Feykir - 10.04.2008, Blaðsíða 3
14/2008 Feykir 3
Sauðárkrókur
Lögreglan sýnileg
Þeir sem fara með börnin
sín í Árskólann við
Freyjugötu hafa snemma á
morgnana séð lögregluþjón
á gangi við gatnamótin við
Ránarsta'g og Freyjugötu.
-Það er mikil umferð þarna
og þá er gott að lögreglan sé
sýnileg. Ökumenn vanda sig
þá betur, segir Kristján Örn
lögregluþjónn. Krökkunum
finnst líka spennandi að
fylgjast með, koma og spjalla
um heima og geima. Á
myndinni má sjá hann Daníel
í heimspekilegum umræðum
við Kristján.
Sauðárkrókur
Heilsudagar hjá Fisk
Heilsudagar voru hjá starfsfólki landvinnslu FISK
Seafood 1. og 2. apnl sl. Hjúkrunarfræðingar frá
Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki komu mældu
blóðsykur, blóðþrýsting og blóðfitu auk þessa að finna
út BMI stuðul hjá þeim sem það vildu.
Almenn ánægja var meðal inganna að sjá ávaxta- og
starfsmanna með þessa grænmetisborð fyrirtækisins
framkvæmd og ekki var síður sem hefur boðið starfsfólki
ánægja meðal hjúkrunarfræð- sínu upp á slíkt sl. 1 1/2 ár.
Leikfélag Sauðárkróks
iá takk, við viljum
finna milljón!
í byrjun mars hóf Leikfélag Sauðárkróks æfingar á
gamanleikritinu Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney, en
íslenskun og ný leikgerð er eftir Gísla Rúnar Jónsson.
Þessi hressilegi stofufarsi
fjallar um barnakennarann
Ingibjörgu, skrifstofublókina
Harald og 400 milljónir króna
sem þeim skötuhjúum
áskotnast allskyndilega. Þau
Ingibjörg og Haraldur eru
hinsvegar ekki sammála um
hvað gera eigi við seðlana og í
miðju rifrildinu koma gestir,
og svo koma meiri gestir og
fleiri gestir, bæði velkomnir
og óvelkomnir og sumir hvort
tveggja. Því má nærri geta að
þá fer í gang misvelheppnaður
feluleikur þar sem - jú, viti
menn - fólk dregur kolrangar
ályktanir, leyndarmál gubbast
upp úr vitlausu fólki og hurðir
skellast hér og hvar og alls
staðar. Sem sagt gott.
Með helstu hlutverk fara
Guðbrandur J. Guðbrandsson,
Elva Björk Guðmundsdóttir,
Árni Jónsson, Ásdís Árna-
dóttir, Sindri Haraldsson,
Jónatan Björnsson og Vignir
Kjartansson. Frumsýnt verð-
ur í Sæluviku Skagfirðinga
sem hefst sunnudaginn 27.
aprO.
BORGARGERÐI SAUÐÁRKRÓKI
Útboð - jarðvegsskipti
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í vinnu við jarðvegsskipti í hluta
Borgargerðis á Sauðárkróki. Verkið felst í jarðvegsskiptum í götustæðinu á um 750 m kafla,
frá Túngötu að Skagfirðingabraut. Hluta uppgrafins efnis skal komið fyrir í jarðvegsmön
norðan við götustæðið og fyllingu sunnan vió það, afgang þess skal flytja á losunarstaði.
Helstu magntölur eru:
Uppgrafið efni: um 9.000 m3
Neðra buróarlag: um 15.000 m3
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagafjarðar frá og með
föstudeginum 11. apríl 2008. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
23. apríl 2008 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 27. júní 2008
Umhverfis- og tæknisvið
www.skagafjordur.is 1 Skagafjörður
Er eitthvað að frétta?
Feykir
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
Skagfirsk náttúra
Fræðsludagur um Náttúrufar Skagafjarðar verður haldinn á
Sauðárkróki laugardaginn 12. apríl næstkomandi frá kl. 9:00-15:45.
Fyrirlestrar verða haldnir í húsi Frímúrara við Borgarmýri 1 en að þeim loknum
verður gestum boðið að þiggja veitingar í húsnæði Náttúrustofu að Aðalgötu 2.
(matarhléi mun verða boðið upp á súpu að hætti Jóns Daníels verts á Kaffi Krók.
Hádegisverður er gestum að kostnaðarlausu. Fólk er vinsamlegast beðið um að
tilkynna þátttöku í hádegisverði á netfangið helgi@nnv.is eða með því að hringja
í 453-7999. Þátttaka í fræðsludegi er öllum opin að kostnaðarlausu.
Dagskrá fræðsludags
9:00-9:20 Skráning og molakaffi
9:20 - 9:30 Setning - Guömundur Guðlaugsson - SveitarstjóriSkagafjoröar
9:30 - 9:40 Ávarp - Þórunn Sveinbjarnardóttir - Umhverfisráðherra
9:40-9:55 UmhverfissagaSkagaviðloksíðastajökulskeiðs-Ölafurlngólfsson-/tósJtó///s/amfc
9:55 -10:10 Eðlisþættir og VÖktun Skagfirskra vatnsfalla - Jórunn Harðardóttir- Vatnamælingar
10:10 -10:25 Skagfirskt landslag, aldur þess og tilurð - Árni Hjartarson - IslenskarOrkurannsóknir
10:25-10:45 Kaffi og með því
10:45-11:00 Jarðhiti í Skagafirði - Bjami Gautason-IslenskarOrkurannsóknir
11:00 -11:15 Skriðuföll í Skagafirði - Halldór G. Pétursson - Náttúrufræðistofnun Islanás
11:15-11:30 Jöklar á hálendinu austan Skagafjarðar - OddurSigurðsson - Vatnamælingar
11:30 -11:45 Gjóskufall og gjóskulög í Skagafirði - Helgi Páll Jónsson - Náttúrustofa Norðurlands vestra
11:45 -12:00 Friðlýsingar í Skagafirði - Kristín Unda Ámadóttir - Umhverfisstofnun
12:00-12:15 Fyrirspurnir
12:15 -13:00 Súpa að hætti Jóns Daníels verts á Kaffi Krók
13:00 -13:15 „Háfjöll í heiðins bláma": náttúra og ferðaþjónusta í Skagafirði
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir - Háskólinn á Hólum
13:15 -13:30 Skagfirskar ár: Vistfræðileg flokkun og lífríki - Stefán Óli Steingrfmsson - HáskálinnáHólum
13:30 -13:45 Flóra Skagafjarðar - helstu sérkenni - Höröur Kristinsson - Náttúrufræðistofnun Islands
13:45 -14:00 Fuglar í Skagafirði- GuðmundurA.Guðmundsson- Náttúrufræðistofnun Islands
14:00-14:15 Helsingjar í Skagafirði - Þórdís V. Bragadóttir - Háskóli Islands og Náttúrustofo Norðurlands vestro
14:15 -14:30 Friðlýstar minjar og minjaheildir í Austur- og Vesturdal, Skagafirði
Þór Hjaltalín - Fornleifavernd ríkisins
14:30 -14:50 Kaffi og konfekt
14:50 -15:05 „Rolling stones" á Reykjaströnd, Skagafirði
Armelle Decaulne - CNRS GE0ÍAB og Náttúrustofa Norðurlands vestra
15:05 -15:20 Orravatnsrústir, náttúruperla á hálendi Skagafjarðar
Þorsteinn Sæmundsson - Náttúrustofa Norðurlands vestra
15:20- 15:35 Fyrirspurnir
15:35- 15:45 Samantekt - Skúli Skúlason - RektorHáskólansdHólum
15:45 -17:00+ Veitingar í boði Sveitarfélagsins Skagafjarðar
og Skagafjarðarveitna í húsakynnum
Náttúrustofu Norðurlands vestra
NATTURUSTOFA
NorÖurlands vestra