Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Qupperneq 60
Helgarblað 14.–17. nóvember 201460 Fólk
Stjörnuforeldrar
sem voru myrtir
Líf stjarnanna í Hollywood hefur ekki alltaf verið dans á rósum. Á bak við frægð,
auðævi og flottan frama liggur oft sár fortíðin. Hér er listi yfir frægar stjörnur
sem hafa misst foreldra sína fyrir hendi morðingja.
Mamma skaut pabba
Árið 1991 skaut Gerda, móðir leikkonunnar Charlize Theron,
eiginmann sinn og föður leikkonunnar til bana. Fjölskyldan
bjó í Suður-Afríku en Charles var ofbeldisfullur alkóhólisti.
Gerda skaut hann í sjálfsvörn og hlaut ekki dóm fyrir.
Myrtur og rændur Faðir körfuboltastjörnunnar Michaels Jordan var myrtur árið 1993. Morðingjarnir réðust á James Jordan, skutu hann til bana og stálu bíl hans og öðrum munum, þar á meðal tveimur NBA-hringj-um sem sonur hans hafði gefið honum.
Missti móður,
bróður og frænda
Söngkonan Jennifer Hudson, sem sló í
gegn í American Idol, hefur ekki átt sjö
dagana sæla. Árið 2008 myrti mágur
hennar, William Balfour, móður
hennar, bróður og lítinn frænda.
Balfour, sem var kvæntur Juliu,
systur söngkonunnar, var fundinn
sekur og dæmdur til að afplána
þrjá lífstíðardóma.
Stunginn
með ísnál
Leikkonan Charice
Pempengco, sem einhverjir
muna eftir úr sjónvarps-
þáttunum Glee, missti
föður sinn árið 2011. Ricky
Pempengco var stunginn
til bana á Filippseyjum
eftir að hafa rekist
utan í drukkinn
mann sem reiddist
svona svakalega
og stakk Ricky
ítrekað í brjóst og
bak með ísnál.
Goðsögn drepin Faðir tónlistarmannsins Seans Lennon, goðsögnin John
Lennon, var skotinn til bana þann 8. desember 1980. Mark David Chapman lýsti sig sekan og var dæmd-
ur í 20 ára til lífstíðarfangelsi. Hann situr enn inni og hefur sjö sinnum verið neitað um reynslulausn.
Mamma drepin Móðir
rokkarans Daves Navarro, Constance, var s
kot-
in til bana í íbúð sinni í Los Angeles árið 198
3.
Vinkona hennar, Sue Jory, var einnig drepin
.
Morðinginn hafði ekki fundist árið 1991 þeg
ar
Navarro sagði frá málinu í þættinum Amer
ica's
Most Wanted. Í kjölfar sýningar þáttarins k
omu
vísbendingar sem leiddu til handtöku fyrrv
er-
andi kærasta Constance, Johns Riccardi.
Skipulagt
morð Leikarinn
Dylan McDermott var að-
eins fimm ára þegar móðir
hans, Diane, var skotin til
bana. Í fyrstu var talið að
um slysaskot hefði verið að
ræða en síðar var kærasti
Diane fundinn sekur um að
hafa skipulagt morðið.
Missti
bróður og
föður
Sjónvarpskonan Omarosa
Manigault, sem vakti
til að mynda athygli í
raunveruleikaþættinum
Celebrity Apprentice, hefur
misst bæði föður og bróður.
Omarosa var aðeins sjö
ára þegar faðir hennar var
myrtur. Bróðir hennar, Jack,
var svo drepinn árið 2011.
Kyrkt
með
sokka-
buxum
Móðir bandaríska
rithöfundarins James
Ellroy, Geneva, var
kyrkt með sokkabux-
um árið 1958. Morðið
er enn óleyst.
Vopnað
rán Foreldrar
Dallas-leikarans
Partricks Duffy, Marie
og Terence Duffy, voru
drepin árið 1986 í vopn-
uðu ráni á bar sem þau
ráku. Tveir menn voru
ákærðir fyrir ódæðið
og sendir í samtals 75
ára fangelsi.
Vanþakklátur
puttaferðalangur
Faðir tónlistarmannsins Greggs Allman, Willis Turner
Allan, var myrtur árið 1949 af puttaferðalangi Buddy
Green sem Allman hafði boðið far af bar.