Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2014, Síða 62
62 Fólk Helgarblað 14.–17. nóvember 2014 Göldrótt Galdra- skjóða Gurríar n Draumar, spilaspár og talnaspeki n Allsherjargoði gaf henni tarotspil N ú í vikunni kom út Galdra- skjóða Gurríar, bók yfir- full af alls kyns fróðleik um tarotspil, ástargaldra, feng shui og fleira í þeim dúr. Blaðamaður DV spjallaði aðeins við höfundinn, Guðríði Haralds- dóttur, um gripinn. Alltaf jafn skemmtilegt Guðríður, eða Gurrí eins og hún er iðulega kölluð, hefur unnið á Vik- unni í um 15 ár. Á þessum árum hefur hún skrifað fjöldann allan af greinum um hið dulræna í heimin- um. „Ég hef skrifað greinar af þess- um toga í Vikunni í gegnum árin og upp kom sú hugmynd fyrr á ár- inu að taka saman nokkrar greinar og gefa þær út saman. Ég fór þá að vinna hana meðfram öðru og tók til uppáhaldsgreinarnar mínar og endurbætti þær aðeins. En bókin er hugsuð til dægrarstyttingar. Ég var rosalega mikil áhugamanneskja um allt dulrænt á níunda áratug síðustu aldar. Áhuginn hefur dvín- að aðeins á margan hátt síðan þá en mér finnst þetta samt alltaf jafn- skemmtilegt. Mér finnst okkur hafa heppnast vel að setja saman eitt- hvað sem hentar öllum. Fékk góða hjálp Gurrí var ekki ein um að setja saman bókina heldur fékk hún hjálp Lindu Guðlaugsdóttur sem sá um umbrotið og Aldísar Páls- dóttur sem tók flestallar myndirn- ar. „Bókin er ofboðslega falleg. Mér finnst hún öll svo skemmtileg og skreytingarnar frumlegar. Krónuspá Úr mörgu er að velja í bókinni en hægt er að finna til dæmis í hvaða stjörnumerki húsið þitt er í. „Það fer þá eftir því í hvaða mánuði þú fluttir inn,“ segir Gurrí og hlær. „Þetta er allt á léttu nótunum. Eins er þarna krónuspá að hætti I Ching. Einhverja talnaspekina þarf fólk samt aðeins að reikna, en það er ekki erfitt.“ Fékk að vera forsíðustúlka Á forsíðu bókarinnar sést kona haldandi á alls konar skjóðum. „Ég fékk að vera forsíðustúlkan. Þetta er í annað sinn sem ég hef feng- ið að prýða forsíðu. Ég fékk einu sinni að vera forsíðustúlka Völvu- blaðsins. Þar sást reyndar bara í augun á mér þar sem spádómskúla huldi restina. Mamma hélt í alvör- unni að ég væri völvan og sagði fjölda manns það. Það er alls ekki satt, það veit enginn hver hún er nema ég.“ Fékk tarotspil frá allsherjargoða „Ég hef sankað að mér miklu efni í gegnum tíðna og galdraskjóðan er því réttnefni,“ segir Gurrí. „Ég var afar duglegt að fara á námskeið í gamla daga og fór til að mynda á námskeið í tarotspilalögn. Mynd- irnar í bókinni eru af mínum spil- um en þau voru keypt af Hilmari Erni Hilmarssyni allsherjargoða. Hann var með á tarotspilanám- skeiðinu en hann keypti þau fyrir mig úti í London.“ Oft ratast kjöftugum satt á munn Að sögn var Gurrí mjög dugleg að spá fyrir vini og vandamenn eftir þessi námskeið. „Ég hef enga dul- ræna hæfileika en oft ratast kjöft- ugum satt á munn, en vegna þess að ég spái aðallega fyrir vinum og vandamönnum þá fékk ég fljótt að vita ef eitthvað rættist. Ég man eftir einu skipti þar sem ferlega vont spil kom upp en svo kom afskaplega gott spil þar við hliðina. Ég sagði við vinkonu mína: „Þetta er ekki gott spil, en spilið við hliðina er svo frábært að þetta er kannski eins og einhver muni fótbrotna.“ Nokkrum dögum seinna fótbrotnaði ömmu- systir hennar. Enginn varð meira hissa en ég,“ segir Gurrí hlæjandi að lokum. n Helga Dís Björgúlfsdóttir helgadis@dv.is Guðríður Haraldsdóttir Gurrí hefur unnið um árabil á Vikunni, en á á tímabili vann hún á Aðalstöðinni þar sem hún dró spil og spáði fyrir hlustendur. MynD Kristinn M „Ég fékk að vera forsíðustúlkan. Þetta er í annað sinn sem ég hef fengið að prýða forsíðu. Eiga von á strák Knattspyrnumaðurinn og fyrrver- andi Herra Ísland, Garðar Gunn- laugsson, og kærastan hans, Alma Dögg Torfadóttir, fóru í 20. vikna sónar á dögunum þar sem í ljós kom að parið á von á á dreng. Samkvæmt heimildum DV hefur meðgangan gengið vel en sá stutti er væntanlegur í heim- inn 2. apríl. Strákurinn verður fyrsta barn Ölmu Daggar en Garðar á fyrir börn með ísdrottn- ingunni Ásdísi Rán. Kemst í jólaskapið í hvelli Vigdís Hauksdóttir er gestaskreytir á blómaskreytinganámskeiði Blómavals Þ að er gaman að taka þátt í þessu fyrir jólin. Ég komst í jólaskapið í hvelli í fyrra og ætla því að endurtaka leikinn nú,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Fram- sóknarflokksins og blómaskreyt- ir. Hún verður gestaskreyt- ir á Blómaskreytinganámskeiði Blómavals í næstu viku. „Ég var gestaskreytir í fyrra líka, það heppnaðist svo vel að þau báðu mig um að koma aftur. Ég er ekki mikið að skreyta meðfram þing- starfinu en ég hef tekið að mér eitt og eitt brúðkaup á sumrin mér til gamans.“ Íslandsmeistari í blómaskreytingum Flestir þekkja Vigdísi sem þing- mann og formann fjárlaganefnd- ar Alþingis en færri vita þó að hún varð fyrsti Íslandsmeistar- inn í blómaskreytingum árið 2002. Eins hjálpaði hún við að koma á laggirnar blómaskreytingabraut í Garðyrkjuskólanum. Hún segist reyna að grípa í fagið reglulega svo það gleymist ekki. „Þetta er hand- verk og í raun iðngrein og því er gaman að grípa í það með þessum hætti. Ég held sýningu í tvo tíma og þarf svo ekki að spá í það meira. Það er mjög gott að geta gripið í þekkinguna án nokkurrar skuld- bindingar nema þá bara að vinna vinnuna vel og gera nýja hluti.“ Fór í nám til Danmerkur „Ég fór í Garðræktarskóla ríkisins og lærði þar ylrækt sem er ræktun blóma og grænmetis undir gleri og úti. Eftir námið fór ég að vinna í Blómavali en ég fann að ég vildi sér- hæfa mig meira. Ég fór þá til Dan- merkur og lærði blómaskreytingar. Þegar ég kom heim aftur tók ég þátt í að stofna blómaskreytingabraut í skólanum og varð kennari við brautina. Þannig byrjar kennslan hér á landi.“ Með einfaldan smekk Vigdís á sér mörg uppáhaldsblóm og eru þau öll mjög árstíðabundin. „Ég hrífst mjög af hverri árstíð sem við eigum hér á landi en nú í des- ember og fyrir jólin eru það rauðir túlípanar og amaryllis. Ég hef mjög einfaldan smekk og er aldrei með hefðbundinn aðventukrans. Ég er frekar með færri og stærri hluti hjá mér. Þegar furan er komin inn til mín og er skreytt, rauðir túlípanar komnir í vasa og amaryllis-lauk- ur í pott, þá geta jólin komið fyrir mér,“ segir Vigdís að lokum. n helgadis@dv.is Vigdís Hauksdóttir Hún varð fyrsti Íslandsmeist- arinn í blómaskreytingum árið 2002. MynD siGtryGGur Ari Fimmtugur á Taílandi Magnús Scheving ákvað að sleppa risaveislunni á fimm- tugsafmælisdaginn sinn og fór í staðinn til Taílands með kær- ustu sinni, Hrefnu Björk Sverris- dóttur, samkvæmt Séð og heyrt. Margir hafa eflaust búist við stóru boði þar sem öllu helsta nafn- togaða fólkinu yrði boðið en svo varð ekki. Magnús skaust upp á íþróttastjörnuhimininn snemma á níunda áratugnum þegar hann vann hvert mótið á fætur öðru í aerobic-i þegar sú íþrótt var upp á sitt besta. Í framhaldi af því bjó hann til Latabæ, þar sem hann lék Íþróttaálfinn, sem hefur not- ið gífurlegra vinsælda um allan heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.