Feykir - 30.08.2007, Qupperneq 1
Láttu ekki vandræðin
verfla til vandræða
íbúðalánasjóður
www.ils.is
Börn að leik við Árskóla við Freyjugötu en þar myndast oft á tíðum ófremdarástand þegar foreldrar á annað hundrað barna
mæta með þau klukkan átta á morgnana.
Foreldrar vilja lækka umferðarhraða
Vilji er allt sem þarf
Borið hefur a óánægjuroddum a meðal foreldra a
Sauðárkróki sökum þess að innan bæjarmarkanna má í
öllum götum keyra á 50 km. hraða. Sérstaklega er ástandið
oft slæmt í kringum Árskóla við Freyjugötu.
- Við höfum verið að
berjast íyrir þvi í mörg ár að fá
umferðarhraðann innanbæjar
lækkaðan og þá sérstaklega í
íbúagötum bæjarins. Þá er líka
brýnt að koma upp betri aðstöðu
við skólann í Freyjugötu þar
sem mikið öngþveiti myndast á
morgnanaþegar foreldrar eru að
skila börnum sínum af sér, segir
Þorsteinn Broddason foreldri.
-Það er óhæft að foreldrar
og böm í Sveitarfélaginu
Skagafirði þurfi að bíða eftir því
í fleiri fleiri ár að sveitarfélagið
samþykki aðalskipulag og lækki
í framhaldinu umferðarhraða í
íbúagötum. ForeldraráðÁrskóla
sendi sveitarstjórn erindi fyrir
þremur árum þess efhis og fékk
þá þau svör að bíða þyrfti eftir
aðalskipulagi sem enn hefur ekki
litið dagsins ljós, bætir Þorsteinn
við. Samkvæmt upplýsingum
sem Feykir hefúr aflað sér nægir
að sveitarstjórn sendi erindi á
sýslumann þess efnis að lækka
eigi umferðarhraða í vissum
hverfum. Sýslumaður sendi
það síðan áffam til birtingar
í lögbirtingarblaðinu og í
ffamhaldinu sé hægt að lækka
umferðarhraða. Samkvæmt
upplýsingum ffá formanni
Skipulags- og bygginganefndar,
Einari Einarssyni, er það rétt
að sveitarfélagið getur breytt
umferðahraða í ákveðnum
götum, með því að gera um
það tillögu og samþykkja hana
f sveitarstjórn og senda hana
svo til sýslumanns. Það þarf
ekki að bíða eftir samþykktu
aðalskipulagi til að ganga ffá
þessu máli sagði Einar og
benti jafnffamt á að verið sé að
yfirfara þessi mál í heild sinni
af meirihluta Sveitarstjórnar
Skagafjarðar þessa dagana, en
vilji er til þess að hámarkshraði
í þéttbýli verði endurskoðaður
og lækkaður niður í 30 km
hraða þar sem það á við. Það
er hægt að taka heilshugar
undir áhyggjur foreldra barna
á Sauðárkróki hvað varðar
umferðarþunga í kringum
Árskóla við Freyjugötu. Hvers
vegna ekki var gengið ffá þessu
fyrir 3 árum þegar erindin
bárust verða þeir að svara fyrir
sem þá báru ábyrgðina sagði
Einar að lokum.
91,6 % vilja búa í námunda við lágvöruverslun
Lágvöruverslun lausnin?
í máli Dr. Grétars Þórs Eyþórssonar á ársþingi SSNV
sl. föstudag kom fram aó 91,6% landsmanna telur þaó
eitt af skilyrðum fyrir búsetu sinni að búa í námunda við
lágvöruverslun.
Dr. Grétar var á þingi
SSNV með fyrirlestur um
búsetuskilyrði og byggða-
aðgerðir. í fyrirlestri sínum
kom Grétar fram með könnun
sem gerði hafði verið og taldi
þar upp þau atriði sem yfir
90 % höfðu sett sem skilyrði.
Auk lágvöi'uverslunar voru
sett fram skilyrði um fjölbreytt
atvinnutækifæri, nálægð við
náttúruna, gott fjarskiptakerfi
og að búa þar sem glæpir eru
fátíðir.
Göngur og réttir á heimsvísu
Dagatal sló í gegn
Dagatali sem inniheldur kynningu á stóðréttum og hesta-
tengdri ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra árið 2008,
var dreift í tjaldi Útflutningsráðs á heimsmeistaramóti
íslenska hestsins sem haldið var í Hollandi á dögunum.
Starfsmaður á vegum mikla lukku og ekki orðum
SSNV stóð vaktina alla aukið að segja að það hafi
dagana og er skemmst frá því slegið í gegn.
að segja að dagatalið vakti
Byggðarráð Húnaþings vestra
Vilja sækja læknisþjón-
ustu á Vesturland
Byggðarráð Húnaþings vestra mótmælti harðlega á
fundi sínum þann 23. ágúst sl. hugmyndum sem fram
koma í drögum að reglugerð um heilbrigðisumdæmi
um að Hvammstangalæknishéraði verði skipt á milli
tveggja heilbrigðisumdæma og Húnaþing vestra fylgi
heilbrigðisumdæmi Norðurlands vestra.
í bókun byggðarráðs umdæmissjúkrahús
kemur fram að i Húnaþingi
vestra sé mikil og löng hefð
fyrir því að læknisþjónusta
sé sótt til Akraness hins vegar
sé lítil hefð fyrir samstarfi
við heilbrigðisstofnanir á
Blönduósi og Sauðárkróki.
Þá lýsir byggðarráð
áhyggjum sínum af því að
innan heilbrigðisumdæmis
Norðurlands vestra sé ekkert
sem
veitir víðtæka deildaskipta
sjúkrahúsþjónustu.
Krefst byggðarráð
Húnaþings vestra þess að
Hvammstangalæknishéraði
verði ekki skipt milli tveggja
heilbrigðisumdæma og að
Húnaþing vestra tilheyri heil-
brigðisumdæmi Vesturlands
en ekki heilbrigðisumdæmi
Norðurlands vestra.
—ICléwfliff chj3—
[Delllnspiron 1501 ]
SérstakttilbodsverðTenqils > kr. 69.900
Verslaóu við fagmenn!
TcnqiUehf Tölvudcild Borqarflöt 25 Saudárkróki Sími 455 7900
VIÐ BONUM OG RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
RÍÆ7STIISOS
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar
ogsprautun