Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 29
Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Umræða 29 Lokastig lýðræðisins Á heimili nokkru er búið að safna saman í nammikrukku og er ætlunin að hægt sé að veita nammi á hverju laugar- dagskvöldi allt árið um kring. Sum- ir krakkarnir fara hins vegar að orga og fá úr krukkunni strax, með þeim afleiðingum að ekki er nóg til fyrir alla það sem eftir lifir árs. Sem myndlíking fyrir þjóðarbúið virkar þetta ekki reyndar ekki alveg, því á meðan sumir fá meira nammi fá aðrir ekki kvöldmat yfirhöfuð. Við erum hins vegar augljóslega kominn inn í nýja tíma í stjórnmál- um. Ríkisstjórnin gerir ekki tilraunir til að þykjast standa fyrir alla þjóðina, heldur hendir peningum í stuðn- ingsmenn sína á kostnað annarra. Enda sést þetta skýrt í stjórnmála- umræðunni, fólk safnast saman á Austurvelli og heimtar að ríkisstjórn- in fari, eins og aðrir gerðu í tíð síð- ustu ríkisstjórnar. Þetta minnir lítið á samvinnustjórnmál Norðurlanda þar sem stjórnvöld eiga að vera í forsvari fyrir alla landsmenn og mun meira á Bandaríkin þar sem þjóðin er klofin í afstöðu sinni til flokka sem varla geta unnið saman. Hætt að hugsa um samfélag og samhjálp Ef til vill er þetta lokastig frjálshyggj- unnar, og jafnvel lýðræðisins eins og við þekkjum það. Ekki er lengur ætlast til að allir leggi sitt af mörk- um í þjóðarbúið sem almenningur nýtur síðan góðs af með aðgengi að heilbrigðis- og menntakerfi, meðal annars. Ríkissjóður hefur nú helst það hlutverk að vera nýttur til að kaupa sér velvild (viðskiptavild?) stuðningsmanna ríkisstjórnarinn- ar, mest fyrir þá ríku að sjálfsögðu en eitthvað smá fyrir nógu marga aðra til að kaupa stuðning þeirra. Skatta- lækkanir þjóna sama tilgangi, en einhvern veginn er þetta augljósara þegar peningarnir eru fluttir beint inn á reikninga. Afleiðingarnar láta ekki á sér standa. Heilbrigðis- og menntakerfið grotnar niður, en þjóð- in klofnar í tvennt á milli þeirra sem fá eitthvað og þeirra sem fá ekki neitt. Niðurstaða frjálshyggjunnar er alls staðar sú sama. Fólk hættir að hugsa um samfélag og samhjálp og fer að haga sér eins og heimtufrek börn. Ríkisstjórnir eru ekki lengur kosnar til að bæta samfélagið heldur til að bæta hag þeirra sem þær kjósa, þó að það sé á kostnað samfélagsins og þar með langtímahagsmuna kjós- enda. Þeir sem lofa mestu eru líkleg- astir til að komast á þing og andstæð- ir stjórnmálaflokkar hafa um lítið að velja nema yfirbjóða þá eða neita að taka þátt í leiknum og missa þar með atkvæði. Gengin í barndóm? Ef það er einhver huggun, þá er svip- að uppi á teningnum víða í hinum vestræna heimi. Í Skotlandi höfn- uðu menn því að verða sjálfstæð- ir og taka ábyrgð á sjálfum sér, en óeirðir brutust nýlega út þar í landi þegar Krispy Kreme-kleinuhringir fengust gefins og ekki reyndist nóg til. Erfitt er að finna skýrara dæmi um þjóð sem er gengin í barndóm, jafnvel þó að Íslendingar geri sitt besta. n Kristján Hreinsson Skáldið skrifar Krakki í jakkafötum Æ , mér þótti þessi titill bara flottur, en hann hefur eiginlega ekkert með innihald pistilsins að gera. Það sem ég ætla að segja ykkur tengist þó ábyggilega óbeint þessum jakkafatakrakka, sem svo er stundum nefndur. Einhverju sinni átti ég leið um sveit eina sem lá að djúpum firði, þarna bjuggu bræður tveir, hvor á sínum bænum. Þegar mig bar að þeim bænum sem var innar í firðinum, var árla morguns, ég var illa sofinn og þreyttur þegar ég sé hana sem stendur á hól og starir á mig. Ég geng að hananum. (Hér er rétt að geta þess, að ég efast um að ég hafi verið vakandi þegar þetta gerðist). Og viti menn, haldið þið að horngrýtis haninn hafi ekki byrjað að tala. -Nú ætla ég að sýna þér nokkuð sem þú munt ekki trúa, sagði haninn orðrétt (og gæti þetta allt eins verið innan gæsalappa, en mér þykir það ekki viðeigandi, þar eð um hana er að ræða). Ég svaraði ekki en góndi á hanann, sem hélt áfram ræðu sinni: -Fylgstu nú vel með, sagði hann. -Á næsta augna- bliki ætla ég að gala og um leið og ég geri það, þá kemur sólin upp. Þannig hefur þetta alltaf verið frá því að ég byrjaði að gala. Slíkur er máttur minn. Það næsta sem gerðist, var að haninn gól og upp kom sól. Hann galaði hátt og innilega og sólin kom sér haganlega fyrir á milli fjallanna. Ég dvaldi í nokkra daga þarna á bænum. Og það var eiginlega sama hvort ég fór í háttinn seint eða snemma, alltaf var ég illa sof- inn við sólarupprás, og alltaf hitti ég hanann á hólnum, alltaf mont- aði hann sig af morgunverkum sín- um og talaði bæði hátt og lengi. En að því kom, að ég stóð við hólinn og haninn opnaði gogginn en kom ekki upp einu einasta orði. Hann var það sem heitir þegjandi hás. Hann reyndi að gala en ekki kom svo mikið sem eitt einasta bofs. Hann bara stóð þarna sperrtur með opinn gogginn í himneskri þögn og í baksýn kom sólin úr fylgsnum sínum, sæl og brosmild. Og ég sem hafði hlustað á þennan monthana hreykja sér af unnum verkum og innistæðu- leysu, sá ég nú að ég gat opnað fyrir hefndarhug: -Jæja, kæri hani. Ekki galaðir þú í dag, svona þegjandi hás. Engu að síður kom sólin upp. Haninn hætti ekkert að vera montinn við þessi orð mín, hann hallaði sér fram og hvíslaði, nánast 100% raddlaus: -Það eru nú til fleiri hanar en ég. Og það merkilega er, að eftir að ég hafði hlustað á þvaðrið í mont- hananum í nokkra daga, þá rifjað- ist upp vísa sem ég orti einhverju sinni um þingmann sem steig úr ræðupúlti eftir langa og innantóma ræðu: Víst þér tókst að hafa hátt; af hæðni gestir kíma því synd er hvað þú sagðir fátt á svona löngum tíma. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kjallari „Fólk hættir að hugsa um sam- félag og samhjálp og fer að haga sér eins og heimtufrek börn. Myndin Leiðrétting og lekamál Óhætt er að segja að fréttir af fyrirhugaðri leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum hafi nokkuð fallið í skuggann af fréttum og umræðu í kjölfar játningar Gísla Freys Valdórssonar í svonefndu lekamáli. Mynd siGtryGGur ari Dýrt sport en skemmtilegt Baldur Björnsson hefur Ferrari-bifreið til umráða. – DV Ég hef stutt þetta stefán Ólafsson styður leiðréttingu sem velferðaraðgerð. – DV Allt hefur verið svikið Kári Örn Hinriksson hélt ræðu á mótmælum. – DV 1 „Þú verður bara að þola það að svara spurn- ingum“Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra sat undir svörum um skuldaleiðréttingu heimilanna í Kastljósi í vikunni. Í viðtalinu sakaði forsætisráðherra Sigmar Guðmundsson spyril um að leyfa sér ekki að svara. Þá sagði Sigmar: „Sigmundur, þú verður bara að þola það að svara spurningum þegar þú ert spurður. Flóknara er það nú ekki. Það er ég sem stýri viðtalinu.“ Lesið: 43.207 2 „Mannhelvítið er sum sé að fylgjast með slíkum hópum á Facebook“ „Afsakið orðbragðið en mannhelvítið er sum sé að fylgjast með slíkum hópum á Facebook og finnur þar konur sem eru í mikilli neyð og ræðst til atlögu,“ segir Þorbjörg Mar- inósdóttir fjölmiðlakona, einnig þekkt sem Tobba Marinós, í pistli. Þar greindi hún frá því að karlar sætu um konur sem væru að leita sér aðstoðar á Facebook. Lesið: 42.920 3 Múraður á Ferrari Eigandi Ferrari 599 GTB Fiorano-bifreið- ar sem flutt var til Íslands nýverið er Matthildur Guðbrandsdóttir, leikskóla- kennari og eiginkona Baldurs Björns- sonar, stofnanda og framkvæmdastjóra Múrbúðarinnar. Lesið: 32.770 4 Annað þeirra fer með rangt mál Gísli Freyr Valdórs- son, fyrrverandi aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þvertók fyrir það í Kastljósi á þriðjudag, að hann hefði beðið um að yfirheyrslu yfir honum vegna lekamálsins yrði flýtt. Þá hafnaði hann því að hafa beðið ráðherra um að beita sér fyrir slíku. Þetta gengur í berhögg við það sem Hanna Birna sagði sjálf í Kastljósi þann 26. ágúst síðastliðinn. Lesið: 24.191 5 „Það er verið að reka skúringakonur. Á meðan ert þú heima á launum af því þú varst að skrökva“ Gísli Freyr Valdórsson sagðist í Kastljósi á þriðjudag vera kominn á endastöð lyga og blekkinga. Hann kvaðst ekki hafa áttað sig á því að það að senda út minnisblað úr ráðuneytinu væri lögbrot. Helgi Seljan, spyrill Kastljóss, sótti hart að Gísla í við- talinu og benti honum á að í langan tíma hefði hann verið heima á launum á meðan skorið væri niður í stjórnarráðinu. Lesið: 20.650 Mest lesið á DV.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.