Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.05.2016, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 17.05.2016, Qupperneq 21
Útlit og fegurð 17. maí 2016 Kynningarblað Actavis| Artica „Ætla má að allt að 10 prósent Ís- lendinga þjáist af húðsjúkdómnum rósroða en ekki eru til greinargóð- ar upplýsingar um algengi sjúk- dómsins hér á landi,“ segir Guð- finna Ármannsdóttir, markaðs- fulltrúi lausasölulyfja hjá Actavis, en bendir á að samkvæmt Mats Berg yfirlækni og dósent við há- skólann í Uppsala sé algengi rós- roða í Svíþjóð um 14 prósent hjá konum og 5 prósent hjá körlum*1. Rósroði (e. rosacea) er húðsjúk- dómur sem hrjáir fullorðið fólk, en líkist einna helst bólóttri húð unglinga. Rósroði kemur yfir- leitt ekki fram hjá fólki fyrr en eftir þrítugt og kemur fyrst fram sem roði á höku, kinnum, nefi eða enni. „Til að byrja með er þessi roði að koma og fara og einkennin oft tekin sem eitthvað tilfallandi, sólbruni eða eitthvað slíkt og því hunsuð,“ segir Guðfinna en húð- sjúkdómurinn, sem er krónískur, er talinn vera nokkuð vangreind- ur og vanmeðhöndlaður. „Sjúkdómurinn er algengari hjá konum en erfiðustu tilvikin eru oftast hjá körlum. Líklega er það vegna þess að konur leita sér fyrr hjálpar en karlar,“ segir hún en engin lækning er til við rósroða. „Hins vegar má meðhöndla ein- kenni hans með lyfjum og breytt- um lífsstíl.“ Ef fólk grunar að það sé með rósroða mælir Guðfinna með því að það fái greiningu hjá lækni sem ráðleggi viðeigandi meðferð. „Því fyrr sem rósroði er meðhöndlað- ur því líklegra er að hægt sé að ná árangri í að halda einkennum í skefjum,“ segir hún en ef ekk- ert er að gert verður roðinn var- anlegri, háræðar verða sýnilegri og bólur koma fram. Nefið getur orðið rautt og bólgið, sérstaklega hjá karlmönnum, og í sumum til- fellum verða augun við- kvæm, jafnvel vökvakennd og blóðhlaupin. Ástæða rós- roða er óþekkt en líklegt er að þætt- ir sem leiða til út- víkkunar æða geri hann verri. Til dæmis heitir drykkir, vín, kryddaður matur, sól, hiti og raki, kuldi og vindur auk þess sem tilfinningalegt og lík- amlegt álag getur ýtt undir ein- kennin. Hingað til hafa lyf við rósroða verið lyfseðilsskyld en nú er hægt að fá lyfið Rosazol án lyfseðils. „Innihaldsefnið í Rosazol-krem- inu er vel þekkt undir nafninu metrónídazól 1%. Það hefur verið hægt að fá gegn lyfseðli um ára- bil og hefur verið ein mest notaða útvortis meðferð við rósroða. Það er því ánægjulegt að segja frá því að Rosazol er nú aðgengilegt öllum þeim sem hafa greinst með rós- roða,“ segir Guðfinna. *1. Berg M, Liden S. An epidemiologi- cal study of rosacea. Acta Derm Ve- nereol 1989;69:419-23. rosazol, fyrsta og eina lyfið án lyfseðils við rósroða Rósroði er langvinnur sjúkdómur sem lýsir sér með roða, bólum, graftarbólum, æðasliti og stundum þrota í andliti. Rósroði er hvimleiður og mikilvægt að meðhöndla hann sem fyrst til að halda einkennum í skefjum. Nú er hægt að fá lyfið Rosazol við rósroða án lyfseðils. guðfinna Ármannsdóttir, markaðs- fulltrúi lausasölulyfja hjá actavis. rósroði (e. rosacea) er húðsjúkdómur sem hrjáir fullorðið fólk, en líkist einna helst bólóttri húð unglinga. notkunarsvið: Rosazol 10 mg/g krem inniheldur virka efnið metrónídazól. Lyfið tilheyrir flokki sýklalyfja, virkt gegn nauðbundnum (obligate), loftfælnum bakteríum og frumdýrum og ætlað til staðbundinnar notk- unar við rósroða. Áður en meðferð með Rosazol kremi hefst skal læknir staðfesta sjúkdómsgreininguna. Sérstök varnarorð: Forðast ber að kremið berist í augu eða á slímhúð. Forðast ber sterkt sólarljós og út- fjólublátt ljós (sólböð, sólarlampa og útfjólubláa lampa) meðan á meðferð með metrónídazóli stendur. Við ertingu ætti að bera Rosazol sjaldnar á eða gera hlé á notkun þess. Forðast ætti ónauðsynlega og/eða langvarandi meðferð með Rosazol. Metrónídazól er nítróimidazól og þarf að nota með varúð ef fram koma einkenni um blóðmein eða saga er um slíkt. Lyfið inniheldur cetýl- og cetostearýlalkóhól sem getur valdið staðbundnum húðviðbrögðum (t.d. snertihúðbólgu). Sjúklingnum er ráðlagt að leita læknis ef þörf krefur. Meðganga og brjóstagjöf: Metrónídazól má aðeins nota á meðgöngu sé það metið lífsnauðsynlegt. Meta þarf m.t.t. mikilvægis meðferðarinnar fyrir móðurina hvort hætta eigi eða gera hlé á meðferð með Rosazol við brjóstagjöf. Skömmtun: Þunnt lag af Rosazol er borið á svæðið sem á að meðhöndla, tvisvar á dag, að morgni og að kvöldi. Meðalmeðferðartími er breytilegur eftir löndum en er venjulega 3 til 4 mánuðir. Meðferð ætti ekki að standa lengur en ráðlagt er en þó má læknirinn sem ávísar lyfinu framlengja meðferð- ina um aðra 3 til 4 mánuði þegar rík ástæða er til og í samræmi við alvarleika sjúkdómsins. Beri meðhöndlunin ekki markverðan árangur ætti að hætta henni. Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Apríl 2016. rosazol fæst án lyfseðils í apótekum. EinkEnni rósroða: Roði Bólur og graftarbólur Æðaslit 1 7 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 7 2 -1 E B 4 1 9 7 2 -1 D 7 8 1 9 7 2 -1 C 3 C 1 9 7 2 -1 B 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 6 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.