Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 39
Neytendur 39Helgarblað 14.–17. nóvember 2014
Jóla Bock
Framleiðandi: Vífilfell Styrkleiki: 6,2%
Stefán: Brenndir humlar, svo-
lítið rammt, bitter eftirbragð.
Elín: Góð fylling, rétta
jólastemmingin.
Jólalegur og góður litur,
tekur sig vel út í glasi.
Brenndur og jólalegur.
Eymar: Lítil lykt, ristaðir
tónar samt þarna
einhvers staðar bak við.
Ágætis stöff.
Berglind: Gott brennt
bragð, svolítið eins og ristuð
brauðsneið sem gleymdist
í brauðristinni. Sætur og
góður, alveg eins og ég.
Gunnar: Gott ef maður
tendrar ekki gott aðventukerti
með þessum. Hó, hó, hringjum inn jólin.
Jólabryggj
Framleiðandi: Föroya bjór Styrkleiki: 5,8%
Stefán: Létt, þægilegt,
karamella og negull. Gott en
stutt eftirbragð.
Elín: Möndlur og hnetur.
Hentar vel þeim sem
vilja komast í jólagírinn
án þess að hafa bjórinn
of þungan. Eitthvert
eftirbragð sem er að
trufla mig.
Eymar: Fín lykt. Léttir humlar
og smá maltkeimur. Léttur en
þó ágætlega bragðmikill.
Berglind: Mikið jólabragð. Er
þessi búinn til úr jólatrjám?
Gunnar: Jú, jú, það er virkilega
hægt að skilja hugmynda-
fræðina bak við þennan en hún
gengur ekki upp að mínu mati.
Thule jólabjór
Framleiðandi: Vífilfell Styrkleiki: 4,6%
Stefán: Karamella, ristað
brauð. Létt, frekar bragð-
lítið.
Elín: Einhver klassík og
dönsk stemming. Gott
fyrir þá sem vilja klass-
ískan og lítið krefjandi
jólabjór.
Eymar: Lítil lykt. Minna
bragð. Ekki gott.
Berglind: Ef ég væri
þessi bjór væri ég mjög leið
að koma á eftir þessum
ævintýradrykk (almáttugur
Steðji). Vatnskenndur og vantar
í hann alla jólatónlist.
Gunnar: Sumir kunna að segja: „Hvað,
fannst þér þessi góður?“ Ég svara: „Nei …
eða já. Líkaminn minn þekkir þetta og ber
söguna vel.“
Jólabjór Ölvisholt
Framleiðandi: Ölvisholt Styrkleiki: 5,0%
Stefán: Grösugt með greni, og
humlar. Smá sítrus í bakgrunni.
Mjög ferskt og gott.
Elín: Nýslegið gras,
greni og moldarkeimur.
Skemmtilegur balans og
góð fylling. Hentar þeim sem
eru í meira krefjandi bjórum.
Eymar: Léttkryddaður
ilmur. Fín jól í þessum.
Svolítið léttur en annars
alltílagi. Smá kemískt bragð
sem er ekki kúl.
Berglind: Hvílík jörð í einum
drykk. Finnst ég tengjast Ís-
landi upp á nýtt í hverjum sopa.
En Ísland er líka smá hallærislegt og pirrandi.
Gunnar: Ilmurinn úr eldhúsinu, hann er
heillandi. Bragðið er ekki síðra.
6,9
4
6,6
5
6,4
6
Steðji Jólabjór
Framleiðandi: Steðji Styrkleiki: 5,3%
Stefán: Léttur, karamella, kanill
og ristaðar hnetur. Gott en
stutt eftirbragð.
Elín: Jól í glasi. Rauð-
legur blær, fer vel í glasi.
Góð froða. Brenndar
möndlur, gott, langt og
fullt eftirbragð.
Eymar: Lyktar ekki vel.
Nánast ekkert bragð
nema í lokin.
Berglind: Ég gæti örugglega
drukkið nokkra svona og það
eru sannkölluð jóla-með-
mæli. Þetta er næs bjór.
Gunnar: Kannski, jú, alveg
klárlega. Ég myndi alltaf bjóða
góðum vinum einn slíkan ef
þannig lægi á þeim. Virkilega kunnuglegur
bjór sem líkaminn þekkir. En jólin? … tjah.
Malt jólabjór
Framleiðandi: Ölgerðin Egill
Skallagrímsson Styrkleiki: 5,6%
Stefán: Brenndir humlar, ristaðar
hnetur, karamellur.
Elín: Ég hugsa um ömmu
og malt og appelsín.
Ekki alveg minn tebolli
en örugglega gott fyrir
þá sem það fíla. Maltlegur
með sætu eftirbragði.
Eymar: Svolítið sætur. Of
sætur fyrir mig.
Berglind: Fékk áfall þegar ég sá
litinn, er ekki fyrir svona dökkan
en þessi var frekar bragðdaufur.
Yrði frekar leið ef ég þyrfti að
drekka marga svona. Samt
alveg ljúfur, æ, þú veist.
Gunnar: Hef hreinlega ekki hug-
mynd í hvora áttina þessi er að fara. Og þegar
varla er hægt að gera greinarmun á því hvaða
hátíð er að ganga í garð þá verð ég smeykur.
Doppelbock
Framleiðandi: Einstök ölgerð Styrkleiki: 6,7%
Stefán: Kanill, negull,
karamella, smá beiskja í
bakgrunni.
Elín: Lakkrís, pínu brennt
og möndlufílingur. Góður
keimur og eftirbragð.
Eymar: Sætur maltkeim-
ur. Krydd í lokin. Ekkert
spes.
Berglind: Aðeins of mikið
eins og gamalt glas af Malti.
Gunnar: Virkilega fín lína á
milli rembingsjóla og ekki,
eða næstum. Jú, jú. Þetta er
eitthvað.
Jóli hátíðaröl
Framleiðandi: Ölvisholt Styrkleiki: 6,3%
Stefán: Lyktar eins og gamalt
jólatré með mjög beiskt eftir-
bragð.
Elín: Ágætis öl í dekkri
kantinum. Vantar þó
allan jólasjarma. Ég segi
-Nei, nei, ekki um jólin.
Eymar: Kryddaður og ein-
hver grenigaur þarna líka.
Of mikið krydd í bragði
samt. Skamm.
Berglind: Þetta er aðeins
of fullorðins fyrir mig. Jólin
eru hátíð barnanna, ekki
fullorðinna.
Gunnar: Mögulega, ef tekið
er tillit til þess að þetta er
dökkur bjór, þá er þetta bara
allt í lagi. Getur verið að ég sé búinn að
smakka of marga, en …
Víking Jólabjór
Framleiðandi: Vífilfell Styrkleiki: 5,0%
Stefán: Meðalþungt með
ferskum humlum og negul. Stutt
eftirbragð.
Elín: Í ljósari kantinum.
Vantar allan kraft. Kem-
ur mér ekki í jólagírinn.
Eymar: Ekki að gera mikið
fyrir mig. Vantar bragð
og lykt.
Berglind: Bragðlaus,
nema smá loftbragð af
honum. Veit ekki hvort það
sé það sem ég er að leita að í
jólabjórdrykkju.
Gunnar: Þetta er ekki að
tendra jólabarnið mitt litla.
Blessað jólabarnið.
Gæðingur Ýlir
Framleiðandi: Gæðingur öl Styrkleiki: 5,6%
Stefán: Súrhey, sveita-
lykt, stutt súkkulaði-
og smjörlykt. Ekkert
sérstakt.
Elín: Ruglandi sam-
setning af karamellu og
reyk. Kemur mér ekki
í hátíðarskap. Veit
hreinlega ekki hvert
þessi bjór er að fara.
Eymar: Ekki góð lykt. Bara alls ekki. Myndi
ekki klára þennan.
Berglind: Oj, maður! Bjór sem eyðileggur
jólin.
Gunnar: Úff, þetta er leiðinlegur bjór.
Gæðingur Jólabjór
Framleiðandi: Gæðingur öl Styrkleiki: 4,6%
Stefán: Ristaðar valhnetur,
negull. Blómakennt, ferskt með
miðlungslangt eftirbragð.
Elín: Frekar leiðinlegur
bjór, lítið afgerandi og
lítið eftirminnilegur.
Eymar: Það eru grænar
Ora-baunir í lyktinni! Það er
viss nálgun á jóla-eitthvað
en virkar ekki fyrir mig.
Berglind: Þetta er næst-
síðasti bjórinn svo ég er alveg á
skallanum en þessi bjór er allt í
lagi. Myndi ekki fá mér hann með
jólamatnum samt. Kannski einn
ylvolgan að morgni nýársdags.
Gunnar: Var þetta bjórinn sem ég var að
smakka áðan? (Gæðingur Ýlir). Leiðinlegur bjór.
Jóla Kaldi
Framleiðandi: Bruggsmiðjan
Styrkleiki: 5,4%
Stefán: Leður-, lím- og trélykt.
Biturt, kryddað og frekar stutt
eftirbragð.
Elín: Smjör og eitthvað
skrýtið. Skil hann ekki.
Minnir á Toffee Crisp.
Eymar: Ekki góð lykt og
bjórinn frekar óspennandi.
Berglind: Sonur minn fær
svona bjór í skóinn þegar
hann er óþægur. Ágætt,
hrátt kartöflubragð.
Gunnar: Alltof, alltof, alltof
mikið. Ég nenni þessu ekki.
Tuborg Julebryg
Framleiðandi: Ölgerðin Egill Skallagríms-
son Styrkleiki: 5,6%
Stefán: Léttur negull
og karamella. Smá
brenndur.
Elín: Lítill kraftur. Ekki
nógu mikil „Jól“. Hent-
ar eflaust þeim sem
vilja eitthvað „léttara“.
Eymar: Maltaður keim-
ur. Leiðinleg beiskja.
Ekki minn tebolli.
Berglind: Lyktar eins og hinn
almenni bjór pöpulsins á barnum. Bragðast
álíka. Boring. Ég vil meiri jól. MEIRI JÓL!
Gunnar: Þarna er ég pínu kominn til
Englands. Eitthvað ágætt eftir tapleik en
ekkert til að fara úr að ofan fyrir.
6,3
7
5,9
8
5,6
9
5,4
10
4,8
11
4,6
12
4,5
13
3,9
14
3,8
15 2,2
16
Sigurvegarar
fyrri ára
Tuborg sigrað í tvígang
2013 Gæðingur
2012 Steðji
2011 Tuborg Julebryg
og Einstök
2010 Viking Jóla Bock
2009 Tuborg Julebryg
Jólabjórinn
sívinsæll
n Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR
seldust 616 þúsund lítrar af jólabjór í
Vínbúðunum í fyrra. Það var ríflega 7
prósenta aukning frá árinu 2012. Á vef
Vínbúðanna segir að í ár verði boðið
upp á 36 mismunandi vörunúmer af 29
tegundum jólabjórs.
„Ætlar þú að klára þetta?“ Gunnar beitti alltaf-klára-úr-glasinu-aðferðinni í sinni
nálgun við dómarastörfin, sessunautum sínum, Berglindi og Elínu, til mikillar kæti.
Þefað, bragðað og skráð Stefán og Eymar voru fagmennskan uppmáluð við smökkunina.
Kröfuhörð dómnefnd skálar
Stefán, Eymar, Gunnar, Berglind og Elín
unnu það mikla þrekvirki að bragða á
og dæma 16 tegundir af jólabjór fyrir
DV þetta árið. Dómnefndin gaf engan
afslátt af gæðakröfum sínum og refs-
aði miskunnarlaust með einkunnagjöf
sinni ef henni mislíkaði eitthvað. Niður-
staðan er þó skýr. Myndir SiGtryGGur Ari