Feykir - 04.10.2007, Blaðsíða 10
lO Feykir 37/2007
Líflegt í Laufskálarétt sem aldrei fyrr
Bijóstbirta og spari-
greiddir fjórfætlingar
Þaó er kannski ekki að ósekju að Laufskálarétt er kölluð
Drottning stóðréttanna. Nafnbótin kemur þó varla sökum
fjölda hesta sem þangað er smalað heldur sökum alls
þess fjölda fólks sem réttina sækir og fer fólksfjöldinn
vaxandi ár hvert.
Eftir kulda og rigningar með blíðskaparveðri sl.
síðustuvikurtókHjaltadalurinn laugardag. Mikill íjöldi var
á móti réttargestum og smölum saman kominn til þess að sýna
sig og sjá aðra og kannski ekki
síst fylgjast með hrossunum.
Gera má ráð fyrir með mjög svo
óvísindalegum reikningsað-
ferðum að þarna hafi verið að
minnsta kosti fimm manns urn
hvern hest en fæstir voru þó
þarna í þeim erindagjörðum að
smala eða draga hross í dilk.
Hér og hvar stóðu bílskott
opin og þar hópaðist fólk
saman, fékk sér næringu og
kannski örlitla brjóstbirtu,
sumir sungu og enn aðrir seldu
varning úr afturenda bíla sinna.
Hestar gengu kaupum og
sölum og um tíma leit út fyrir
að fyrir utan réttina væri verið
að slá upp hundaræktunar-
sýningu er sparigreiddir hundar
spígsporuðu með merkja-
klæddum eigendum sínum.
Stappaá
dansleikjum
um helgina
Þrátt fyrir mikinn mannfjölda
fór allt vel fram og stórslysalaust
sem er jú alltaf fyrir mestu. Um
kvöldið voru síðan dansleikir á
Hofsósi og í reiðhöllinni auk
þess sem þau Hilmar og Helga
Möller skemmtu fólki í
Varmahlíð.
En eins og svo oft áður er
sjón sögu ríkari og fór Feykir á
stjá með myndavélina á lofti.