Feykir - 30.08.2007, Blaðsíða 10
lO Feylcir 32/2007
Neftobak
LICHTE
SHAC
' CancSugar
Tabluts
Sápur, tóbak, Spurkóla eða sokkarallt varþetta fáanlegtí verslun Sigurðar Davíðs-
sonar.
Það er vel þess virði að koma við á Hvammstanga
Flott safn og gallerí
á eyrinni
Á Hvammstanga má
finna verslunarminjasafn
og handverksgallerí
sem rekin eru í gömlu
pakkhúsi niöri við höfnina
undir nafninu Gallerí
Bardúsa.
Við þjóðveginn, nánar
tiltekið við afleggjarann niður
á Hvammstanga, standa hjón
úr grjóti og gera sitt til þess
að lokka þá sem um veginn
fara niður á Hvamnrstanga.
Itlaðamaður komst að því í
sunrar að það er vel þess virði
að láta freistast og kíkja við í
Gallerí Bardúsu að ógleymdu
versl u n a rm i n jasafn i n u.
Gamlar vörur
til sýnis
Safnið er í raun Verslun
Sigurðar Davíðssonar sem
lokuð var á áttunda áratug
síðustu aldar og var lagernum
komið fyrir í geymslum um
allan bæ. Ekki féllu menn
í þá freistni að neyta þeirra
vara sem þarna voru til sölu
heldur voru þær geymdar.
Á safninu má því finna
gamla sígarettupakka, sápu-
stykki, gosdrykki og fleira
matarkyns. Auk leikfanga,
búsáhalda og svona mætti
lengi telja áfram. Aðgangur
að safninu er án endurgjalds
og vel þess virði að koma þar
við.
Auk safnsins er þarna,
eins og áður sagði, að ftnna
handverksgallerí af bestu
gerð. Fjölbreyttu úrt'ali
muna úr smiðju húnvetnsks
handverksfólks hefur verið
hagalega komið fyrir og
verðið er á þá lund að ekki er
nokkur vandi að grípa nteð
sér fallegan minjagrip án þess
að finna til í veskinu.
I
Verslunarminjasafnið er i fallegu húsi við höfnina á Hvammstanga.
Gamla merki verslunarinnar er á sínum stað.
LElKSTií^l'
I ÞINU UFl
ÞJÓNUSTA VIÐ UNGT FÓLK
m
KAUPÞING
Hugsum lengra
BOLFISKVINNSLA : FLÖKUN : LAUSFRYSTING : PÖKKUN : ÞURRKUN
Framtíöaratvinna
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir
út 4 togara og rekur landvinnslur á Sauðárkróki,
Skagaströnd og Grundarfirði.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna á Sauðárkróki til
hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07,00 - 15,30
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staðnum.