Feykir - 30.08.2007, Qupperneq 5
31/2007 Feyklr 5
Meistaramót íslands 15 - 22 ára í frjálsum íþróttum
---------------------------^
Linda Björk Islandsmeistari
Skagfirskir keppendur stóðu
sig frábærlega á
Meistaramóti íslands í
frjálsum íþróttum, 15-22
ára, sem fram fór á Laugum
nú um helgina.
Linda Björk Valbjörnsdóttir
varð íslandsmeistari í 80m
grindahlaupi (15-16), hljóp á
12,54sek. Hún varð í 2. sæti í
100mhlaupi(15-16)á 13.39sek,
en mikill mótvindur var í
báðum þessum hlaupunt.
Vignir Gunnarsson varð í 2.
sæti í sleggjukasti (15-16),
kastaði 34,13m, og komst í úrslit
í lOOnr grindahlaupi (15-16),
þar sent hann hafnaði í 5. sæti á
16,99sek.
Á seinni degi mótsins (15-
22) vann Linda Björk Val-
björnsdóttir sinn annan
Islandsmeistaratitil á mótinu,
þegar hún sigraði í 300m
grindahlaupi (15-16), hljóp á
45,64sek, þá varð hún í 2. sæti í
200m hlaupi (15-16) á
26,41sek. Árni Rúnar Hrólfs-
son varð í 2. sæti í 800m hlaupi
(15-16), hljóp á 2:15,69mín.
Skagfirðingarnir unnu því
samtals 2 gull (Linda) og 4 silfur
(I .inda 2, Vignir og Árni Rúnar).
Til hamingju nteð glæsilegan
árangur enn og aftur krakkar.
Úrslitakeppni 3. deildar í knattspyrnu
Hvöt upp í 2. deild
Hvöt frá Blönduósi tryggói
sér sæti í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu á
þriðjudaginn var, með
heimasigri á liði Hugins frá
Seyðisfirói, en Tindastóll þarf
að heyja einvígi við Leikni frá
Fáskrúðsfirði um
áframhaldandi keppni um
sæti í deildinni, eftir að hafa
fallið úr leik gegn Viði Garði.
Staða Hvatarmanna var
nokkuð vænleg eftir 1 -1 jafhtefli
í útileik liðanna á Seyðisfirði á
laugardaginn. Ásgeir Örn
Jóhannsson kont Hvöt )4ir á 55.
mínútu og Zoran Djordjevic
skoðaði annað mark þeirra úr
vítaspymu á 84. mínútu. Aðeins
tveimur mínútum síðar
minnkuðu gestirnir muninn og
hlejptu spennu í leikinn undir
lokin en Hvatarmenn stóðu af
sér sóknarlotur þeirra og
tryggðu sér sæti í 2. deild í fyrsta
skiptið í 20 ár.
Á rneðan léku grannar þeirra
úr Tindastóli úti gegn Víði úr
Garði. Ljóst var fyrir leikinn að
við ramman reip yrði að draga
eftir 4-2 tap gegn Víðismönn-
um á heimavelli á laugardaginn.
Tindastóll komst þó y'fir í fyrri
hálfleik nteð skallantarki frá
Stefáni Arnari Ómarssyni og
þannig var staðan í háltleik. í
seinni hálfleik skoruðu
Víðismenn tvö mörk og gerðu
út um leikinn og þar með vonir
Tindastóls um sæti í 2. deild að
engu í bili a.m.k.
Ekki er þó öll nótt úti enn
því þau fjögur lið sem töpuðu
viðureignum sínurn í fyrstu
untferð úrslitakeppninnar,
heyja nú aðra keppni um
fimmta lausasætið í 2. deildinni.
l>ar mun Tindastóll spila við
Leikni ffá Fáskrúðsfirði í
undanúrslitum og verður fyrri
leikurinn á heimavelli á
laugardaginn, en seinni
leikurinn á Fáskrúðsfirði á
þriðjudaginn. Sigurvegarar
þeirrar viðureignar spila til
úrslita um lausa sætið í 2.
deild.
Hvatarmenn eru heldur
ekki hættir, því þeir taka þátt í
keppni unt sigur í 3. deild og
leika þar gegn Gróttu frá
Seltjarnarnesi. Fyrri leikurinn í
þeirri rimmu fer fram á
Gróttuvelli á laugardaginn
kemur.
Simmi og Pátmi fagna marki Pálma á laugardaginn - allt kom þó fyrir ekki! Mynd: ÓAB
MITT LIÐ )
Æ
Pálmi er bláklæddur
Chelsea maóur
Pálmi Þdr Valgeirsson hefur
verið iðinn á kantinum hjá
liði Tindastóls í fótboltanum
í sumar og búinn að setja
slatta af glæsimörkum. Og
hvaða lið ætli það sé sem
á hug hans allan í enska
boltanum?
- Ég er bláklæddur Chelsea
maður. Pabbi minn var mikill
Ruud Gullit aðdáandi, og þá
sérstaklega eftir EM1988.
Þegar Gullit tók við Chelsea
þá fylgdi pabbi auðvitað sínum
manni og smitaði soninn. Var
reyndar alltaf ótrúlega mikill
Alan Shearer fan og því hélt
ég alltaf með liðunum hans,
Blackburn og Newcastle, alltaf
einhverjartaugar þangað líka!
Hefur þú einhvern tímann lent
í útistöðum vegna aðdáunar
þinnar á liðinu?
- Að sjálfsögðu, menn að tala
um peningaeyðslu Abramovich
o.s.fr. sem er að sjálfsögðu
orðin fullmikil en égersátturvið
Mourinho því hann heldur vel
utan um þennan hóp og lætur
stjörnurnar ekki eyðileggja
stemmninguna í liðinu, líkt og
gerðist hjá Real Madrid.
Hefur þú farið út á leik með
llðinu?
- Já, við fórum í nóvember
2005 á Brúnna (Stamford
Bridge). Ég ætlaði að sjá
markamaskínuna Shearer
spila á móti Chelsea, það hafði
verið talað um að þetta yrði
hans fyrsti leikur eftir meiðsli.
Allt kom fyrir ekki, Shearer enn
meiddur og Owen meiddist
daginn fyrir leik. En leikurinn
var frábær, 4-0 fyrir Chelsea.
Lentum líka í skemmtilegu
atviki þegar H. Crespo skoraði
mark fyrir Chelsea og ég tók
strax eftir því að línuvörðurinn
hafði flaggað rangstæðu. Aftur
á móti sáu tveirvel þéttir, ekta
breskir karlmenn það ekki
og hoppuðu upp og fögnuðu
saman. Það endaði með því
að þeir skullu saman og duttu
niður þrjár raðir og valt annar
maðurinn t.d. yfir pabba með
miklum látum. Einnig var
gaman að sjá fullorðna breska
kellingu rífa kjaft við ungan
mann frá Newcastle. Það þurfti
að skipta um vörð á milli þeirra,
frá ungum strák yfir í fullorðinn
125-150 kg rum til að stoppa
kellinguna.
Eru fjölskyldumeðlimir teknir
í strangt liðsuppeldi hjá þér
og munt þú innræta börnin
þín í framtíðinni?
Nei, það er ekki mikið um
þannig í minni fjölskyldu. Þó
hermdi maður eftir pabba og
stóra bróðir, sem sagt Chelsea
og Shearer. Ég efast um að ég
innræti börnin mín íframtíðinni,
þó maður laumi kannski einni
treyju á krílið.
°^fiALL C\