Feykir


Feykir - 30.08.2007, Blaðsíða 9

Feykir - 30.08.2007, Blaðsíða 9
31/2007 Feykir 9 Húnvetningar gengu strandir og töldu seli um liðna helgi Selatalningin mikla 2007 Þann 25. ágúst síðast liðinn stóð Selasetur íslands á Hvammstanga fyrir Selatalningunni miklu 2007. Talningarsvæðið var ríflega 70 km strandlengja og talningarmennirnir voru á öllum aldri eða frá 4 ára upp í áttræðisaldurinn. Gengið var frá ósum Miðfjarðarár að vestan inn í mitt Sigríðarstaðavatn að 103...104... 105. Jóhannes Jóhannesson telur vi'ö Sigríðarstaðaós. Mynd: PJ Bændurnir Jónina Jónsdóttir og Haiidór Pátsson á Súluvöllum á leið heim úr talningu. Mynd: PJ Daniel Karlsson við talningu i Hindisvik. Mynd: Guðmundur Jóhannesson austan og var markmið talningarinnar að fá hugmynd um heildarstofnstærð og dreifingu landsels við Vatns- nesið. Auglýst hafið verið eftir sjálfboðaliðum og mættu þeir um 30 talsins galvaskir til leiks á laugardagsmorgun en var svæðinu skipt upp í 25 svæði. Þá fór einn taln- ingarmaður á vélbáti inn að Miðfjarðarósiogaðstandendur selaskoðunarbátsins Straums sáu svo um talningu af sjó við austurströnd Heggsstaðaness. Veðurguðirnir voru að mestu til friðs en þó var svolítil norðanátt og því ekki um neitt annað að ræða en klæða hana af sér. Á þessu svæði eru mikil sellátur en flest voru dýrin við Sigríðarstaðaós eða 194 talsins. í Hindisvík voru 139 dýr, en ríflega 60 við bæina Svalbarð, lllugastaði og Krossanes. Annars staðar voru selirnir í heldur smærri hópum. Að talningu lokinni var sjálfboðaliðum boðið upp á kakó og kleinur í Selasetrinu þar sem þeir fengu afhent viðurkenningarskjal. Aðstandendur Selaseturs fslands vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra frábæru sjálfboðaliða sem tóku þátt í Selatalningunni miklu, án þeirra hefði þetta aldrei tekist! RABB-A-BABB Gréta Sjöfn Nafn: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir. Árgangur: 1961. Fjölskylduhagir: Þeir eru eins og best verður á kosið, maðurinn minn I er Pétur í Víðidal, bömin eru fjögur; | Þorsteinn Frímann, Anna Lilja, Helga Sjöfn og Aron. Tengdadóttir Rósa Marý og 2ja ára sonardóttir Bríet Stefanía. Starf/nám: Starfa sem verkefnis- stjóri málefna fatlaðra á Norðurlandi vestra ásamt því að vera forseti | sveitarstjómar Sveitarfélagsins \ Skagafjarðar. Bifreið: í vinnunni keyri ég Skoda Octavíu sem er alveg frábær. Heim- í ilisbíllinn er Izuzu Trooperjeppi, hann er líka góður. Hestöfl: Það er feikinóg af hestum á bænum. Hvað er i deiglunni: Það er allt í deiglunni eftir sumarið, koma bömunum af stað í skólann, göngur og réttir, vinna og sveitar- stjómarmál. Hvernig hefur þú það: Nokkuð gott, þakka þérfyrir. Hvernig nemandi varstu: Þokkaleg, var strax nokkuð krefjandi nemandi, gat verið hreinskiptin og fór mínar eigin leiðir, tók síðasta árið í grunn- skóla nokkuð létt, ögraði kennumm og skólastjóra. Hvað er eftirminnilegast frá ferm- ingardeginum: Það ertvennt, annað | þegar fermingarbróðir minn tók út ? úr sér oblátuna og setti hana inn í sálmabókina upp við gráturnar, við Ihin flissuðum og flissuðum, einnig það að mamma hætti ekki fyrr en ég samþykkti með semingi að setja blóm í hárið fyrir myndatöku, ekki alveg eins og ég vildi hafa þetta. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stör: Það var minn draumur að verða strákur, það var svo margt skemmtilegt sem strákar máttu gera en stelpur ekki þegar ég var að alast upp. Hvað hræðist þú mest: Stríð og ofbeldi. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir: Pippi Langström, lítil j tveggja laga plata. Hvað lag ertu liklegust til að syngja í Kareoki: Traustur vinur í með hljómsveitinni Upplyftingu, það rer alveg pottþétt að þá syngja allir með. Hverju missir þú ekki af f sjön- varpinu fyrir utan fréttir: Skoskum sakamálaþáttum, James Bond og rómantískum gamanmyndum. Besta bíömyndin: Lion King, hún er svo falleg, klassa mynd. BruceWillis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow: Pottþétt Bruce Willis, hann er flottastur Uppáhaldsbökin: Þessi er erfið, margar góðar bækur sem ég hef lesið um tíðina, ætli það sé ekki best að nefna bókaflokkinn Þrautgóðir á raunarstund, allavegana er titillinn fínn. Hvað fer helst f innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðan: Lesefni ogskór. Hvað er í morgunmatinn: Ég byrja á svörtu te og lýsi, fæ mér síðan KS súrmjólk með múslí, eftir það er ég til í allt. Uppáhaldsmálsháttur: Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu: Brauð og tertur af ýmsu tagi, einhver myndi nú segja að það væri snilldarverk að ég sjáist í eldhúsinu. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færir þá færirðu: Til Kúbu, ég hef lengi ætlað að fara þangað, hefði áhuga á að fara meðan Kastró er á lífi. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu: Stjórnsemi og það að ég á það til að gráta yfir bíómyndum. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra: Hroki, hégómi og ábyrgðarieysi. Heim í Búðardal eða Disko Frisko: Heim í Búðardal, það var lagið sem við vinkonumar hlustuðum á í þá gömlu góðu. Hver var mikilvægasta perséna 20 aldarinnar að þínu mati: Stefanfa amma, hún hafði mikil mótandi áhrif á mig, kenndi mér æðmleysi, virðingu og væntumþykju, sem ég hef reynt að temja mér og lifa eftir. Ef þú ætti eftir að dvelja alein á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækiriðu með þér ? Er ekki skynsamlegt að taka með sér bát til að komast heim aftur, fjölskyldumynd til að horfa á í einsemdinni og mattil dvalarinnar. Hvað er best í heimi: Þessi er einföld, samvera með fjölskyldu og vinum, Skagafjörður og íslenskt vatn.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.