Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Page 45
Lífsstíll 45Helgarblað 14.–17. nóvember 2014
Gæði fara aldrei úr tísku
Losaðu þig við
vonda lykt úr
eldhúsinu
Hver kannst ekki við að finna
vonda lykt í eldhúsinu en átta sig
ekki alveg á því hvaðan hún kem-
ur. Fyrstu viðbrögð eru yfirleitt að
athuga ruslið og fara með það út.
Næsta skref er að kíkja í ísskápinn
og kanna hvort þar er eitthvað
skemmast. Ef sú er ekki raunin
og lyktin er viðvarandi, gæti verið
góð hugmynd að kanna stöðuna
á eldhúsvaskinum. Eða niðurfall-
inu öllu heldur.
Hvort sem þú ert með rusla-
kvörn eða ekki í vaskinum þá geta
safnast fyrir alls konar matarleif-
ar við niðurfallið og efst í rörun-
um. Þegar þessar matarleifar fara
að mygla gýs upp vond lykt sem
hverfur ekki þrátt fyrir að vatn sé
látið renna af krafti í vaskinn.
Til að losna við mygluna,
bakteríurnar og lyktina er gott
ráð að hella úr einum bolla af
matarsóda og öðrum af ediki
ofan í niðurfallið og leyfa því
að malla í um tíu mínútur. Því
næst skaltu hella sjóðandi vatni
í vaskinn og skola þannig matar-
sódann og edikið burt.
Ef þú ert með ruslakvörn er
gott að setja tvo bolla af klaka og
einn af salti ofan í kvörnina. Láta
svo kalda vatnið renna á með-
an kvörnin er í gangi, þangað til
klakinn er horfinn. Til að fá jafn-
framt góðan ilm í eldhúsið má
til dæmis setja appelsínu- eða
sítrónubörk ofan í kvörnina.
Frasar sem á
ekki að nota
Áhrifamikið fólk verður að gæta hvernig það talar
Þ
að er mikilvægt að áhrifa-
mikið fólk tali á heilbrigð-
an hátt, bæði af öryggi
og auðmýkt. Áhrifamikið
fólk verður að vera traust-
vekjandi, tala frá hjartanu og veita
öðrum innblástur með orðum og
gjörðum. Hér eru dæmi um frasa
sem áhrifamikið og valdamikið fólk
ætti aldrei að láta út úr sér. Ef þú
vilt auka völd þín eða hafa áhrif á
fólk í kringum þig ættir þú að nýta
þér þessar ábendingar og fara eftir
þeim.
1 „Bara af því þetta hefur alltaf verið gert svona“
Skelfileg setning sem ætti aldrei að
nota sem afsökun fyrir einhverju.
Þú átt frekar að spyrja af hverju
hlutirnir eru eins og þeir eru og
hvort hægt sé að bæta þá á ein-
hvern hátt. Áhrifamikið fólk á að
hugsa hvernig færa megi málin á
annað stig og ekki vera hrætt við að
rugga bátnum þó að hann sé stöð-
ugur. Sérstaklega ef hann stefnir
stöðugt í ranga átt.
2 „Í sannleika sagt“Þetta orðaleg er ekki væn-
legt til að auka trúverðugleika eða
gegnsæi. Með því að nota þennan
frasa dregur þú frekar úr trúverð-
ugleika en hitt. Fólk efast frekar ef
þú reynir of mikið að sannfæra það.
Þú átt alltaf að segja öllum sann-
leikann, án þess að tilkynna um að
sannleika sé að ræða. Þannig vinn-
ur þú þér inn traust og fólk fer að
líta upp til þín.
3 „Ekki mitt vandamál“Algjörlega bannað ef þú ætlar
að ávinna þér virðingu og áhrifa-
mátt. Áhrifa- og valdamikið fólk á
að sækjast eftir vandamálum til að
leysa og áskorunum. Þú átt frekar
að segja: „Ég tek þetta verkefni að
mér“ eða „Ég ræð við þetta“. Þú
verður að sýna fram á að þú ráðir
við erfið og krefjandi verkefni til að
vinna þér inn traust og öðlast völd.
4 Ekki tala niðrandi um aðraÁhrifamikið fólk ætti aldrei
að tala niðrandi um annað fólk eða
reyna að sverta mannorð á ein-
hvern hátt. Ekki koma af stað slúð-
ursögum eða smjatta á slúðri, það
er mjög ófagmannlegt. Einblíndu
frekar á það jákvæða í náunganum
og komdu fram við fólk eins og þú
vilt að komið sé fram við þig.
5 „Þetta er ómögulegt“Það er ekkert ómögulegt og
því ætti aldrei að láta þessi orð
falla. Reyndu að byggja upp ónæmi
fyrir því þegar fólk segir þetta við
þig. Það á enginn að gera að engu
drauma þína með þessum orðum.
Ef allir gæfust upp við að heyra
þessi orð þá hefðu varla orðið mikl-
ar framfarir í heiminum. Mundu
bara að þú getur allt, ef viljinn er
fyrir hendi.
6 „Svona er þetta bara“Þetta lýsir uppgjöf. Áhrifamik-
ið fólk ætti aldrei að gefast upp og
því er þessi frasi alveg glataður. Með
því að láta þessi orð falla ertu búin/n
að ákveða að sætta þig við einhverj-
ar aðstæður sem eflaust er hægt að
breyta til hins betra. Reyndu frekar
haga málum þannig að þér og fólk-
inu í kringum þig líði vel. Ekki sætta
þig við aðstæður af því þú heldur að
svona sé þetta bara.
7 „Ég vinn ein/n“Ef þú vilt algjörlega gera út
af við feril þinn þá máttu endilega
halda þessu til streitu. Í dag vinn-
ur fólk saman og nær þannig há-
marksárangri. Að útdeila verk-
efnum og þora að spyrja er alltaf
jákvætt. Aldrei láta stolt þitt koma
í veg fyrir að þú spyrjir ráða. Það er
ekki veikleikamerki að vita ekki allt,
það er veikleikamerki að veigra sér
við að spyrja.
8 „Ég er búin/n að fá nóg af þessu“
Það er hálfgerð dauðasynd hjá
áhrifa- og valdamiklu fólk að kvarta
yfir einhverju. Þegar þér finnst þú
þurfa að kvarta reyndu þá frekar að
finna farsæla úrlausn á umkvörtun-
arefninu. Það er mun heilbrigðari
aðferð og þér líður betur. Þannig
öðlast þú líka meiri virðingu.
9 „Mér er sama hvað þeim finnst“
Það er stundum sagt að maður eigi
ekki að hlusta á hvað öðrum finnst,
en til að öðlast virðingu og völd er
nauðsynlegt að hlusta á aðra. Þú átt
að vilja vita hvað aðrir hafa að segja
því þeir skipta þig máli. Reyndu að
hlusta á fólkið í kringum þig og ef
þú hittir nýtt fólk, kynntu þig þá og
sýndu því áhuga sem það er að gera.
Þannig stækkar þú tengslanetið þitt
á jákvæðan hátt. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Meiri virðing Til að öðlast
virðingu fólks og komast í áhrifa-
stöðu verður þú að gæta að því
hvernig þú talar. Mynd 123Rf
Kynlíf eingöngu
til skemmtunar
Samkvæmt manninum sem
skapaði getnaðarvarnarpilluna
verður kynlíf aðeins stundað
til skemmtunar árið 2050.
Í viðtali við Telegraph sagði
efnafræðingurinn Carl Djer-
assi að þar sem tæknin hefur
þotið áfram í tæknifrjóvgunum
mun sú aðferð verða algengari,
jafnvel hjá pörum sem þurfa
ekki á hjálp að halda vegna
ófrjósemi.
Þetta, segir Djerassi, mun
skila sér í heilbrigðari börnum
þar sem yngra fólk mun frysta
egg sín og sæði.