Feykir - 30.08.2007, Síða 11
31/2007 Feykir 11
Á haustin er timi uppskerunnar.
Uppskeruhátíð
Gott úr rabarbara
og berjum
Haustió í haust hefur verið gott berjahaust og í flestum
görðum má finna rifsberjarunna eða rabarbara. Úr þessu fría
hráefni náttúrunnar má gera dýrindis rétti og safnaði Feykir
saman uppskriftum af nokkrum þeirra. Gaman væri að fá
sendar uppskriftir að haustmat frá lesendum.
ísréttur með
rabcirbaraívafi
Hráefni:
3 bollar rabarbari
1 bolli sykur
ís
rjómi, þeyttur
súkkulaðiflögur
Aðferð: Rabarbarinnerskorinn
í litla bita, settur í pott með
sykrinum og soðinn í nokkrar
mínútur, eða þangað til allt er
orðið að graut.
Kælt í nokkrar mínútur.
Grautnum er skipt í 2 eða 3
skálar, ísinn er settur ofan á og
rjómasletta etst.
Gott að strá súkkulaðiflög-
um á rjómann.
Rabarbarabaka eða
bláberjabaka
Hráeftii:
400 gr. rabarbari eða bláber
1/2 dl. hveiti
2egg
2 og 1/2 dl. sykur
150 gr. riftð marsipan
Aðferð: Hita ofninn í 200°,
rabarbarinn settur í bitum í
smurt eldfast mót, öllu hinu
blandað saman og sett yfir
rabarbarann.
Ofan á:
1 ogl/2 dl. hveiti
1 og 1/2 dl. púðursykur
50 gr. brœtt smjörlíki
blandað saman ogsett ofan á
bakað í 45 mínútur
Hin sígilda rabarbarasulta
1 kg rabarbari
800 gr. sykur
Aðferð: Setur rabarbarann
í pott og sykurinn ofan á og
lætur standa þar til sykurinn er
bráðnaður að mestu, nokkra
klukkutíma eða yfir nótt. Sýður
svo sultuna við vægan hita þar
til hún fer að dökkna og hrærir
af og til í henni.
Eftir því sem þú sýður hana
lengur verður hún dekkri og
þykkri. Setur sultuna í krukkur,
kælir vel og lokar svo. Passa að
sjóða sultuna ekki of liratt því
þá á hún það til að verða hörð.
Bláberjalíkjör
Hráefiti:
lkg. aðalbláber
1 kg. sykur
11. vodki
Þessu er öllu blandað saman
í stóra krukku. Velta þarf
krukkunni á hverjum degi í
6 vikur,( geyrna krukkuna á
köldum stað.) að þeim tíma
liðnum má setja allt í blandara
og sía þar næst hratið frá og setja
líkjörinn á flöskur.
Krœkiberjalíkjör
Hráefni:
1500 g krœkiber,
2 vænar lúkur timjan,
500 ml. hlynsíróp, 1000 g
sykur,
2000 ml. vodki
Aðferð: Krækiberin og timjanið
tætt vel og vandlega í blandara
og síaði í gegnum grisjuklút.
Safann látinn í pott ásamt
sykrinunt og sírópinu, hitaði
að suðu og slökkt svo undir og
látið standa í um það bil 15 mín.
Vodkanum er blandað saman
við hratið og látinn standa í um
20 mín. og síðan síaður frá og
ofan í soðið. Hratinu er hent.
Sett á tlöskur og geymt eitthvað
fram á aðventu.
Bláberjabaka
Hráefni:
100 gr. smjörlíki
100 gr. haframjöl
100 gr. sykur
slatti afbláberjum
Aðferð: Þurrefnum blandað vel
saman, ca. helmingur deigsins
settur í botn á eldföstu móti og
þjappað vel niður, síðan bláber
og rest af deigi mulið )'fir. Bakað
við 200 gráður þar til góður
litur kemur á bökuna. Þessa
er tilvalið að gera í einhverju
magni og setja síðan í frysti.
Rifsberjahlaup
2 1/2 kg. af berjum + 1 lítri
af vatni soðið saman í 20
mín. við góðan hita. Sigtað
og safinn látinn standa í potti
)iir nótt. Safinn mældur og
í 1 lítra af safa er sett 1 kg. af
sykri, látið standa í pottinun í
nokkrar klukkustundir áður
en byrjað er að sjóða saman.
Þarna er kominn grunnur að
hetðbundnu hlaupi.
Hinir ævintýragjörnu geta
síðan sett 4 smátt skorin chilli út
í og soðið í 10 - 15 mín. áður en
sett er á krukkur. Einnig er gott
að setja 3 góða engiferhnausa út
í sama magn en engiferið er rifið
smátt og soðið með hlaupinu.
( ÚR ELDHÚSI LESENDA )
Kristín og Geir með uppskriftirnar
Skyrkaka sem
drengirnir elska
Hjónin Geir Karlsson og Kristín Eggertsdóttir á
Hvammstanga senda uppskriftir sem eru auðveldar
og fljótlegar í matreiðslu. Skyrkakan er uppáhald
strákanna á heimilinu og hverfur fljótt af borðum. Þau
hjón skora á Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóra
SSNV og Ólafíu Rósbjörgu Ingólfsdóttur kennara að
taka við keflinu, en þar eru sannir matgæðingar á ferð.
Forréttur
Fiskisúpa með
grœnmeti og osti
16 laukur
1 hvítlauksrif
‘á rauð paprika
Vi grœn paprika
‘A msk. stnjör eða smjörlíki
1 msk. hveiti
4 dl. vatn
1 fiskiteningur
Salt og pipar
200 gr. ftskflök þorskur/ýsa
11/4 dl. rjómi eða kafflrjómi
lOOgr.jöklasalat
100 gr. rifinn ostur
1 tnsk. ferskt dill
1) Saxið lauk, hvítlauk og
papriku. Léttsteikið í smjöri
í potti
2) Stráið hveiti yfir, bætið
vatni út í og hrærið stöðugt
í. Kryddið með fiskteningi,
salt og pipar
3) Roðflettið fiskinn og
skerið í bita. Setjið hann út
í soðið. Hleypið upp suðu
og látið sjóða á lágum hita
í 3-4 mín.
4) Hitið rjómann. Bræðið
rifna ostinn í rjómanum og
hellið saman við súpuna.
5) Skerið jöklasalatið í
strimla og setjið út í súpuna
ásamt söxuðu dilli. Súpan
má ekki sjóða eftir það.
Forréttur
Kjúklingur með
mangóchutney
1 gl. Mangóchutney
Vi l. matreiðslurjómi
1-2 rif af hvítlauki,
fínsaxaður
2 tsk. karrí
400 gr. Kjúklingabringur
Olía til steikingar
1. Blandið mangó, rjóma,
hvítlauk og karrí vel í skál.
2. Skerið kjúkling í bita og
steikið í olíu á pönnu.
3. Bætið í mangó/rjóma-
maukið og látið malla í
u.þ.b. 10 mín.
4. Borið fram með hrís-
grjónum og fersku salati,
einnig er gott að hafa
hvítlauksbrauð með.
Eftirréttur
Skyrkaka
250 gr. Vattilluskyr
1 egg
1 peli rjóttii
1 pk. Homblest kex
1. Homeblest kex mulið og
sett í form.
2. Egg og vanilluskyr þeytt
saman.
3. Rjómi þeyttur og bætt
varlega út í skyrið. Síðan
sett ofan á mulið Homblest
kexið og látið standa í ísskáp
í minnst 1-2 tíma.
4. Gott er að strá súkku-
laðispæni yfir um leið og
borið er fram.