Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Side 48
Helgarblað 14.–17. nóvember 201448 Sport Strákarnir okkar eru í toppstandi n Allir klárir í slaginn gegn Tékkum í undankeppni EM n Byrjunarliðsmenn eru flestir lykilmenn í sínum liðum Í slenska karlalandsliðið í knattspyrnu á mikilvægan leik fyrir höndum á sunnudag þegar liðið mætir Tékkum ytra í undankeppni Evrópumótsins. Bæði lið hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum og nokkuð ljóst að það lið sem fer með sigur af hólmi fer langt með að tryggja sér að minnsta kosti sæti í umspili fyrir lokakeppnina sem fer fram í Frakklandi árið 2016. Tvö efstu lið riðilsins fara beint í lokakeppnina en liðin í 3. sæti fara í umspil. DV tekur hér saman stöðuna á þeim leikmönnum íslenska liðsins sem byrjuðu gegn Hol- lendingum í síðasta leik liðsins í undankeppninni og hversu mikið þeir hafa spilað með félagsliðum sínum á þeim rúma mánuði sem liðinn er síðan leikurinn var. Ólíklegt verður að teljast að landsliðsþjálf- ararnir Lars Lagerbäck og Heim- ir Hallgrímsson geri breytingar á byrjunarliðinu enda íslenska liðið með fullt hús stiga og marka- töluna 8–0 eftir fyrstu þrjá leikina. n einar@dv.is Gylfi Sigurðsson Staða: Miðjumaður Landsleikir/mörk: 27/9 Mínútur frá síðasta leik: 309 Gylfi Þór Sigurðsson er lykilmaður íslenska landsliðsins og Swansea sem farið hefur vel af stað í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Það þarf ekki að fjölyrða um frammistöðu Gylfa í treyju Swansea. Hann hefur leikið afar vel og skoraði stórglæsilegt mark beint úr aukaspyrnu í sigri gegn Arsenal um síðustu helgi. Þessi frábæri miðjumaður hefur leikið fjóra af fimm leikjum Swansea frá Hollandsleiknum en hann var hvíldur í deildarbikarleik gegn Liverpool vegna smávægilegra meiðsla. Emil Hallfreðsson Staða: Vinstri kantmaður Landsleikir/mörk: 45/1 Mínútur frá síðasta leik: 405 Það segir ýmislegt um gæði Emils Hallfreðssonar að hann er fastamaður í nokkuð sterku liði Verona í A- deildinni á Ítalíu. Emil hefur byrjað alla fimm leiki liðsins frá leiknum gegn Hollandi og leikið þrjá þeirra til enda. Verona hefur að vísu ekki unnið neinn þessara leikja en Emil ætti að vera í góðu leikformi fyrir komandi lands- liðsverkefni. Það er mikilvægt enda hefur Emil verið einn allra besti leikmaður íslenska liðsins í undankeppninni. Kári Árnason Staða: Miðvörður Landsleikir/mörk: 37/2 Mínútur frá síðasta leik: 360 Kári hefur verið fastamaður í liði Rotherham sem leikur í næstefstu deild Englands. Hann hefur byrjað fjóra af fimm síðustu leikjum liðsins frá leiknum gegn Hollandi. Kári missti af síðasta deildarleik Rotherham vegna smávægilegra meiðsla í tá en ætti að vera orðinn klár í slaginn fyrir leikinn gegn Tékkum á sunnudag. Rotherham situr í 19. sæti Champ- ionship-deildarinnar með 18 stig en liðið er nýliði í þeirri deild. Hannes Þór Halldórsson Staða: Markvörður Landsleikir/mörk: 24/0 Mínútur frá síðasta leik: 360 Hannes Þór hefur staðið vaktina með sóma, bæði með íslenska landsliðinu og félagsliði sínu Sandnes Ulf í Noregi, undanfarin misseri. Frá sigurleiknum gegn Hollendingum þann 13. október hefur Hannes spilað alla fjóra deildarleiki Sandnes, en norsku deildinni lauk um liðna helgi. Hannes var einn allra besti leikmaður liðsins á tímabilinu en þrátt fyrir fína frammistöðu tókst honum ekki að koma í veg fyrir að lið hans félli um deild. Ari Freyr Skúlason Staða: Vinstri bakvörður Landsleikir/mörk: 25/0 Mínútur frá síðasta leik: 360 Ari Freyr Skúlason leikur með OB í dönsku úrvals- deildinni þar sem hann er einn af lykilmönnum liðsins. Ari spilar hvern einasta leik frá upphafi til enda og hefur hann spilað alla fjóra leiki OB frá leiknum gegn Hollandi. OB hefur þó átt í talsverðu basli í dönsku úrvalsdeildinni en liðið situr í næstneðsta sæti deildarinnar með 12 stig eftir 14 umferðir. Þeir Heimir Hallgrímsson og Lars Lager- bäck þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af leikformi Ara. Aron Einar Gunnarsson Staða: Miðjumaður Lands- leikir/mörk: 48/1 Mínútur frá síðasta leik: 460 Enginn af þeim leikmönnum sem byrjuðu gegn Hollandi og Lettum hefur leikið meira fyrir félagslið sitt undanfarn- ar vikur en fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson. Leikjaálagið í Championship-deildinni á Englandi, þar sem Aron leikur með Cardiff, er mikið og hefur okkar maður tekið þátt í öllum sex leikjum liðsins frá 13. október. Aron hefur í heildina leikið 18 leiki með Cardiff á tímabilinu og skorað tvö mörk. Birkir Bjarnason Staða: Hægri kantmaður Landsleikir/ mörk: 35/4 Mínútur frá síðasta leik: 200 Birkir leikur með Pescara í ítölsku B-deildinni þar sem hann spilar reglulega, yfirleitt í byrjunarliði. Í síðustu tveimur leikjum liðsins hefur Birkir þó byrjað á bekknum en í heildina hefur hann spilað 200 mínútur frá leiknum gegn Hollandi – nokkuð minna en aðrir byrjunarliðsmenn landsliðsins. Birkir virðist þó alltaf kunna best við sig í landslið- streyjunni þar sem hann spilar yfirleitt vel. Kolbeinn Sigþórsson Staða: Framherji Landsleikir/mörk: 26/16 Mínútur frá síðasta leik: 443 Kolbeinn hefur mátt þola talsverða gagnrýni frá stuðningsmönnum Ajax á leik- tíðinni. Þrátt fyrir það hefur hann fengið að spila heilmikið og tekið einhvern þátt í öllum leikjum Ajax-liðsins frá leiknum gegn Hollandi. Alls hefur hann spilað 443 mínútur í síðustu níu leikjum Ajax í öllum keppnum. Kolbeinn er langmarkahæsti leikmaður íslenska hópsins með 16 mörk. Það sem af er þessu tímabili hefur hann skorað fjögur mörk í sextán leikjum með Ajax. Jón Daði Böðvarsson Staða: Framherji Landsleikir/mörk: 7/1 Mínútur frá síðasta leik: 360 Jón Daði Böðvarsson kom nokkuð óvænt inn í byrj- unarlið Íslands í fyrsta leik undankeppninnar gegn Tyrkjum og byrjaði hann einnig gegn Lettum og Hollendingum. Jón Daði leikur með Viking í Noregi þar sem hann hefur verið fastamaður. Tímabilinu þar er nú lokið og í heildina lék hann 29 leiki og skoraði í þeim 5 mörk. Viking endaði í 10. sæti norsku deildarinnar. Hann hefur leikið fjóra leiki með liði sínu frá Hollandsleiknum, alls 360 mínútur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.