Feykir - 30.08.2007, Síða 8
8 Feykir 32/2007
vikum fyrir brúðkaupið og
var dagsetningin meira valin
af praktískum ástæðum en
rómantískum.
-Tvö barna minni voru að
fara til útlanda í nám innan
fárra daga og þar sem móðir
mín varð sjötug þann 3. ágúst
voru systur mínar sammæðra
staddar á landinu en þær búa
allar erlendis. Tímasetningin
hentaði því mjög vel. Við
höfðum samband við séra
Sigríði og báðum hana að
gefa okkur saman og það er
gaman frá því að segja að þessi
athöfn var sú fyrsta sem hún
framkvæmdi eftir að hún vissi
að hún fengi brauðið hér, segir
Guðmundur. Við höfðum
kynnst sr. Sigríði lítillega þegar
hún leysti af sem prestur hér á
Sauðárkróki í fyrra. í mínum
huga kom enginn annar
prestur tii greina eftir að hún
hafði heillað mig alveg upp úr
skónum með predikun sem
hún flutti í rnessu við upphaf
Sæluviku nú í vor. Þarvar hún
svo djörf að leggja út frá því
viðkvæma efni samkynhneigð
og gerði það af nærgætni og
að mínu viti af einstakri snilld,
segir Guðmundur og brosir.
Var í sveit i Brekku
Þið völduð að gifta ykkur í
Víðimýrarkirkju. Hvernig
kom það til? -Ég hafði komið
í kirkjuna sem krakki þegar
ég var í sveit hjá hjónunum
í Brekku þarna rétt hjá. Það
er eitthvað við kirkjuna sem
heillaði okkur bæði og þar
sem brúðkaupið var ekki stórt
í sniðum ákváðum við að
hafa athöfnina þar. Við sjáum
alls ekki eftir því og munum
minnast þessarar stundar í
þessari fallegu litlu kirkju.
Athöfnin var yndisleg, látlaus
og virðuleg í senn. Einungis
voru kertaljós logandi í
ljósakrónum nema hjá
söngvurum og organista, þau
fengu að hafa eitt rafljós til að
sjá á nóturnar. Andrúmsloftið
var því mjög hlýlegt og
gaf athöfninni notalegan
blæ. Stefán Ólafsson lék á
orgelið og þau sungu fyrir
okkur af einstakri snilld,
Álftagerðisbróðirinn Sigfús
Pétursson og hún Sigurlaug
Vordís. -Staðarhaldarar í
Víðimýri.þauSigríðurogOrri,
eiga líka þakkir okkar skildar,
bætir Kristín við og leggur
áherslu á orð sín, því auk
þess að hafa kirkju reiðubúna
opnuðu þau heimili sitt fyrir
okkur til undirbúnings fyrir
athöfnina og voru einstaklega
ljúf og hjálpleg í alla staði.
Eftir athöfnina héldu
brúðhjónin nýgiftu í Glaum-
bæ, hvert annað, þar sem
slegið var upp brúðkaupsveislu
að “handan vatna hætti”
-Athöfnin var síðari hluta
dagsins þannig að þegar
við komum að Glaumbæ
var komið fram yfir lokun
safnsins og áttum við staðinn
út af fyrir okkur. Sigríður
safnstjóri fór með okkur og
gestina í sýnisferð unr safnið
og síðan var haldið inn í
Áskaffi þar sem Herdís, systir
hennar, og samstarfsfólk tók
á móti okkur með kampavín
á glösum. í hönd fór yndisleg
veisla í hlýlegu andrúmslofti
Áskaffis. Við erum bæði mjög
hrifin af þessari hugmynd
þeirra systra að halda í þetta
gamla og bjóða ferðafólki
upp á þjóðlegan mat í þessu
fallega umhverfi. Það kom
því ekkert annað til greina
en halda veisluna þarna.
Gestirnir voru rúmlega 30
sem passaði alveg en setið var
í öllum herbergjum hússins.
Þetta var mjög notalegt stund
með lifandi tónlist og söng,
hreint frábærum mat og
vinalegu, persónulegu viðmóti
starfsfólks, segir Kristín að
lokum.
Nýgift og yfir sig ástfangin.
( TÖLVUPÓSTURINN )
Hjóninjón Gíslason og Eline Schrijver reka
feróaþjónustuna á Hofi í Vatnsdal.
Feykir sendi þeim tölvupóst og spurói frétta.
Bjóöa ferðamönnum
í göngur og réttir
>
>
Hvernig kom sumarið út hjá ferðaþjónustubændum?
- Sumarið hefur verið ágætt, við verðum vör við vaxandi ferðamannastraum, sífellt fleiri beygja
út af hringveginum og koma fram í Vatnsdal. Margir koma á slóð Vatnsdælasögu eða bara til að
skoða Vatnsdalinn og til dæmis fossana í Vatnsdalsá og Álku. Samt sem áður eru flestir okkar gestir
útlendingarsem hafa bókað gistingu fyrirfram.
Hvað er helst framundan?
-Framundan eru göngur og réttir, og við bjóðum gestum upp á að taka þátt í gangnaævintýrinu.
Þá getur fólk tekið alvöru þátt í smalamennsku og “fjárdrætti”, í stað þess að híma upp á vegg í
stóðréttum og horfa á aðra vinna.
Hvað kostar að taka þátt í göngum og réttum?
-Dagurinn kostar 12.000- á mann, innifalið er gisting, fullt fæði og þátttaka í smölun.
Kemur þetta fólk inn sem fullgildir gangnamenn eða sem aukafólk?
-Þau eru aukafólk, og hafa þar með engar skyldur. En þau fá að taka eins mikinn þátt og hægt er,
þeim er dreift með gangnamönnum, en ríða ekki stystu leið í einum hóp. Við tökum á móti fólki frá
og með fimmtudegi 6. september, réttirnar eru síðan á föstudag og laugardag. Gangnamenn leggja
hins vegar af stað í göngur nú á sunnudaginn, og eru allt upp í 6 daga í göngum.
Eru þetta bara íslendingar sem eru að koma eða eru erlendir ferðamenn líka að koma í göngur
og réttir?
-Við höfum yfirleitt verið með erlenda ferðamenn og fáum einhverja slíka í haust, en við viljum
endilega að fslendingar fari líka að uppgötva þessa upplifun. Einnig teljum við að bændur þurfi að
bjóða þéttbýlisbúum upp á möguleika til þess að upplifa starf bænda, á sem jákvæðastan máta.
Eruð þið sjálf með fjárbú?
-Við erum með rúmlega 500 fjár á fóðrum, og nokkra tugi af hrossum. Nánari upplýsingar um
búskapinn og starfsemina hjá okkur má finna á www.hof-is.com. Netfangið er hof@simnet.is
Hvernig með veturinn er ferðaþjónustan hjá ykkur starfsrækt yfir veturinn?
-Já, vió höfum opið allt árið, við opnuðum sumarið 2005. Hér er pláss fyrir 20 manns í rúmgóðum
herbergjum, stór matsalur, heitur pottur og í raun allttil alls. Enda er það heldur farið að aukast að
hér komi hópar og fyrirtæki í alls kyns ævintýraleit, eða til að eiga rólega helgi, utan hefðbundins
ferðamannatíma.
>
>