Feykir - 10.07.2008, Blaðsíða 11
27/2008 Feykir 11
Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi
Hér er allt til alls
Arnar Þór Sævarsson,
bæjarstjóri á Blönduósi,
hefur nú gengt því
embætti f rúma níu
mánuði. Glöggt er gests-
augað segir máltækið sem
hefur sannað sig f tilfelli
Arnars sem sér endalausa
möguleika á svæðinu.
Arnar segir að fyrstu
mánuðirnir hafi óhjákvæmi-
lega farið í það að koma sér
inn í starfið og ná utan um
verkefni sem nú eru komin á
fulla ferð. En hvað skyldi nú
tróna efst á vinnuborði
bæjarstjórans? -Það er kannski
ekki eitthvað eitt sem trónir
þar efst en þau verkefni sem
maður horfir í eru þessar
tillögur hjá Norðvesturnefnd-
inni og síðan að vinna að
frekari uppbyggingu atvinnu-
lífs í Austur Húnavatnssýslu.
Síðan erum við að fara að
byggja hér sundlaug sem
verður stærsta verkefni
sveitarfélagins næstu tvö árin.
Þetta verður 25 metra löng
sundlaug með heitum pottum,
busllaug og rennibrautum. Við
erum nú þegar hér með eitt
vinsælasta tjaldsvæði á landinu
og sundlaugin á bara effir að
auka á vinsældir þess.
Enginn barlómur er í
heimamönnum og segir Arnar
að á Blönduósi séu hlutirnir
upp á við. -Á síðasta ári fjölgaði
um þrjá í sveitarfélaginu,
fasteignaverð er að hækka,
fyrirtækin hér eru tiltölulega
sterk og okkur vantar bara
fleira fólk til að ganga í þau
störf sem eru til staðar. Það er
krafa á okkur frá íbúum að fara
að úthluta lóðum til byggingar
sem er vísir um að hér sé
uppgangur. Hér er alla vega
alveg örugglega ekki niður-
sveifla, segir Arnar. —Eftir því
sem ég heyri utan af mér þá
ríkir hér mikil gleði og bjartsýni
í sveitarfélaginu en stærsta
verkefnið sem bíður okkar er
að freista þess að auka sam-
vinnu sveitafélaga á svæðinu,
bætir hann við.
Þú talar um að það vanti fólk,
hvernig fólk á möguleika á að
setjast að á Blönduósi? -Ég
myndi segja að hér væri góð
tækifæri fyrir ungt fjölskyldu-
fólk. Hér er gott að búa og ala
upp börn auk þess sem hér er
stutt í allt. Hér geta menn haft
nægan tíma fyrir fjölskylduna
svo ég tali nú ekki um útivistina.
Við erum ekki nema 20
mínútur að keyra á skíðasvæð-
ið í Tindastól, hér í héraðinu
eru 6 laxveiðiár auk mikillar
gæsa og skotveiði. Mikil og rík
hefð er fýrir hestamennsku auk
þess sem flugsportið er sterkt
hérna. Við erum gríðarlega
sterk menningarlega séð og allt
er þetta hérna við túngarðinn
hjá okkur. Það er nánast sama
hvaða áhugamál þú hefur þú
getur nálgast það í skotfæri.
Sjálfur er ég sannfærður um
að við eigum hér miklar og
ónýttar auðlindir í héraðinu.
Þá er ég bæði að tala um vötnin
hér og vatnaveiði og síðan eru
hér 20 eyðibýli inni í Laxárdal
sem er bæði gríðarlega gróinn
og fallegur dalur, umlukinn
þessum tignarlegu og háu
fjöllum. Þar er mikil og góð
aðstaða til þess að hverfa aftur í
tímann og eins bara til þess að
stunda útivist og fara í göngu-
ferðir.
Ertu mikill útivistarmaður
sjálfur? -Já, ég er mikið í
skotveiði og í jeppamennsku.
Ég hef gaman af því að ferðast
um hálendið og klífa fjöll. í
ágúst mun ég á þremur dögum
klífa Snæfell, Kverkfjöll og
Herðubreið, en Herðubreið
verður þá klifinn á 100 ára
gönguafmæli fjallsins. f fyrra
fór ég síðan á Kilimanjaro.
Þannig að já, ég er mikill
útivistarmaður.
Þú talaðir áðan um að hér
væri engin niðursveifla, er
uppsveifla á Blönduósi? -Já,
hér er uppsveifla og óhætt að
segja að allt sé upp á við.
Blönduós hefur alla burði til
þess að sækja fram á við.
Staðsetningin er góð og það er
fullt af ónýttum tækifærum hér
í sýslunni. Með samstilltu átaki
allra aðila á Húnavatnssýsla að
geta orðið fremst meðal
jafningja hvað búsetukosti og
atvinnutækifæri varðar.
( KÁTIR KRAKKAR )
Einfætt uala
fóstruö í
Dalsmynni
Ugluungi er nú í öruggu
skjóli hjá barnabörnunum
í Dalsmynni f Hjaltadal
eftir hremmingar sem
hann lenti í á dögunum.
Það var bóndi í
nágrenninu sem varð var
við ungann þegar hann
var að slá tún sem hann
hefur á leigu í Dalsmynni.
Litlu mátti muna að unginn
endaði þar líf sitt þegar
hann lenti í sláttuvélinni
en bóndinn náði að stöðva
vélina áður enn verr færi.
-Bóndinn var ekki nógu
fljótur að stoppa svo unginn
missti annan fótinn og eina
Anna Guðrún, Þórður, Stefán Snær og Guðrún Erla með ungann Sóleyju.
kló á hinum fætinum, sögðu
krakkarnir sem hjúkra
unganum í gróðurhúsi við
bæinn. -Hann á heima í
gróðurhúsinu. Við gefum
honum egg, tómata og orma
að borða en við vitum ekki
hvort við förum að veiða mýs
fyrir hann. Við prófuðum að
gefa honum minkafóður en
hann vildi það ekki. Aðspurð
hvað þau ætluðu að gera við
ungann sögðu börnin að þau
væru búin að tala við Sigríði
dýralækni á Hólum.
-Hún ætlar að líta á
ungann, búa um sárið og
kannski gefur hún honum
verkjalyf. Vonandi lifir uglan
sem lengst, segja krakkarnir
að lokum og vilja koma því
á framfæri að þeir sem fmna
slasaða fugla, hugsi vel um
þá.