Fréttablaðið - 17.05.2016, Síða 16

Fréttablaðið - 17.05.2016, Síða 16
Í dag 18.40 Hull - Derby Sport2 19.30 KR - Stjarnan Sport 22.00 Pepsi-mörkin Sport 19.15 Víkingur - Valur Víkin 19.15 Þróttur - Breiðablik Þróttarv. 20.00 KR - Stjarnan Alvogenv. Nýjast WBA 1 – 1 Liverpool Watford 2 – 2 Sunderland Chelsea 1 – 1 Leicester Newcastle 5 – 1 Tottenham Stoke 2 – 1 West Ham Southampton 4 – 1 Crystal Palace Everton 3 – 0 Norwich Arsenal 4 – 0 Aston Villa Swansea 1 – 1 Man. City Efst Leicester 81 Arsenal 71 Tottenham 70 Man. City 66 Southampt. 63 Neðst Bournem. 42 Sunderland 39 Newcastle 37 Norwich 34 Aston Villa 17 Enska úrvalsdeildin Olísdeild kvenna, lokaúrslit Stjarnan - Grótta 23-28 Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún Stefáns- dóttir 5/5, Sólveig Kjærnested, Esther Ragnarsdóttir 3, Rakel Dögg Bragadóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir 3, Guðrún Bjarna- dóttir 1, Stefanía Theodórsdóttir 1, Sandra Rakocevic 1, Þórhildur Gunnarsdóttir 1, Nataly Sæunn Valencia 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 13 (35/4, 37%). Mörk Grótt: Lovísa Thompson 8, Þórey Ásgeirsdóttir 6 , Laufey Guðmundsdóttir 4, Anna Ú. Guðmundsdóttir 4, Arndís Er- lingsdóttir 2, Anna Stefánsdóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1, Eva M Kristinsdóttir 1, Sunna María Einarsdóttir 1/1. Varin skot: Heiða Ingólfsdóttir 11 (31/1, 35%). Grótta vann einvígið, 3-1. Pepsi-deild karla Fylkir - ÍBV 3-0 1-0 Mikkel Maigaard (3.), 2-0 Sindri Magnús- son (8.), 3-0 Sigurður G. Benónýsson (86.). Eyjamenn unnu sinn fyrsta útisigur í deildinni en Fylkir er enn án stiga eftir fjórar umferðir. FH - Fjölnir 2-0 1-0 Viðar Ari Jónson (3., sjálfsmark.), 2-0 Steven Lennon (54.) FH hafði ekki tapað tveimur leikjum í röð í sex ár og byrjaði ekki á því í gærkvöldi gegn Fjölni. Víkingur Ó. - ÍA 3-0 1-0 William da Silva (6.), 2-0 Hrvoje Tokic (38.), 3-0 Aleix Egea (83.). Nýliðar Ólsara eru á toppnum í deildinni eftir fjórar umferðir og héldu hreinu í fyrsta sinn. Efri hluti Víkingur Ó. 10 Stjarnan 9 FH 9 ÍBV 7 Breiðablik 6 Fjölnr 6 Neðri hluti KR 5 Valur 3 ÍA 3 Víkingur 1 Þróttur 1 Fylkir 0 Olísdeild karla, lokaúrslit Afturelding - Haukar 29-30 Mörk UMFA: Mikk Pinnonen 10, Árni Eyjólfsson 6/1, Jóhann G Einarsson 4/3, Þrándur Gíslason 2, Pétur Júníusson 2, Birkir Benediktsson 2, Davíð Hlíðdal Svansson, Kristinn Bjarkason 1, Gunnar Þórsson 1. Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 23/1 (52/3, 44%). Mörk Hauka: Jón Þ. Jóhannsson 5, Elías Már Halldórsson 5, Adam Baumruk 5 , Hákon Styrmisson 5/3, Heimir Óli Heimisson 3, Brynjólfur Brynjólfsson 3, Janus D Smára- son 3, Egill Eiríksson 1. Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 25/3 (50/6, 50%). Staðan í einvíginu er 2-2. 1 7 . m a í 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D a G U R16 s P O R t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð sport HanDBOLtI Grótta varð á sunnudag- inn Íslandsmeistari kvenna í hand- bolta annað árið í röð og í annað sinn í sögu félagsins. Grótta varð af tækifæri til að sópa úrslitakeppnina þegar liðið tapaði þriðja leiknum á heimavelli gegn Stjörnunni fyrir helgi en stúlkurnar af Seltjarnarnesi komu gríðarlega ákveðnar til leiks í Mýrinni og gengu frá einvíginu með stæl, 28-23, og samanlagt 3-1. Veturinn olli Gróttu framan af nokkrum vonbrigðum en liðið ætlaði sér að sjálfsögðu alla titlana eftir að hafa orðið deildar-, bikar- og Íslandsmeistari á síðasta tímabili. Liðið missti af deildarmeistaratitl- inum til Hauka og tapaði í bikarúr- slitum gegn Stjörnunni. En í úrslita- keppninni var það Grótta sem bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína og sýndi að það er besta liðið á Íslandi í dag. Um það er ekki deilt. Ung og eldri Í sterkri liðsheild Gróttu voru tveir leikmenn sem báru af; reynslubolt- inn í markinu, Íris Björk Símonar- dóttir, og 16 ára undrið sem er Lovísa Thompson. Gróttuliðið er auðvitað vel mannað og varnarleikurinn gríðarlega sterkur en þessar tvær stigu upp þegar þess virkilega þurfti. Íris varði að meðaltali 50 pró- sent skotanna sem hún fékk á sig í einvíginu, þar af 61 prósent í fjórða leiknum þar sem liðið tryggði sér titilinn. Íris var hreint mögnuð í rimmunni og gat fagnað í leikslok. En meira að segja hún gat ekki annað en talað um Lovísu Thomp- son sem skoraði 24 mörk í lokaúr- slitunum eða sex mörk að meðaltali í leik. Lovísa skoraði 10 mörk í fyrstu tveimur leikjunum og var með 50 prósent skotnýtingu en þegar beðið var um að lykilmenn Gróttu myndu taka af skarið í sóknarleiknum var það hin 16 ára Lovísa sem gerði það. Hún skoraði 14 mörk í seinni tveimur leikjunum og bætti skot- nýtinguna í 61 prósent. Lovísa skor- aði átta mörk í ellefu skotum í fjórða leiknum og var algjörlega mögnuð. „Ég verð að minnast á hana Lovísu Thompson. Hún er eitthvert undra- barn. Hún er búin að vera mögnuð og það gleymist oft að hún er á fyrsta ári í menntaskóla. Ég dáist að því hvernig hún stígur upp. Hún er eins og gull fyrir okkur í þessari úrslitakeppni,“ sagði Íris Björk um Lovísu eftir leik en sú unga var sami töffarinn og alltaf. „Það er ekkert annað í stöðunni. Það þarf að sækja á markið og þeir skora sem þora,“ sagði Lovísa við Fréttablaðið eftir leik. Árlegur viðburður Kári Garðarsson er að stimpla sig inn sem einn af bestu þjálfurum landsins, en árangur hans með Gróttuliðið undanfarin tvö tímabil er eftirtektarverður. Hann hefur fengið til sín frábæra leikmenn en fengið þá til að spila sem eina heild og byggir á virkilega sterkum varnarleik. „Er þetta ekki bara árlegur við- burður í maí? Titill á loft hjá Gróttu í TM höllinni,“ sagði Kári hress í leikslok en þarna fagnaði Grótta líka titlinum í fyrra. „Ef við hefðum farið í oddaleik hefði ég verið ein taugahrúga á mánudag og þriðju- dag. Ég er rosalega feginn að vera búinn og geta fagnað í kvöld og notið stundarinnar,“ sagði Kári Garðarsson. tomas@365.is Toppuðu á réttum tíma Grótta varði Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild kvenna í handbolta en liðið lagði Stjörnuna 3-1. Laufey Ásta Guðmundsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir lyfta Íslandsbikarnum fyrir Gróttu í Garðabænum. FRéttABLAðið/ANDRi MARiNÓ 1 7 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 7 1 -E D 5 4 1 9 7 1 -E C 1 8 1 9 7 1 -E A D C 1 9 7 1 -E 9 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 6 4 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.