Feykir - 10.07.2008, Qupperneq 6
6 Feyklr 27/2008
Kristinn H. Gunnarsson
alþingismaður Frjálslynda
flokksins notar sumarið
að hluta til þess að
ferðast um kjördæmið og
hitta kjósendur. í siðustu
viku var Kristinn á ferðinni
á Norðurlandi vestra.
-Ég hef verið að ferðast
um norðurhluta kjördæm-
isins síðustu þrjá daga til þess
að kynna mér stöðu
atvinnumála á svæðinu. Ég
hef hitt sveitarstjóra í öllum
sveitarfélögum sem og
forsvarsmenn nokkurra
fyrirtækja, segir Kristinn H.
aðspurður um ferðalag sitt.
-Þetta er liður í reglulegri
yfirferð kjördæma-
þingmanns. Mér finnst ágætt
að nota þann tíma sem
hægara er um í höfuðborginni
tU þess að ferðast um
kjördæmið, bætir hann við.
Ertu einn á ferðinni eða er
Guðjón Arnar með þér? -Ég
er bara einn að þessu sinni en
Guðjón er í sumarfríi, svarar
Kristinn og bætir aðspurður
við að sjálfur komist hann
ekki í frí fyrr en
hjúkrunarfræðingar verði
búnir að semja, en kona hans
Elsa Friðfinnsdóttir fer þar
fremst í flokki. -Þá hef ég
áhuga á að komast á
Hornstrandir og síðan til
Evrópu eða nánar tiltekið til
Borgundarhólms að
heimsækja Sigga Björns, vin
minn og trúbador. Hann er
búinn að bjóða okkur að
koma til sín.
Nú ert þú bara einn að
ferðast á hvað hlustar þú þá
í bílnum? -Ég hlusta í þessari
ferð núna aðallega á nýja
diskinn með Álftagerðis-
bræðrum og síðan er ég með
annan með Guðrúnu Á
Sigurðardóttur óperusöng-
konu.
Kreppan ekki hér
Kristinn segir að ferð sem
þessi sé eins og jarðsamband
fyrir þingmanninn og
nauðsynlegt sé að vera
duglegur við að heyra í fólki.
-Ég er í sambandi við fólk
um þau mál sem á því brenna,
bæði sveitarstjórnar-fólki svo
og einstaklingum úr
atvinnulífinu og hinum
almenna kjósenda. Með þvi
að fara með þessum hætti
reglulega um kjördæmið þá á
maður að vera sæmilega
upplýstur um stöðu mála. í
þessari ferð hef ég meðal
ann-ars fengið mjög gott
yfirlit um vegamál í
Húnavatnssýslum, eða það
sem upp á vantar til þess að
þar séu góðir vegir, segir
Kristinn og hlær.
Er kreppuhljóð í fólki? -Nei,
ég held að nú séum við að
njóta þess að hafa ekki fengið
uppsveifluna. Hér eru ekki
framundan þau vandamál
sem menn sjá fram á á höfuð-
borgarsvæðinu meðal annars
íverðlækkunáíbúðarhúsnæði
og samdrætti í sölu. Hér er
ágæt sala á húsnæði og verðið
að heldur að hækka. Hin
hliðin er líka sú að hér hefur
húsnæði ekki verið eins dýrt
og á höfuðborgarsvæðinu og
því eru skuldir fólks ekki eins
háár og það kemur sér vel
núna, segir Kristinn áður en
hann er rokinn á næsta fund.
Kjósendurnir bíða.
Vökulögin 2008 á Húnavöku
Níu glæsileg lög
í úrslitum
Úrslit söngvakeppninnar Vökulögin 2008 verður haldin í íþróttahúsinu á Blönduósi
föstudagskvöldið 11. júlí og hefst kl. 20.30.
Alls bárust 44 lög í keppnina og voru 9 lög valin til að keppa til úrslita. Lögin níu eru öll hin
áheyrilegustu og ljóst að það stefnir í hörku keppni milli góðra laga. Hverjum miða fylgir atkvæðaseðill
þar sem hver merkir við sitt uppáhaldslag. Dómnefnd mun svo hafa jafn mörg stig til ráðstöfunar og
fjöldi seldra miða. Þannig er vægi salar jafn mikið og vægi dómnefndar. Lögin níu eru:
DRAUMALANDIÐ
Flytjandi er
Ardís Ólöf Víkingsdóttir
Ardís hefur komið víða við
á sínum ferli eftir dvöl sína
í Tónlistarskóla A- Hún-
vetninga á Blönduósi. M.a.
tók Ardís þátt í uppfærslu
Leikfélags Akureyrar á
söngleiknum Litla Hryll-
ingsbúðin sem var bæði
sýnd á Akureyri og í
íslensku ópemnni í
Reykjavík. Einnig hefur hún
tekið þátt í undankeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva
með lag Öriygs Smára,
Eldur nýr, árið 2006. Árið
2003- 4 tók Ardís þátt í
Idol Stjömuleit og fljótlega
eftir það myndaðist söng-
hópurinn Heitar lummur
sem gaf út einn geisladisk.
Ardís útskrifaðist í vor með
masters-gráðu frá
Westminster Choir College
Of Rider University í
Bandarfkjunum.
>LÍFID ER FÍNT
Flytjandi er Margrét
Arna Vilhjálmsdóttir
Margrét Arna er 17 ára,
fædd og uppalin á Blöndu-
ósi. Margrét Ama er ung og
stórefnileg söngkona sem
á framtíðina fyrir sér í
sönglistinni. Hún stundar
nám við Menntaskólann á
Akureyri og vonandi fáum
við að heyra hana syngja
sem oftast í framtíðinni.
HLUSTUM Á LÍFIÐ
Flytjendur eru þær
Hreindís Ylva
Garðarsdóttir og
Þórunn Arna
Kristjánsdóttir
Hreindís Ylva er fædd 1.
mars 1989 og stundar
nám við Menntaskólann
við Hamrahlíð. Hreindís
lærði jazzsöng við Tónlistar-
skóla FÍH síðastliðin tvö ár,
þaráðurvarhún í klassísku
söngnámi við Söngskólann
í Reykjavík. Einnig hefur
hún stundað leiklist, dans
og söng frá bamsaldri og
hefur tekið þátt í ótal
uppfærslum hjá Leikfélagi
Mosfellssveitar. Þá hefur
hún m.a. leikið í Annie í
Austurbæ og Jesus Christ
Superstar í Borgarieikhús-
inu.
Þórnnn Ama er fædd og
uppalin á ísafirði. Hún hóf
ung tónlistamám við
Tónlistarskóla l’safjarðar,
fyrst á fiðlu, svo píanó og
loks söngnám. Þórunn
hefur sungið á tónleikum
með ýmsum kórum og
tekið þátt í söngleikjum og
leikverkum á ísafirði,
Reykjavík og víðar. Vorið
2006 lauk Þórunn Ama
söngnámi við Listaháskóla
Islands og um haustið
sama ár hóf hún nám við
leiklistardeild Listaháskóla
íslands.
HOLTAVÖRÐUHEIÐIN
Flytjandi er Andri
Bergmann
Andri Bergmann er 24 ára
gamall söngvari frá Eski-
firói. Eftir fjölmörg
bílskúrsbönd og metnaðar-
fulla tónlistarsköpun í
Gmnnskóla lá leið Andra í
Menntaskóla. Þartók Andri
þátt í Söngkeppni Fram-
haldsskólanna árið 2003
fyrirhönd Verkmenntaskóla
Austurlands og stóð sig
með prýði. Það var svo
síðla árs 2006 sem
lagahöfundurinn Torfi
Ólafsson kom auga á pilt
og fékk hann til að syngja
lag sitt "Bjarta brosið" í
söngvakeppni sjónvarpsins
2007. Lagið og söngvarinn
vöktu athygli landans og
komst Andri með lagið alla
leið í úrslitaþáttinn. Síðasta
haustfór Andri svo í alhliða
söngnám til Kaupmanna-
hafnar og í dag er hann að
læra til kennara við þann
sama skóla, Complete
Vocal Institute.
ÞRÁn FYRIR ALLT
Flytjandi er Guðný
Pála Rögnvaldsdóttir
Guðný Pála er annar
helmingur dúettsins GÍS
sem fór langt í X-faktor
keppninni á síðasta ári.
Hún starfar sem dagskrár-
gerðarmaður á Stöð 2 en
söngurinn er aldrei langt
undan enda glæsileg
söngkona á ferðinni.
>ALLT SEM ÉG ANN
Flytjandi er Rakel
María Axelsdóttir.
Rakel Marfa fæddist í
Reykjavík 17. febrúar árið
1977. Hún stundaði
píanónám í tónmennta-
skóla Reykjavikur frá átta
ára aldri og síðar í
Tónlistarskóla Grafarvogs.
Rakel stundaði söngnám í
eitt ár við Tónlistarskólann í
Grafarvogi og eitt ár í
Söngskóla Reykjavíkur. Frá
2003 hefur Rakel unnið
sem forskólakennari í
Tónlistarskólanum í Grafar-
vogi verið með tónsköpun-
amámskeið í gmnnskóla
hjallastefnunnar.
VINNANDI MENN
Flytjandi er
Guðmundur
Hermannsson
Guðmundur Hermannsson
fæddur 31. júlí 1955.
Hann lauk námi frá tón-
menntakennaradeild vorið
1979 og hefur kennt
tónmennt síðan og er
starfandi tónmennta-
kennari í Keflavik. Hann
hóf feril í poppbransanum í
skólahljómsveit í Mennta-
skólanum við Laugarvatn á
sínum unglingsámm. Eftir
það spilaði Guðmundur í
hinum ýmsu hljómsveitum
með mörgum afbragðs
poppumm þessa lands. Þá
hefur hann átt lög og
sungið inná nokkrar plötur
ásamt því að hafa gefið út
eigin sólóplötu.
HVERT FÓR SÚ ÞRÁ
Flytjandier Björgvin
Fannar Björnsson
Björgvin Fannar er 20 ára
gamall Kópavogsbúi, Hann
stundar nám við Mennta-
skólanum við Sund og tók
þátt í söngkeppni fram-
haldsskólanna fyrir hönd
skólans síðastliðið vor. Þar
fengu landsmenn að sjá og
heyra framtíðarsöngvara
þó ekki næði hann að sigra
keppnina í það skiptið.
MÉR LÍDUR SVO VEL
Flytjandi er
Guðmundur Karl
Ellertsson
Guðmundur Karl er 35 ára,
fæddur og uppalinn á
Blönduósi. Hann hefur
sungið á sviði, undir sviði
en mest þó baksviðs við
hin ýmsu tilefni. Best væri
þó að hann héldi sig bara á
sviðinu því þama fer
afbragðs góður söngvari
sem ætti að láta sönginn
hljóma hvar sem hann
stendur.
Kynnir kvöldsins er leikar-
inn og gamli Blönduós-
ingurinn Felix Bergsson.
Hvergi verður til sparað
hvað varðar sviðsmynd,
hljóð og Ijósabúnað sem
ætti að skapa mikla og
góða stemningu.
Eftir keppni ætlar hljóm-
sveitin Lexia að halda uppi
stuði á balli sem standa
mun fram á nótt Hægt er
að heyra brot úr lögunum
og kynnast flytjendunum
nánar á heimasíðu keppn-
innará Huni.is.