Feykir - 10.07.2008, Blaðsíða 2
2 Feykír 27/2008
Glaðheimar á Blönduósi
Húnavatnssýslur
Nýr eigandi
48. rit Húnavöku komið út
Fyrir skömmu urðu eig-
endaskipti að Glaðheimum
sem er félag um húsin í
Brautarhvamminum á
Blönduósi. Það er
fyrirtækið Blanda ehf. sem
keypti þennan hluta út úr
rekstri Ólafs Vernerssonar
í bænum.
Eigendur Blöndu ehf. eru
Lárus Jónsson og fjölskylda.
Lárus sagði að þarna væri um
að ræða sjö hús sem rúmuðu frá
þremur og uppí níu manns í
gistingu. Síðan væri búið að
bæta við tveimur 15 fermetra
stórum og svo væri ætlunin að
bæta við þremur húsum á
svæðið í haust. Einu 54 ferm.og
tveimur 85 fermetra. Auk þessa
hefði Blanda tekið tjaldsvæðið á
leigu af sveitarfélaginu tO þriggja
ára og einnig tekið að sér rekstur
upplýsingamiðstöðvarinnar
næstu þrjú sumur. Það er því í
mörg horn að líta hjá Lárusi og
fjölskyldu.
Lárus segir að þetta verði
rekið undir nafni Glaðheima
áfram. Þau hafi lagt áherslu á
það enda er Glaðheimanafnið
orðið þekkt meðal ferðafólks
hér á landi og hefur líka verið
kynnt erlendis á undanfornum
árum. Lárus segir að aðsókn að
tjaldsvæðinu hafi verið góð til
þessa og eftirspurn varðandi
húsin færi vaxandi. ÖÞ:
Leiðari
Mun Paul Ramses sprengja
ríkisstjórnina?
Fyrir viku síðan komust málefni Keniamannsins
Pauls Ramses ífréttirnar er honum var synjað um
landvistarleyfi og aðskilinn frá konu sinni, Rosemary
Atieno Athiembo, og sex vikna syni, Fidel Smára, sem
heitir í höfuðið á Eiði Smára. Paul kom hingað til lands
eftir að hafa sætt ofsóknum í lieimalandi sínu sökum
þess að hafa blandað sér í stjórnmálin þar. Paul bauð
sig ásamtfleirum fram gegn sitjandi ríkisstjórn. Meðan
Paul dvaldi á landinu komst hann lítið áfram með mál
sitt og ráðamenn, í hvaða flokki sem þeir teljast, sýndu
máli hans ekki mikinn áhuga. Síðan kom aðþví að Paul
var vísað úr landi á miðju sumri, eða eigum við að orða
það sem svo, á miðri gúrkutíðfjölmiðla og bloggara
landsins. Líkt og Lúkasarmálið ífyrra varð málið
stærra og stærra og sífelltfleiri höfðu á því skoðun. Er
nú svo farið aðforsvarsmenn annars stjórnarflokksins
eru opinberlega farnir að skora á hinn að leysa málið.
Sjálfvelti ég þvífyrir mér hvortþettafólki tali ekki
saman? Flvort samskiptum þeirra sé best varið í gegnum
fjölmiðla og bloggsíður? Paul Ramses er ekkifyrsti
maðurinn til þess að vera aðskilinn frá fjölskyldu sinni
héðan frá landinu bláa. Við höfum heyrt samskonar
sögur en fæstar hafa verið sagðar í gúrkutíð, þessi mál
hafa með öðrum orðum ekki orðið “hittarar”. Eftir sit
ég með þá spurningu hvort Paul Ramses muni takast
hér á landiþað sem honum mistókst í Kenía. Það er, að
sprengja ríkisstjórn.
Guðný Jóhannesdóttir,
ritstjóri héraðsfréttablaðsins Feykis.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Saudárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell HeiðarÁsgeirsson,
Herdís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjóri & ábyrgðarniaðun
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Fríðriksson
palli@nyprent.is <0 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Húnavaka er komin út í 48.
sinn en í ritnefnd sátu aó
venju, Magnús B. Jónsson,
Unnar Agnarsson, Einar
Kolfinnsson, Pál Ingþór
Kristinsson, Jóhann
Guðmundsson og
Ingibergur Guðmundsson.
Ritstjóri er líkt og
undanfarna áratugi Stefán
Jónsson á Kagaðarhóli.
Húnavaka er að venju
stútfull af fræðslu og fróðleik
um Húnvetninga lífs og liðna
að ógleymdum fréttaannál,
sögum og vísum úr daglega
lífinu. Ritið er selt í áskrift auk
þess sem það má nálgast það í
verslunum Samkaupa og hjá
skrifstofu USAH og kostar ritið
3500 krónur í lausasölu.
Það er óhætt að segja að hér
sé einstakt rit á ferðinni sem
ætti í raun að vera skyldueign
allraHúnvetningaheimamanna
jafnt sem brott fluttra. Gaman
er að segja frá því að öll vinna
við ritverkið er unnin í
sjálfboðavinnu nema setning
sem er í höndum Unnar
Agnarssonar og prentverk sem
fram fer í Ásprent. Útgáfan var
að þessu sinni styrkt af
Menningarráði Norðurlands
vestra.
Skagafjörður
Áfram Háholt
Sveitarfélagið Skagafjörður
og Barnaverndarstofa hafa
skrifað undir viljayfirlýsingu
um áframhaldandi leigu
meðferðarheimilisins
Háholts til 10 ára.
Byggðarráð Skagafjarðar
hefúr samþykkt að ráðast í
endurbætur á húsnæðinu en
húsnæðið var farið að þarfnast
viðhalds. Ákveðið var að til þess
að mæta þessum kostnaði yrði
leitast við að fresta öðrum
viðhaldsverkefhum fasteigna á
árinu. Þeir fjármunir sem vantar
upp á verði teknir að láni.
Hvammstangi
Lídur að selatalningu
Árleg selatalning á vegum Selasetursins á Hvamms-
tanga verður haldin sunnudaginn 20. júlí næstkomandi.
Lfkt og í fyrra verða gengnar allar fjörur við Vatnsnes frá
Miðfjarðarósi að vestan, að Signðastaðaósi aö austan,
eða um 70 km leið.
í fyrra tóku um 30 sjálf-
boðaliðar þátt í talningunni, sá
yngsti 4 ára og sá elsti á
áttræðisaldri. Vonast er til að
sjálfboðaliðarnir verði jafn
margir eða fleiri á þessu ári,
enda byggir árangur talningar-
innar algjörlega á þeim.
í fyrra voru flestir selir á
einstökum talningastöðum við
Sigríðastaðaós 194 og Hindis-
vík 139. Einnig voru ríflega 60
við Krossanes, Svalbarð og
Illugastaði. Alls voru taldir 727
selir við Vatnsnesið, þar af 2
útselir.
í tilkynningu frá Selasetrinu
er fólk hvatt til þess að taka
daginn frá.
Rollur á hringtorginu
mynd vikunnar
Þessar kindur voru að kanna gróðurinn á eina hringtorginu í
Sauðárkróksbæ á dögunum og virtust ekkert kippa sér upp við
umferðina og því síður við flutningavagna frá stórfyrirtækjum í
byggingariðnaði á lóð Steinullarverksmiðjunnar.
Mynd Örn Þórarinsson
Sauóárkrókur
Óskum
afslátt
skatta
Videosport ehf. núverandi
eigandi fasteignarinnar
Aðalgötu 16, sem
áður hýsti Kaffi Krók,
hefur óskað eftir þvf við
Byggðarráð Skagafjaróar
að fá niðurfellingu
fasteignagjalda á meðan
á endurbótum hússins
stendur.
Sveitarfélaginu er ekki
heimilt að fella niður eða
lækka fasteignaskatta
en byggðarráð óskaði
engu að síður eftir því að
sveitarstjóri kannaði málið
vegna endurgerðar hússins.
Verið vísindagarðar
Snorrií
stjóm
Á síöasta fundi
Byggðarráðs Skagaflarðar
var samþykkt með
tveimur atkvæðum
að kjósa Snorra
Styrkársson sem
fulltrúa Sveitarfélagsins
SkagaQarðar og
Skagaflarðarveitna ehf. f
stjóm Versins.
Páll Dagbjartsson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks, sat hjá
við atkvæðagreiðsluna og
óskaði bókað að hann teldi
að í ljósi hlutarfjáreignar
eigi sveitarfélagið að
eiga einn fulltrúa og
Skagafjarðarveitur ehf.
annan. Gísli Árnason
Vinstri grænum bókaði að
hann teldi að stjórnarsetu
eigi að tengja eignarhlut í
félaginu.