Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 34
Helgarblað 14.–17. nóvember 201434 Fólk Viðtal seint að byrja að vinna í sjálfum sér og heila sig. „Ávinningurinn af því er svo mikill, hann er hvorki mældur í tíma né rúmi. Þetta er ekki spurning um að vera orðinn of gamall til ein- hvers, því þetta er spurning um að fara inn í reynslu sem er tímalaus og hefur gildi sama hvað hefur gengið á lífi þínu. Þú getur öðlast svo mikla sátt og fögnuð yfir því að hafa feng- ið að vera hérna, sama hvað hefur gengið á.“ Árið 2010 ferðaðist hann svo aftur með þremur öðrum Íslendingum í pílagrímsferð þar sem þeir heim- sóttu helga staði í Nepal og Tíbet. Þeir heimsóttu höfuðborgina Lhasa og ferðuðust eftir endilangri háslétt- unni. Þar böðuðu þeir sig upp úr hinu helga vatni Mansarova, sem er hæsta ferskvatnsstöðuvatn í heimi. „Það þýðir að við erum með kaskó fyrir syndlaust líf næstu 100 endur- fæðingar. Þú vinnur ekki í happa- drættinu nema að kaupa þér miða, svo við skelltum okkur út í.“ Seinna gengu þeir hreinsunar- og heilunar- göngu í kringum helga fjallið Kailas. „Þetta er ótrúlega fallegt fjall sem í fornum goðsögnum er miðja al- heimsins. Þar vorum við með öðrum pílagrímum og fórum yfir skarð sem er 5.800 metra hátt. Þar voru með okkur konur, börn og gamalmenni, við í goretex-göllunum og þau mörg hver berfætt. Þar hittum við líka fólk sem skreið í kringum fjallið – það er mjög öflugt ritúal sem hefur áhrif á allar orkustöðvarnar í þér.“ Finnur samhljóm í fangelsinu Ást og friður, smáprósabókin sem Tolli gaf út á dögunum, er tileink- uð öllum þeim sem sitja í fangels- um landsins vegna afleiðinga gjörða sinna. Undanfarinn áratug hefur hann unnið með hópi sjálfboðaliða frá 12 spora samtökunum á Litla- Hrauni. Nú býður hann föngum upp á hugleiðslu á hverjum fimmtudegi. Hvernig kom þetta til? „Það er bara hluti af sambandi mínu við minn sponsor í 12 spora samtökunum. Hann fer með mig austur og kynnir mig fyrir starf- seminni þar. Ég er svo sjálfur að sponsa mann sem hafði setið þarna inni í mjög mörg ár og hann sagði mér að vinir hans – fangar fyrir austan – væru að óska eftir því að hann kæmi með eitthvað. Þetta er upphafið að þessu. Síðan hefur kom- ið að þessu stór hópur úr 12 spora samtökunum sem hefur byggt upp gríðarlega gott starf í fangelsinu, starf sem hefur verið sterkt og áhrifa- mikið. Við höfum bæði unnið mað- ur á mann og verið með ráðstefnur sem eru skipulagðar af strákunum þar inni. Svo þegar ég fór sjálfur að hugleiða þá kom ég með það inn og hef helgað mig þeim hluta sjálfboða- starfsins síðan.“ Tolli segist tengja vel við mennina sem sitja inni. „Það er enginn eðlis- munur á alkóhólista sem situr í fang- elsi vegna afleiðinga gjörða sinna og hinum þarna úti. Til að nálgast þessi mál þá er mjög þýðingarmikið að allt viðmið í ferlinu sé samkennd og kærleikur, að samfélagið nálgist af- leiðingarnar með þessu hugarfari. Þá getum við tekið á móti einstak- lingum og hjálpað þeim að tengj- ast aftur manneskjunni í sér. Þú ert hvorki fangi né glæpamaður, held- ur ert þú með þennan samfélags- lega merkimiða vegna afleiðinga, og þú verður að gefa fanganum – innan gæsalappa – upplýsingarnar og vit- undina um það að hann er mann- eskja. Þegar menn byrja að vinna með sig verðum við að gefa mönnum tækifæri á að öðlast sjálfsvirðinguna. Síðan tekur við ferli sem getur breytt mönnum ef þeir vilja.“ Fordómar gegn föngum Einhverjir þeirra sem hafa lært hug- leiðslu í fangelsinu hafa haldið áfram að stunda hana eftir að út er komið. Hann segir það þó vera stöðuga bar- áttu fyrir þessa einstaklinga. „Við segjum við strákana: þú ert edrú inni í fangelsinu og allt gengur vel, en fangelsið er bara æfingabúðir. Þú getur verið edrú, fjögur fimm ár hér en ert dottinn í það tveimur dögum eftir að þú kemur út. Af því að það tekur ekkert við. Menn eru svo óunn- ir tilfinningalega. Það sem okkur vantar til að betrunarferlið gangi upp er áfangaheimili fyrir þá eftir að þeir eru búnir að afplána. Okkur vantar handleiðslu fyrir fyrrverandi fanga. Skjól þar sem þeir fá félagslega og tilfinningalega leiðsögn og eru lóðs- aðir aftur inn í samfélagið af öryggi og fagmennsku. Öll fjárfesting til að hjálpa föngum inn í samfélagið er dæmd til að klúðrast ef við tryggjum það ekki.“ Hann segir fordóma í samfé- laginu einnig vera mikla. „Það eru alveg rosalegir fordómar gagnvart fólki sem hefur þurft að afplána. Við beinum oft reiði okkar og vansæld á þennan hóp. Maður sér það þegar fanga ber á góma hvað reiðibylgjurn- ar koma inn í kommentakerfinu. Ef fangi er með mjúkan klósettpappír, eða ef það vottar fyrir manneskju- legheitum í fangelsunum, verður allt brjálað. Það er skotleyfi á þá eins og var á minnihlutahópa, svertingja, gyðinga eða hvað sem er,“ segir Tolli. „Það sem ég er að vonast til að verði úr þessu starfi okkar er að þetta verði til eftirbreytni og gefi þeim sem stjórna hugmyndir um að gera fang- elsið manneskjulegra og vinna betur að heilandi úrræðum. Það eru verð- mæti í því að heila fanga, ekki bara fjárhagsleg – þau eru klár – heldur fyrir samfélagið í leiðinni. Eins og í dæmisögunni um týnda soninn, þá eigum við fullt af týndum son- um og dætrum í fangelsunum. Að fá þau heim heilar fjölskylduna. Ef við þróum með okkur í þolinmæði um- burðarlyndi og kærleiksrík úrræði handa þessu fólki – þó að það sé að hrasa og þetta sé brösótt – þá virkar það á okkur. Allt batteríið verður miklu betra.“ Forn viska á nýjum miðlum Tolli ætlar sér þannig ekki bara að taka þátt í að heila fanga heldur sam- félagið allt. Bæði með bókaútgáfu og með því að setja út hugleiðsluforrit í snjallasíma. „Við erum að fara að setja út hugleiðsluforrit,“ segir Tolli og dregur upp snjallsíma. Hann opn- ar smáforrit sem nefnist Ást og frið- ur: „Hér getur þú fengið leiðsögn í núvitundarhugleiðslu og kærleiks- æfingu. Þú kveikir á þessu heima hjá þér og ég mun fara með þig í ferða- lag. Síðan er hér músík frá Begga Morthens sem þú getur bara sónað út við. Svo bætum við við þetta bara eftir þörfum. Þetta fer ókeypis í alla síma í næstu viku. Þetta fer í Android og Eplin. Með þessu erum við að gefa öllum kost á því að bragða á þessu.“ Smáprósabók með sama nafni, Ást og friður, kom svo út fyrir skemmstu. Hún byggir á Facebook- færslum hans frá því skömmu eftir hrun. Þau fá þó aðra ásýnd þegar þau birtast á prenti með fallegum olíumálningaryrjum. „Ég er að byrja þessar færslur um það bil sem hrunið er að sigla inn. Ég varð fyrir miklu fjárhagslegu áfalli í þessu hruni og það fer í gegnum huga manns þessi hugsun: á maður að fara í herklæð- in og fara að kveikja elda og brjóta rúður? Ég kann það alveg. Fljótlega komst ég að þeirri niðurstöðu að það sé ekki rétta leiðin, ekki fyrir mig, og ákvað í staðinn að efla með mér andlegt starf. Reyna að láta gott af mér leiða og búa til öryggi fyrir mig og mitt fólk. Stuðla að því að í minni fjölskyldu og vinahópi að við mynd- um reyna að byggja upp jákvætt viðhorf til tilverunnar og horfa fram á við. Færslurnar eru ekki neitt man- ifestó eða pólitík, heldur meira að sjá fegurðina í hversdagsleikanum, gleðina og húmorinn. Maður finn- ur til ábyrgðar þegar þú ert inni á streyminu og átt 5.000 vini, maður er nánast eins og fjölmiðill og hvað ætl- ar maður að gera?“ Þetta er þó ekki það eina sem er að gerast hjá Tolla um þessar mund- ir, en hann opnar nýtt 150 fermetra sýningarými að Hólmaslóð úti á Granda í byrjun desember. „Við eig- um þetta við hjónin, við rákum gall- erí uppi á Laugavegi með frábær- um árangri. Og það verður ekki aftur snúið eftir þá reynslu. Það er auð- vitað alveg geðveikt að hafa fengið tækifæri til að vera með gallerí á heitasta stað – þetta er flottasti gluggi í borginni. En nú er ég með enn flott- ara rými á ákjósanlegum stað. Það má segja að Grandinn sé heitasta hverfið því hérna er mikil grasrótar- þróun. Kerfið er ekki svo mikið að stýra þessu og umhverfið óviðjafn- anlegt: höfnin, hafið, gamli slippur- inn. Ungt fólk með frumkvæði af öllu tagi er að koma sér fyrir í húsunum hérna svo það er gaman að vera hluti af þessu. Ég ætla að nota þetta fyrir mig og svo langar mig að nota þetta til að sýna unga listamenn. Ég vil allavega vera með tvær sýningar á ári með ungum listamönnum, tengjast dálítið grasrótinni.“ Sagður of „commercial“ Sama dag og galleríið verður opnað fara í sölu sérstök rúmföt frá Betra baki sem Tolli hefur þrykkt mynd- ir sínar á. „Minn vinnubakgrunn- ur er bara þessi sjómennska og ég kem með það viðhorf inn í mynd- listina. Ég er tilbúinn að berjast fyr- ir mig inn í rauðan dauðann og bara geri það sem ég þarf að gera. Ég hef alltaf starfað sjálfstætt. Ég hef verið dálítið einskipa alla tíð. Ég veit að það er mjög umdeilt. Það eru ekkert allir sáttir við það hvernig samskipti mín sem myndlistarmaður við sam- félagið hafa verið. Mörgum af kolleg- um mínum finnst framferði mitt oft vera of „commercial.“ Ég er til dæm- is fyrstur til að fara inn í Kringluna með sýningu: Musteri Mammons, og inni í Smáralind. Ég fer oft óhefð- bundnar leiðir til að brjótast undan milliliðunum. Ég hef rosalega gaman af því sem ég er að gera. Ég hef rosa- lega gaman af því að eiga samskipti við samfélagið með myndlistinni og mér finnst erfitt að eiga það undir einhverjum og einhverjum sem er misjafnlega innréttaður. Sjáðu þró- unina. Við erum komin með fullt af bjúrókratískum milliliðum sem eru svona intellektúal afætur á mynd- listarmennina, meðal annars sýn- ingastjórarnir. Með fullri virðingu og vinsemd fyrir þeim og þeirra námi, ég er ekki að pönkast í þeim persónulega, heldur sé ég þetta svo- lítið pólitískt fyrir mér. Þetta gerir það að verkum að myndlistarmenn standa í röðum eins og menn á höfn- inni í kreppunni, svo kemur sýninga- stjórinn og pikkar út hverjir megi vinna þennan daginn: þú og þú. Og leið listamanna til að hafa frum- kvæði að því að sýna og gera er auð- vitað takmörkuð. En góðu fréttirnar eru að fleiri og fleiri listamenn, aðal- lega ungt fólk er að skipuleggja sig og búa til úrræði. Það er þessi stöðuga deila milli valdsins og grasrótarinnar – og ég tek stöðu með grasrótinni.“ n „Það var dálítið erfitt þegar hann var í meðferðinni, það var ekkert stuð að hafa fyrir mig. Hugleiðir með föngum Búddismi og hugleiðsla hefur hjálpað Tolla að heila sjálfan sig og nú aðstoðar hann fanga á Litla- Hrauni að gera slíkt hið sama. Mynd Sigtryggur Ari Hugarró í símanum Von bráðar verður hægt að ná í hugleiðslusmáforrotið Ást og friður ókeypis í allar gerðir snjallsíma. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.