem vinna við nýjan borgar-
hluta er í fullum gangi. Algengast að
verkamennirnir séu við vinnu í þrjú
ár áður en þeim er leyft að halda aftur
til Norður-Kóreu. Áður en þeir leggja
af stað er þeim lofað veglegri greiðslu
þegar þeir snúa aftur heim. Þegar upp
er staðið fá flestir einungis lítinn hluta
þess sem lofað var, í kringum tíu pró-
sent af heildarupphæðinni, á meðan
sumir fá ekki neitt.
Einn Norður-Kóreumaður við
vinnu í Doha orðaði það þannig í sam-
tali við blaðamann að þarna væru
þeir komnir til að þjóð þeirra fengi
verðmætan og mikilvægan gjaldeyri í
þjóðarbúið. Aðbúnaður farandverka-
manna í Asíu og Mið-Austurlöndum
hefur löngum verið gagnrýndur. En
þegar heilu þjóðirnar eru farnar að ýta
undir og jafnvel eiga beina aðkomu að
því sem kalla mætti nútímaþrælahald
þykir steininn hafa tekið úr.
Engar úrbætur
Norðurkóresk yfirvöld hafa lengi verið
undir vökulum augum mannréttinda-
samtaka vegna mannréttinda mála í
landinu. Í nýlegri skýrslu Sameinuðu
þjóðanna voru yfirvöld beinlínis sök-
uð um glæpi gegn mannkyninu. Yfir-
völd, undir forystu Kim Jong-un,
skella skollaeyrum við kröfum al-
þjóðasamfélagsins um úrbætur.
Í umfjöllun Guardian kemur fram
að gjaldeyririnn sem verkamennirnir
fá, eða eiga að fá, geri mikið gagn fyrir
brothættan efnahag Norður-Kóreu.
Yfirvöld sjái einfaldlega hag sínum
best borgið með að haldleggja þau
laun sem með réttu ættu að fara til
þeirra sem sjá um vinnuna.
Miklar framkvæmdir standa sem
fyrr segir yfir við gerð nýs borgarhluta
örfáa kílómetra norður af miðborg
Doha. Þessi nýi borgarhluti heitir
Lusail og er honum ætlað að verða
eins konar miðdepill heimsmeistara-
mótsins 2022. Þar mun úrslitaleikur
keppninnar fara fram og er reiknað
með að flestir gestir mótsins verði á
hótelum í eða við Lusail. Búist er við
að nokkur hundruð þúsund erlendir
ferðamenn muni heimsækja Katar
meðan á keppninni stendur og því
ljóst að umfang þessara framkvæmda
er mikið. Kostnaður yfirvalda í Katar
vegna framkvæmdanna er talinn
nema 45 milljörðum Bandaríkjadala,
8.900 milljörðum króna.
Vinna frá morgni til kvölds
Í umfjöllun Guardian kemur fram að
á minnsta kosti fjórum stöðum í Lusa-
il séu Norður-Kóreumenn við vinnu.
Þó er tekið fram að ekkert bendi til
þess að verkamenn frá Norður-Kóreu
vinni við gerð knattspyrnuleikvanga
sem nú er verið að byggja. Á ein-
um þessara staða er verið að byggja
lúxusíbúðabyggingu og segir í um-
fjöllun Guardian að norðurkóresku
verkamennirnir hafi unnið frá morgni
og langt fram á kvöld – löngu eftir að
aðrir verkamenn voru farnir.
„Fólk eins og við fær vanalega ekki
greitt. Peningarnir eru ekki greiddir
beint til okkar heldur til stofnunar-
innar sem hafði milligöngu um ráðn-
ingu okkar,“ sagði verkamaður sem
Guardian ræddi við.
Einn þeirra sem látið hafa sig
málið varða er Aidan McQuade,
framkvæmdastjóri Anti-Slavery
International, samtaka sem berjast
gegn þrælkunarvinnu í heiminum.
„Þessar lýsingar – allt of mikil vinna
og lágar eða engar greiðslur – eru til
marks um að þarna er stundað man-
sal í umboði stjórnvalda,“ segir Aidan.
Heimildarmenn Guardian segja
að um þrjú þúsund verkamenn frá
Norður-Kóreu séu við vinnu í Katar.
Þeir séu þar beinlínis í þeim tilgangi
að skapa gjaldeyri sem stjórnvöld í
Norður-Kóreu njóta góðs af. Sömu
heimildir segja að allt að 65 þúsund-
um Norður-Kóreumanna séu við
vinnu utan Norður-Kóreu í það heila
í sama tilgangi. Flestir séu starfandi í
Rússlandi, Kína, Mongólíu og í Mið-
Austurlöndum.
Fá tíu prósent af tekjunum
Kim Joo-il, fyrrverandi herforingi í
Norður-Kóreu, segir við Guardian
að hann telji að yfirvöld í Pyongyang
haldi eftir um 70 prósentum af þeim
tekjum sem norðurkóreskir farand-
verkamenn fá. Kim flúði frá Norður-
Kóreu árið 2005. Verkamennirnir
sjálfir fái ekki nema um tíu prósent af
því sem þeir eiga að fá þegar búið er
að draga frá ýmsan kostnað, til dæmis
vegna matar og uppihalds.
Upplýsingafulltrúi atvinnuvega-
ráðuneytis Katar segir við Guardian
að 2.800 norðurkóreskir verkamenn
séu við vinnu í Katar. Bætir hann
við að allar ábendingar um slæmar
vinnuaðstæður verkamanna séu
teknar mjög alvarlega. Engar kvartan-
ir hafi þó borist vegna aðbúnaðar eða
kjara norðurkóresku verkamannanna
í Katar. n
Katar Miklar framkvæmdir standa yfir
í Katar um þessar mundir vegna heims
meistarakeppninnar í knattspyrnu sem
haldin verður í landinu árið 2022.
Þrælkun Aiden
McQuade, fram
kvæmdastjóri
AntiSlavery
International,
segir að beinlínis
sé verið að stunda
mansal í umboði
stjórnvalda.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
„Peningarnir eru
ekki greiddir
beint til okkar heldur
til stofnunarinnar sem
hafði milligöngu um
ráðningu okkar.Blaðamaður
myrtur
Fern ando Raymondi Uri be, 22
ára rannsóknarblaðamaður
í Perú, var myrtur af tveimur
byssu mönnum þar sem hann var
við störf í verslun fjölskyldu sinn-
ar. Lögreglan rannsakar nú málið
og telur líklegt að morðið tengist
umfjöllun Uribe um spillingar-
mál og skipulögð glæpasamtök
í Perú.
Lögregla hafði í fyrstu greint
frá því að Uribe hefði verið
myrtur þegar árásarmennirnir
gerðu tilraun til ráns í verslun-
inni. Það telja fjölmiðlasamtökin
Inter-American Press Association
ekki geta staðist, enda var engu
stolið. Hafa þeir krafist þess að
lögregla rannsaki málið til fulls.
Ungi blaðamaðurinn hafði
skrifað mikið um spillingarmál,
eiturlyfjabaróna og síðast um
leigumorðingja í bænum Cañete
í Perú.
Ætlaði að „kenna henni lexíu“
F
ræg söngkona í Úganda er nú í
felum vegna hótana um hand-
töku og líkamsmeiðingar. Kon-
an varð fyrir því að fyrrverandi
kærasti hennar dreifði nektarmynd-
um af henni til fjölmiðla og samfé-
lagsmiðla. Nú er líklegt að konunni
verði refsað, en manninum sem
dreifði efninu ekki.
Desire Luzinda er fræg söngkona
í Úganda og eftir erfið sambands-
slit dreifði fyrrverandi kærasti hennar
„hefndarklámi“, það er nektarljósmynd-
um af henni, á netinu. Myndirnar fóru
víða í Úganda, þá sérstaklega á samfé-
lagsmiðlum auk þess að nokkrir fjöl-
miðlar birtu þær í sínum miðlum. Mað-
urinn segist hafa viljað „kenna henni
lexíu“ eftir sambandsslitin.
Luzinda er nú í felum þar sem ráð-
herra siðferðismála í Úganda, Simon
Lokodo, vill að hún verði handtekin.
Blaðamaður BBC í Úganda, spurði
Luzinda hvers vegna hún hefði sett
sig í þessa stöðu, það er að leyfa slíkar
myndatökur, vitandi að það gæti farið
svo að myndunum yrði lekið. „Ég var
ástfangin. Ég hefði annars aldrei tekið
nektarmyndir,“ segir hún.
„Margir sem skrifa á netinu eða
fyrir fjölmiðla sýna mér samúð,“ seg-
ir Luzinda, en hún segir aðra vera
mjög reiða og ógnandi í hennar garð.
Vert er þó að taka fram að dreifing
á hefndarklámi er ólögleg víða um
heim og í mörgum ríkjum er unnið
að því að gera refsivert að dreifa því,
enda hefur það færst í vöxt að slíku
efni sé dreift. Almennt er litið á það
sem svo að einstaklingar sem verða
fyrir slíku séu brotaþolar sem eigi ekki
sjálfir að axla ábyrgð á því að á þeim
sé brotið. Simon Lokodo, ráðherrann
sem vill að Luzinda verði handtekin,
hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að
kenna fórnarlambinu um og vilja láta
fangelsa hana. Hann segist fyrst vilja
ræða við Luzindu og síðar fyrrver-
andi kærasta hennar vegna dreifingar
á klámefni. BBC greinir frá því að
hefndarklám sé mikið vandamál í
Úganda og að margar konur verði
fyrir því að fjölmiðlar birti viðkvæmar
myndir af þeim í þeirra óþökk. n
astasigrun@dv.is
Vilja handtaka fórnarlamb hefndarkláms fyrir dreifingu á klámi
Fjölmiðlar birtu myndirnar Nú er
brotaþolanum kennt um dreifingu þeirra.