Feykir - 30.08.2007, Síða 4
4 Feykir 32/2007
Hjalti Pálsson skrifar
Skatastaða-
kláfurinn
Vió Skatastaði í
Austurdal er ennþá
mannbær kláfur á
Jökulsá eystri, e.t.v.
sá eini á landinu
sem haldið er vel
við til notkunar fyrir
almenning. Hann er í
svokölluðum Kláfshvammi
suður og niður frá bænum
og er allhá brekka af túninu
niður í hvamminn.
Þar var smíðaður fyrsti
kláfur í Skagafirði, ætlaður til
mannflutninga, um eða laust
eftir 1850. Örugglega var hann
kominn 1856. Fyrir því stóð
Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Ábæ og kostaði
sjálfur að mestu eða öllu leyti.
Litlu síðar útbjó hann annan
á Ábæjará. Sá galli þótti á
kláfdrætti Guðmundar að í
stórflóðum náði áin til hans á
miðjum streng sökum slaka.
Þótti þá lífshætta að fara yfir
er straumurinn svalkaði upp í
kláfkassann en varð þó aldrei
að slysi. Það er í frásögur
fært að haustið 1858 keyptu
Hreppa- og Skeiðamenn
þúsundkinduríaustanverðum
Skagafirði eftir niðurskurð
vegna fjárkláða og ráku suður
fjöll. Jökulsá reyndist þá ófær
en Guðmundur tók að sér að
ferja allan reksturinn yfir á
kláfnum og tók enga borgun
fyrir. Óvíst er hvenær kláfur
Guðmundar varð ónothæfur
en í notkun mun hann hafa
verið um hans daga (d. 1873)
og líklega eitthvað lengur.
" Árið 1889 eða 1890
var kláfurinn aftur settur
upp en þann kláf tók af í
stórflóði veturinn 1902-1903.
Jakahlaup náði ldáfnum
og eyðilagði kassann og
kaðlana gjörsamlega. Nýr
kláfur var settur upp haustið
1903 og síðan hefur lengst af
20. aldar verið fær kláfur á
Skatastöðum.
En þótt kláfkassinn
sé tæpa 3 metra ofan við
venjulegt vatnsborð árinnar
hefur honum aldrei verið
óhætt þegar áin r\'ður sig í
jakahlaupi. Hann skemmdist
mikið veturinn 2001-2002
þegar klakastífla braut
timburbúkkana af stöplunum
báðum megin ár. Kláfkassi og
Áhugasamir allir nú, yfir svo komist bráðum þú.
Hópurinn sem að verkið vann, vantar hér bara Ijósmyndarann.
Talið frá vinstri: Valur Ingólfsson, Trostan Gunnarsson, Þorsteinn Kárason,
Agnar Gunanrsson, Arnór Gunnarsson, Gisli Frostason, Ingimar tngimarsson,
Sigurður Frostason og Ágúst Guðmundsson.
vinda sluppu lítið skennnd
að því sinni, hangandi í
slitnum vírnum og var
bjargað í land um vorið. Farið
var í endurgerð hans vorið
2003. Timburbúkkar voru
endursnn'ðaðir sömu gerðar
niðri í sveit og 14. júní 2003
fóru átta menn á staðinn og
gengu frá vírum og kassa og
settu kláfinn í stand.
En þessi snn'ði reyndist ekki
til frambúðar. 19. desember
2006 ruddi áin sig í stórflóði,
einhverju því mesta sem
mælt hefur verið í ánni. Þá
mun kassinn hafa verið úti
á miðjum strengjum svo að
jakaburðurinn náði honum og
eyddi gjörsamlega. Vindutré
skemmdust Skatastaðamegin
og vírarnir vöfðust upp en
slitnuðu ekki.
Á vegunt Ferðafélags
Skagfirðinga, Gangnamanna-
félags Austurdals og Akra-
hrepps var enn gert við
kláfinn. Vírarnir höfðu undist
sainan 25 vafninga og vindutré
sprungið vestan megin.
Gísli Frostason í Varmahlíð
leysti þessi vandamál,
smíðaði nýjan kláfkassa og
fimmtudagskvöldið 21. júní
s.l. fór hópur manna og setti
kláfinn á vírana og gengu frá
öllu tr)'ggilega. Er hann nú
aftur í góðu lagi og ber kassinn
auðveldlega fjóra menn. Hefur
ferðafólk töluvert notað þetta
samgöngutæki en það skal
brýnt fýrir öllum að gæta
fýllstu varúðar og allir sem
fara á kláfnum gera það á eigin
ábyrgð.
Hjcilti Pálsson
Er eitthvað að frétta?
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Þú hefur alltaf góða ástæðu til
að heimsækja Norðurland vestra!
Á..
DOFINNI
1. september : Sauðárkrókur
- SKÝRRmótið Opið mót á Hlíðarendavelli,
Golfklúbbur Sauðárkróks
1. september : Sauðárkrókur
- Knattspyrna Úrslitakeppni 3. deildar
Tindastóll - Leiknir Fáskrúðsfirði kl. 19:00
1. september : Blönduós
- Bragaþing á Blonduósi - landsmót hagyrðinga
Félagsheimilinu á Blönduósi
1. september : Blönduós
- Knattspyrna Úrslitakeppni 3. deildar
Hvöt-BÍBol/Grótta kl. 14:00
5. september : Sauðárkrókur
- Kaffi Króks-mótaröðin í golfi, Sauðárkróki.
SAMTÖK SVEITARFELAGA A NORÐURLANDl VESTRA
ATVINNUÞROUN
Landsmót hagyrðinga
Bragaþing á
Blönduósi!
Árlegt Landsmót
hagyrðinga
verður haldið í
Félagsheimilinu á
Blönduósi að kvöldi
laugardagsins 1.
september næstkomandi
undir yfirskriftinni:
Bragaþing á Blönduósi.
Landsmót hagyrðinga
eru kvöldsamkomur með
borðhaldi og þjóðlegum
skemmtiatriðum, sem að
hluta eru skipulögð og
undirbúin, auk þess sem
mótsgestir hafa fram að færa
í bundnu máli. Að loknu
borðhaldi er svo stiginn
dans. Landsmótin eru opin
öllu fólki sem ánægju hefur
af góðum vísum, h\’ort sem
það telur sig til hagyrðinga
eða ekki!
Dagskrá landsmótins á
Blönduósi 1. sept:
Borðhald hefst kl. 20.
Húsið opnað kl. 19.
Veisluréttir á hlaðborði:
Forréttir; Toscanakryddað
lambalæri; Kaffi og konfekt
• Heiðursgestur og
rœðumaður: Hjálmar
Jónsson
• Veislustjóri: Ósk
Þorkelsdóttir
• Söngstjóri: Ingi Heiðmar
Jónsson
• Skemmtiatriði að hœtti
hagyrðinga og kvœðamanna
• Dans við harmonikkuleik
eftir borðhald
Verð: 3800 kr.
Tilkynna þarf þátttöku í
síðasta lagi 28. ágúst:
Einar Kolbeinsson
ek@emax.is s. 892 7172
stefan.vilhjalmsson@lbs.is
hs. 462 2468, gsm 898 4475
Að sjálfsögðu er frjálst
að yrkja um hvaðeina á
landsmótunum en venja
er að tilgreina 2-3 sérstök
yrkisefni fyrirfram. I ár eru
þau þessi:
- Grettir: unglingavandamál?
- I.öggæsla í Húnaþingi
-Hvernig á hann/hún
að vera (draumadísin/
draumamaðurinn)?
Hvet ég sérhvcrn hagyrðing
að heiðri sínum gœta
og Blönduóss á Bragaþing
með blöndukút að mæta.
StV.
Þessi Bragaþing hófust á
Skagaströnd 1989 með tíu
manna teiti á Hótel Dagsbrún
og það síðasta var á Hólmavík
2006. Þau eru haldin til skiptis
í landsljórðungunum og í
Landnámi Ingólfs. í Lands-
nefnd hagyrðingamóta eru
Stefán Vilhjálmsson, Akur-
e)TÍ, Þorsteinn Bergsson
Unaósi, Ragnar Böðvarsson
Selfossi, Sigrún Haraldsdóttir
Reykjavík (Landnámi Ingólfs)
og Jón Jónsson Kirkjubóli í
Steingrímsfirði.
Árlegu hagyrðingamótin
hafa verið haldin á eftir-
töldum stöðum:
1989 Skagaströnd, 1990
Hveravöllum, 1991 Laugum
í Dalasýslu, 1992 Skúlagarði,
1993 Hallormsstað, 1994
Flúðum, 1995 Bændahöllinni,
1996 Núpi í Dýrafirði, 1997
Varmahlíð í Skagafirði, 1998
Seyðisfirði, 1999 Laugalandi í
Holtum, 2000 Akogeshúsinu
í Rvk. 2001 Hvanneyri, 2002
Akureyri, 2003 Djúpavogi,
2004 Hvolsvelli, 2005 Bænda-
höllinni, 2006 Hólmavík og 1.
sept. 2007 á Blönduósi.
Með bestu kveðju og
von um góða mætingu á
Blönduósi þann fvrsta dag
septembermánaðar.
Fyrir hönd
Landsnefndarinnar;
Einar Kolbeinsson