Feykir - 30.08.2007, Side 9
31/2007 Feykir 9
Húnvetningar gengu strandir og
töldu seli um liðna helgi
Selatalningin
mikla 2007
Þann 25. ágúst síðast
liðinn stóð Selasetur
íslands á Hvammstanga
fyrir Selatalningunni miklu
2007. Talningarsvæðið var
ríflega 70 km strandlengja
og talningarmennirnir voru
á öllum aldri eða frá 4 ára
upp í áttræðisaldurinn.
Gengið var frá ósum
Miðfjarðarár að vestan inn
í mitt Sigríðarstaðavatn að
103...104... 105. Jóhannes Jóhannesson
telur vi'ö Sigríðarstaðaós. Mynd: PJ
Bændurnir Jónina Jónsdóttir og Haiidór
Pátsson á Súluvöllum á leið heim úr
talningu. Mynd: PJ
Daniel Karlsson við talningu i Hindisvik. Mynd: Guðmundur Jóhannesson
austan og var markmið
talningarinnar að fá hugmynd
um heildarstofnstærð og
dreifingu landsels við Vatns-
nesið. Auglýst hafið verið
eftir sjálfboðaliðum og mættu
þeir um 30 talsins galvaskir
til leiks á laugardagsmorgun
en var svæðinu skipt upp í
25 svæði. Þá fór einn taln-
ingarmaður á vélbáti inn að
Miðfjarðarósiogaðstandendur
selaskoðunarbátsins Straums
sáu svo um talningu af sjó við
austurströnd Heggsstaðaness.
Veðurguðirnir voru að
mestu til friðs en þó var svolítil
norðanátt og því ekki um neitt
annað að ræða en klæða hana
af sér. Á þessu svæði eru mikil
sellátur en flest voru dýrin við
Sigríðarstaðaós eða 194 talsins.
í Hindisvík voru 139 dýr, en
ríflega 60 við bæina Svalbarð,
lllugastaði og Krossanes.
Annars staðar voru selirnir í
heldur smærri hópum.
Að talningu lokinni var
sjálfboðaliðum boðið upp á
kakó og kleinur í Selasetrinu
þar sem þeir fengu afhent
viðurkenningarskjal.
Aðstandendur Selaseturs
fslands vilja koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra frábæru
sjálfboðaliða sem tóku þátt
í Selatalningunni miklu, án
þeirra hefði þetta aldrei tekist!
RABB-A-BABB
Gréta Sjöfn
Nafn: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir.
Árgangur: 1961.
Fjölskylduhagir: Þeir eru eins og
best verður á kosið, maðurinn minn
I er Pétur í Víðidal, bömin eru fjögur;
| Þorsteinn Frímann, Anna Lilja, Helga
Sjöfn og Aron. Tengdadóttir Rósa
Marý og 2ja ára sonardóttir Bríet
Stefanía.
Starf/nám: Starfa sem verkefnis-
stjóri málefna fatlaðra á Norðurlandi
vestra ásamt því að vera forseti
| sveitarstjómar Sveitarfélagsins
\ Skagafjarðar.
Bifreið: í vinnunni keyri ég Skoda
Octavíu sem er alveg frábær. Heim-
í ilisbíllinn er Izuzu Trooperjeppi, hann
er líka góður.
Hestöfl: Það er feikinóg af hestum
á bænum.
Hvað er i deiglunni: Það er allt
í deiglunni eftir sumarið, koma
bömunum af stað í skólann,
göngur og réttir, vinna og sveitar-
stjómarmál.
Hvernig hefur þú það: Nokkuð gott,
þakka þérfyrir.
Hvernig nemandi varstu: Þokkaleg,
var strax nokkuð krefjandi nemandi,
gat verið hreinskiptin og fór mínar
eigin leiðir, tók síðasta árið í grunn-
skóla nokkuð létt, ögraði kennumm
og skólastjóra.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum: Það ertvennt, annað
| þegar fermingarbróðir minn tók út
? úr sér oblátuna og setti hana inn í
sálmabókina upp við gráturnar, við
Ihin flissuðum og flissuðum, einnig
það að mamma hætti ekki fyrr en
ég samþykkti með semingi að setja
blóm í hárið fyrir myndatöku, ekki
alveg eins og ég vildi hafa þetta.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stör: Það var minn draumur
að verða strákur, það var svo margt
skemmtilegt sem strákar máttu gera
en stelpur ekki þegar ég var að alast
upp.
Hvað hræðist þú mest: Stríð og
ofbeldi.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir: Pippi Langström, lítil
j tveggja laga plata.
Hvað lag ertu liklegust til að
syngja í Kareoki: Traustur vinur
í með hljómsveitinni Upplyftingu, það
rer alveg pottþétt að þá syngja allir
með.
Hverju missir þú ekki af f sjön-
varpinu fyrir utan fréttir: Skoskum
sakamálaþáttum, James Bond og
rómantískum gamanmyndum.
Besta bíömyndin: Lion King, hún er
svo falleg, klassa mynd.
BruceWillis eða George Clooney
/ Angelina Jolie eða Gwyneth
Paltrow: Pottþétt Bruce Willis, hann
er flottastur
Uppáhaldsbökin: Þessi er erfið,
margar góðar bækur sem ég hef
lesið um tíðina, ætli það sé ekki best
að nefna bókaflokkinn Þrautgóðir á
raunarstund, allavegana er titillinn
fínn.
Hvað fer helst f innkaupakörfuna
sem ekki er skrifað á tossamiðan:
Lesefni ogskór.
Hvað er í morgunmatinn: Ég byrja
á svörtu te og lýsi, fæ mér síðan KS
súrmjólk með múslí, eftir það er ég
til í allt.
Uppáhaldsmálsháttur: Eitt bros
getur dimmu í dagsljós breytt.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu: Brauð og tertur af ýmsu
tagi, einhver myndi nú segja að
það væri snilldarverk að ég sjáist í
eldhúsinu.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færir þá færirðu:
Til Kúbu, ég hef lengi ætlað að fara
þangað, hefði áhuga á að fara
meðan Kastró er á lífi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu: Stjórnsemi og það að ég á
það til að gráta yfir bíómyndum.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra: Hroki, hégómi og
ábyrgðarieysi.
Heim í Búðardal eða Disko Frisko:
Heim í Búðardal, það var lagið sem
við vinkonumar hlustuðum á í þá
gömlu góðu.
Hver var mikilvægasta perséna 20
aldarinnar að þínu mati: Stefanfa
amma, hún hafði mikil mótandi
áhrif á mig, kenndi mér æðmleysi,
virðingu og væntumþykju, sem ég
hef reynt að temja mér og lifa eftir.
Ef þú ætti eftir að dvelja alein á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækiriðu
með þér ? Er ekki skynsamlegt að
taka með sér bát til að komast heim
aftur, fjölskyldumynd til að horfa á í
einsemdinni og mattil dvalarinnar.
Hvað er best í heimi: Þessi er
einföld, samvera með fjölskyldu
og vinum, Skagafjörður og íslenskt
vatn.