Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Blaðsíða 52
52 Menning Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Lífrænt fæðu „fjölvítamín“ náttúrunnar færir þér yfir 100 næringaefni Verndaðu þig fyrir pestum og náðu þér upp úr flensu* og kvefi með Lifestream Spirulina lífræn bætiefni fyrir alla lífræn bætiefni fyrir alla *Rannsóknir staðfesta árangur Þorleifur Örn Arnarsson leikstýrir Túskildingsóperu Brechts í Wiesenbad B esta leiðin til að ræna banka er að eiga hann.“ Þannig hljómar ein þekktasta lína í einni helstu perlu þýskra leikhúsbókmennta, Tú­ skildingsóperunni eftir Bertolt Brecht. Leikritið rataði fyrst á svið í Berlín árið 1928 en gagnrýni þess á auðhyggjuna á ekki síður við nú. Og þó, hvernig er hægt að halda verki fersku sem hefur verið leikið yfir 10.000 sinnum á sviði? Leikstjórinn Þorleifur Örn Arnars­ son ræðst því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hann setur verkið á svið í heimalandi Brechts, nánar tiltekið í hessíska ríkis­ leikhúsinu í Wiesbaden. Og fljótlega verður ljóst að hann ætlar sér ekki að nálgast verkið með helgibrag. Einn af hápunktum verksins er tónlist Kurts Weill og hér er hent beint í eitt þekktasta lagið. Sjóræn­ ingja­Jenný er flutt jafnvel áður en tjöldin eru dregin frá í stað þess að geyma það fram yfir miðju þar sem það er vanalega. Sólveig Arnardóttir syngur með glans, eini Íslendingur­ inn á sviðinu, en Filippía Elíasdóttir sér um búninga. Dottið inn og út úr hlutverkum En hvernig skal þá syngja lagið um Makka hníf, sem hefur verið flutt af öllum frá Frank Sinatra til Nicks Cave? Jú, píanó kemur upp úr gólf­ inu og Makki og Polly syngja það sem dúett í fyrstu, þar til Makki tek­ ur völdin og stígur fram á sviðið á meðan Polly hendir í hann nærbux­ um. Þetta er þó ekki tækifæri fyrir óþarfa nekt, heldur er Polly í mörg­ um lögum sem fljúga yfir og ef til vill er þessi viðsnúningur táknrænn fyr­ ir samband þeirra allt. Hvarvetna er reynt að hrista upp í efni sem heimamenn þekkja svo vel. Leik­ ararnir detta stundum úr hlutverk­ um sínum og koma fram undir eig­ in nafni, fjórði veggurinn er rofinn í gríð og erg, Brecht var jú þekktur fyrir svokallað „verfremdungseffekt“ sem átti að minna áhorfendur á að þeir voru staddir í leikhúsi og þurftu að taka afstöðu til þess sem sagt var. Og hér er haldið í anda Brechts ef ekki alltaf í efnið, framandleikinn er ræddur á sviðinu og lögð áhersla á hann um leið. Jakkaklæddir menn Vondi karlinn (eða einn af þeim, því fátt er hér um góðmenni) kem­ ur fram í síðum svörtum leður­ frakka, en kemst ekki langt áður en leikararnir byrja að ræða það fram og aftur að vondu karlarnir í þýskri menningu séu alltaf í leðurfrökkum. Mikill kraftur er í öllu, leikmyndinni og ekki síður leikurunum, en aukaleikararnir eru margir enn í leiklistarskóla. Í Eldrauninni í Þjóð­ leikhúsinu var hetjan hengd utan­ sviðs, en hér fær hún að hanga í snörunni lengi vel. Og þó eru reipin enn best nýtt í eltingarleik í háloftum sem minna helst á teiknimynd með Bugs Bunny. Áhorfendur ráða sér vart fyrir kæti, klappað er upp aftur og aftur. Svona hafa þeir aldrei séð Brecht sinn áður. Rétt eins og í Nifl­ ingasögunni fyrr á árinu tekst Þor­ leifur á við helgustu vé heimamanna og sýnir í alveg nýju ljósi. Næst ligg­ ur Pétur Gautur hinn norski fyrir, en svo er spurning hvort ekki fari að koma tími hjá honum til að sýna sögu streit, því svo virðist sem hann hafi burði til að gera hvað sem er. n Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Makki hnífur Túskildingsóperan er eitt af þekktustu verkum þýska skálds- ins Bertholts Brecht. Brecht eins og þú hefur aldrei séð hann fyrr Þorleifur Örn Arnarson leikstýrir Túskildingsóperunni í heimalandi höfundarins. Makki hnífur og fljúgandi nærbuxur Söngleikur frá þeim sem færðu okkur Frozen Lagahöfundar Frozen, Robert Lopez og Kristen Anderson­ Lopez, eru að vinna að söngleik sem hefur fengið nafnið Up Here. Söngleikurinn fjallar um tölvuviðgerðarmanninn Dan sem á erfitt félagslega en hrífst af bolahönnuðinum Lindsay en ofur virkt ímyndunarafl hans skemmir alla möguleika hans á eðlilegum samskiptum. Robert og Kristen, sem fengu Óskarsverðlaun fyrir Let It Go í teiknimyndinni Frozen, skrifa handritið en söngleiknum er leikstýrt af Alex Timbers. Vigdís veitir börnum verðlaun Íslenskuverðlaun unga fólksins, í bókmenntaborginni Reykjavík, verða afhent við í Norðurljósa­ sal Hörpu á laugardag, þann 15. nóvember kl. 13.00. Hátt í eitt hundrað börn og ungmenni í grunnskólum borgarinnar munu þá taka þá við verðlaununum, Þrestinum góða, sem hannaður er af Ingi­ björgu Hönnu Bjarnadóttur. Verndari verðlaunanna er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver­ andi forseti. Frú Vigdís Finn­ bogadóttir mun flytja stutt ávarp og Alexander Þór Gunnarsson, nemandi í Rimaskóla, mun vera með uppstand auk þess sem söngatriði úr barna­ og ung­ lingaleikritinu Mamma Gjé verða flutt. Dagur B. Eggertsson setur athöfnina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.