Feykir - 17.12.2003, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 44/200^
Þú ert aldrei einn á ferð
Þegar myrkrið er mest í landi okkar, þá
höldum við ljóssins hátíð, og okkur er það
tamt að tala einmitt þannig um jólin, sem
ljóssins hátíð. Rætur þeirrar líkingar liggja
víða, allt til spádómsorða Jesaja, sem
sagði: „Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér
mikið ljós. Yfir þá sem búa í landi nátt-
myrkranna, skín ljós.” Og í jólaguðspjalli
sínu segir Jóhannes um komu Jesú: „I hon-
um var líf, og lífið var ljós mannanna.
Ljósið skín í myrkrinu.”
Jólahefðin okkar er einnig rík af mynd-
máli ljóssins, sem notað er í sálmum, ljóð-
um og sögum, sem fjalla umjólin ogjóla-
hald fyrr og nú. Við þekkjum öll sagnir og
vitnisburði umþað, hvemigjólaljósið lýsti
upp og hrakti á brott húmið svarta, ekki
einungis í umhverfmu, heldur einnig í hug-
anum og lýsti upp bamssálina og gaf
stundir sem geymdust í huga, minningar
sem búið var að alla ævi, og gáfú jafnan
styrk og hugarró.
Það em eimitt helgar stundir sem skilja
eftir þær minningar og þau áhrif, sem
dvelja í huga, ekki einungis örskotsstund,
heldur fylgja okkur bæði meðvitað og
ómeðvitað og næra sálina. Bamssálin er
opin og hrifnæm og því leitar hugurinn oft
aftur til bemskujólanna, þá var kveikt það
jólaljós sem æ síðan hefur fylgt okkur og
mun einnig loga þegar húmar að ævi-
kvöldi. - Loga og lýsa, eins og sr. Matthías
orti svo fallega um í sálminum Lýs milda
ljós.
Sá sálmur er reyndar mest sunginn við
útfarir, en mér hefúr alltaf fundist stef í
honum minna á jólin. Þar er tjallað um
ljósið sem lýsir upp allt myrkur og í síðasta
versinu segir trúarskáldið:
„Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér,
þú logar enn,
í gegnum bámr, brim og voðasker.
Nú birtir senn.
Og ég finn aftur andans fögm dyr
og engla þá, sem bam ég þekkti fyr.”
Á jólum er okkur boðið að ljúka upp
þeim dymm og gefa Jesú Kristi og kær-
leika hans rúm í hjörtum okkar. Og við
fáum á ný að hlýða á boðskap englanna
um fæðingu frelsarans og heymm dýrðar-
sönginn fagra sem ómaði forðum um Bet-
lehemsvelli.
Þannig er okkar vitjað á helgri hátíð.
Ljósið logar enn, ljósið sem ávallt lýsa
vildir mér. Og megi bjarmi þess lýsa upp í
lífi okkar allra, hvemig svo sem jólin mæta
okkur í þetta sinn, hvemig sem ástatt er í
lífí okkar og í lífi allra þeirra, sem finna
líkn og blessun helgra jóla. - Þeirra sem
finna aftur andans fögm dyr.
Jólin minna á að Guð er nálægur, „hvert
fátækt hreysi höll nú er, því Guð er sjálfur
gestur hér.” Það er enginn undan skilinn.
Fögnuðurinn skal veitast öllum lýðnum.
Guð kemur til mannsins hvemig sem ástatt
er og orð hans græðir sárin og vekur gleði
og þökk í hugum okkar.
Látum helgi jólanna einmitt leiða þetta
af sér. Að gera heilt það sem brákast hefúr.
Laga það sem aflaga hefúr farið. í sam-
skiptum ástvina og fjölskyldu. Meðal vina
og nágranna. Það er tími sátta og fyrir-
gefningar.
Tími til að brjóta ísinn. Tími til að
drjúpa höfði. Tími til að líta í eigin bann.
Þannig græðir Kristur sárin.
Stundum þarf að sýna bamslega ein-
lægni til þess að kærleikurinn fái að kom-
ast að í hjörtum okkar. Þess vegna kom
Jesús Kristur til okkar sem lítið bam.
Og hann kemur enn á ný til okkar. Hann
er. Þú ert aldrei einn eða ein á ferð. Mundu
það. Það segja jólin okkur.
Gleðilegajólahátíð.
í Jesú nafiii. Amen.
Gísli Gunnarsson.
Sendum viðskiptavinum okkar
bestu kveðjur um
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu
Sendum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum bestu óskir um
Gleðileg jól
gott ogfarsœlt nýár
Þökkum góðar viðtökur á árinu sem er að líða